Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.7. 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Sumarið helltist yfir megnið af land- inu, nema höfuðborgarsvæðið. Ekki þurfti þó að fara lengra en í Flóann til þess að njóta veðurblíðunnar, það var fínt fyrir norðan og austur á Héraði sól í heiði og hitabylgja, svo innfæddir spókuðu sig þar hálfnaktir með svaladrykki. Á meðan sveiflaðist gosvirknin fram og til baka á Reykjanesskaga, en jarðvísindamenn struku vangann og veltu vöngum yfir því hvort líða færi að goslokum. Sögðu svo að um slíkt væri erfitt að spá. Kórónuveirusmit greindust í aukn- um mæli í vikunni en í langflestum tilvikum voru einkennin væg eða engin. Ekki hlutust heldur alvarleg veikindi af, en tveir voru þó lagðir inn, annar veikur af öðrum orsökum. Aukins óróa gætti í Miðbæ Reykja- víkur um helgina og allt gistirými lögreglunnar uppurið. Talsvert var um pústra og jafnvel áflog þar sem menn drógu upp hnífa. Velflestir skemmtistaðir voru smekkfullir, sem átti eftir að hafa sín áhrif á smittölur daganna á eftir. Ársreikningar sveitarfélaga leiða í ljós að rekstur þeirra margra er æði bágborinn, en útsvarstekjur duga ekki fyrir heildarlaunakostnaði. Þá kom á daginn – að því er virtist öllum að óvörum – að stytting vinnuviku reyndist ekki útlátalaus. . . . Aukin smit urðu sóttvarnalækni áhyggjuefni, sem hann impraði á við heilbrigðisráðherra, sem aftur kynnti þau í ríkisstjórn, þar sem samþykkt var tillaga um hertar sóttvarnir við ferðir til landsins. Sjálfstæðismenn létu hins vegar í ljós efasemdir um að þær aðgerðir hefðu tilætluð áhrif, en vitað væri að þær yrðu ferðaþjónustu þungbærar. Heil- brigðisráðherrann Svandís Svavars- dóttir svaraði snúðugt að sjálfstæð- ismenn hefðu verið á móti alls kyns sóttvörnum frá upphafi. Þau orð juku ekki friðinn við ríkisstjórnarborðið, en Bjarni Benediktsson sagði kosninga- lykt af þeim. Ferðamönnum hefur fjölgað svo í landinu undanfarnar vikur, að hörgull er á bílaleigubílum fyrir þá. Bílaleig- ur grynnkuðu mjög á lagernum meðan faraldurinn gekk yfir. Til stendur að reisa víkingagarð á Hjörleifshöfða til afþreyingar ferða- mönnum. Hvenær mun hér rísa útrás- arvíkingagarður? Gosmóða vofði áfram yfir höfuðborg- arsvæðinu svo fólki var ráðið frá því að stunda líkamsrækt utandyra, láta ungabörn sofa úti í vagni eða ámóta. Sérstaklega fór móðan illa í fólk með viðkvæm öndunarfæri. Forráðamenn baðlónsins Sky Lagoon í Kópavogi brugðust við gagnrýni á að hafa vísað berbrjósta konu upp úr lón- inu með breyttum reglum, þar sem ekki er gerður greinarmunur á kynj- unum hvað klæðaburð í lóninu varðar. Ekki var þó af þeirri tilkynningu ljóst hvort konur mættu framvegis bera brjóstin eða karlar að koma í sundbol. Mikill munur er á afstöðu kynja til sumra stjórnmálaflokka, en að því leyti slá Vinstri græn öllum við sam- kvæmt könnun MMR. Um 19% kvenna styðja listann en aðeins 5% karla. Það þýðir að af stuðningsfólki listans er aðeins fimmti hver karl. Til stendur að opna mathöll í gamla Bryggjuhúsinu við Vesturgötu 2, sem margir kannast við sem Kaffi Reykjavík. . . . Þrátt fyrir mikið atvinnuleysi undanfarna mánuði, ekki síst á Suðurnesjum, hefur fyrirtækjum á Keflavíkurflugvelli reynst erfitt að finna starfsmenn nú þegar ferðamannastraumurinn er hafinn að nýju. Fram kom að leikmaður fótbolta- liðsins Everton hefði verið handtek- inn vegna áskana um brot gagnvart ólögráða barni, þó ekki kæmi neitt fram um aldur þess. Maðurinn reyndist vera íslenski landsliðsmað- urinn Gylfi Þór Sigurðsson. Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) varðist allra fregna vegna málsins og kvaðst bíða formlegrar staðfestingar á því að þar ræddi um Gylfa. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, vildi ekki einu sinni segja hvort leitað hefði verið eftir henni. Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra sagðist fagna netverslun með áfengi, en hafði skilning á því að for- ráðamenn ÁTVR vildu kanna lög- mæti hennar. Hins vegar furðaði hann sig á ásökunum þeirra um skattsvik keppinautanna. Farsóttarhúsið fylltist og þörf á að opna annað. Flestir þar eru erlendir strandaglópar, sem ekki hafa komist úr landi vegna smits. Því ótengt veitti byggingarfulltrúinn í Reykjavík leyfi fyrir því að Her- kastalanum við enda Aðalstrætis verði breytt úr gistiheimili í hótel- íbúðir. Barnalæknar í Domus Medica, sem lokað verður um áramót, hyggjast flytja sig um set í Urðarhvarf í Kópa- vogi. . . . Hefðbundnar útihátíðir sumarsins eru í hættu vegna yfirvofandi sótt- varnaaðgerða. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði að þær væru sérdeilis hættumiklar hvað smit varðaði. Öllum slíkum hátíðahöldum var aflýst í fyrra. Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir varaði landsmenn við að halda að allt væri um garð gengið þó búið væri að bólusetja þjóðina og alvarleg veik- indi létu ekki á sér kræla. Sagði hann að kórónuveirufaraldrinum lyki ekki fyrr en honum væri lokið um heim allan. Rétt er að minna á að svarti dauði er enn meðal oss í Kína, Bandaríkjunum og Mexíkó. Kúbumenn á Íslandi, vinir þeirra og fleiri frelsisunnendur efndu til sam- stöðu á Austurvelli vegna víðtækra mótmæla í Kúbu gegn einræðis- stjórn kommúnista þar. Í sama mund hófust fangelsanir andófsmanna á Kúbu. Arnar Sigurðsson vínkaupmaður kærði Ívar J. Arndal, forstjóra ÁTVR, fyrir rangar sakargiftir. Sá hafði sent kærubréf til skattyfirvalda á einstaklega hæpnum forsendum. Forstjórinn lét ekki ná í sig, en að- stoðarforstjórinn sagði að hann myndi ekki láta ná í sig. Þurrkur á Norðurlandi er orðinn svo langvarandi að hægt hefur á sprettu, en fyrri slætti í Eyjafirði er lokið. . . . Útreikningar á úthlutun þingsæta samkvæmt könnun MMR á fylgi framboða til Alþingis sýndu að tveir ráðherrar framsóknarmanna, þau Lilja Alfreðsdóttir og Ásmundur Einar Daðason, féllu af þingi, færu kosningar á sama veg og birtist í könnuninni. Icelandair birti uppgjör þar sem fram kom gríðarlegt tap á árinu, 10,8 milljarðar það sem af er, þar af 6,9 milljarðar króna á öðrum ársfjórð- ungi. Íbúar við Hörgshlíð kvarta undan vinnubrögðum Reykjavíkurborgar, en verið er að gera nýjan göngu- og hjólreiðastíg við húsin og grafa und- irgöng undir Bústaðaveg. Ekkert samráð hafi verið við þá haft. Yfirmaður hjá N1 segir að fyrir komi að viðskiptavinir atyrði starfsmenn fyrir að vera ekki nægilega sleipir í íslensku. Drífa Snædal, forseti ASÍ, hvetur fólk til þess að sýna hvert öðru og ekki síst vinnandi fólki virðingu. Landspítali var færður af óvissustigi yfir á hættustig, að sögn vegna óvissu. Sumarblíðan á Norður- og Austur- landi mallaði áfram í vikunni, svo margir lögðu leið sína þangað til þess að sleikja sólina og eiga náðuga daga. Þar á meðal ríkisstjórnin, sem ákvað að halda ríkisstjórnarfund á Egils- stöðum með stuttum fyrirvara. Það var þó ekki svo að ríkisstjórnin væri aðeins að nota síðasta séns til þess að frílysta sig fyrir austan, því á dagskrá fundarins voru tillögur sótt- varnalæknis um enn hertar aðgerðir vegna smitaukninga. Af fundinum kom svo Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra með yfirlýsingu um að aðgerðir yrðu hertar um helgina, settar yrðu á 200 manna sam- komutakmarkanir, eins metra fjar- lægðaregla og afgreiðslutími bara og veitingastaða styttur. Í sól og sumaryl og plágu Ráðherrar og fulltrúar valdstjórnarinnar sleiktu sólina fyrir austan á föstudag og ákaflega traustvekjandi að sjá Sigurð Inga Jóhannsson sultuslakan á fössara, þó hans bíði erfið úrlausnarefni á dögum smita og sóttvarnaraðgerða. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson 18.7.-23.7. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.