Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Blaðsíða 10
ÍÞRÓTTIR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.7. 2021 vekja athygli á sínum málsstað fyrir keppni, til dæmis í kynningum þeirra, en ekki meðan á keppni stendur eða þegar verðlaun eru afhent. Hefur Thomas Bach, forseti nefndarinnar, sagt að verðlaunaafhendingarnar eigi að heiðra keppendur og sú stund gæti verið eyðilögð fyrir öðrum sé per- sónulegum skoðunum komið á fram- færi. Rauði þráðurinn í þessu máli virð- ist vera að nefndin vilji halda pólitík frá leikunum. Margir spyrja sig þó hvort leikarnir séu ekki hvort eð er pólitískir ef litið er á ferlið við að út- hluta leikunum til gestgjafanna sem rætt er hér að ofan. „Ég er mennsk“ Annað málefni sem komið hefur upp í aðdraganda leikana er bann Sha’C- arri Richardson sem missir af leik- unum vegna falls á lyfjaprófi. Fékk Richardson eins mánaðar bann eftir að kannabis mældist í sýni hennar sem tekið var á úrtökumóti Banda- ríkjanna fyrir leikana. Hafði Rich- ardson unnið í 100 metra hlaupinu á mótinu þegar hún féll og var líkleg til afreka í bæði 100 og 200 metra hlaupi á leikunum. Hin 21 árs Richardson gengst við banninu og sagði ástæðu fallsins vera að hún fékk þær fregnir að kynmóðir hennar væri dáin. Efnið hefði hún notað til að takast á við áfallið á sama tíma og hún þurfti að standa sig á mótinu. Kannabis er á bannlista Alþjóða- lyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA) og sagðist Richardson átta sig á því að hún gerði mistök. „Ég er mennsk,“ sagði hún. Marijúana er löglegt í Ore- gon-ríki í Bandaríkjunum þar sem úrtökumótið fór fram og af rann- sóknum að dæma hjálpar efnið ekki íþróttamönnum. Raunar er líklegra að það dragi úr frammistöðu. Rich- ardson braut því ekki lög og hafði ekki forskot á aðra keppendur. Reglur eru reglur, en háværar raddir eru uppi um að taka kannabis af bannlista WADA og styðja við þá sem nota efnið fremur en að refsa þeim. Konur í stærra hlutverki Það er þó margt jákvætt hægt að segja um leikana sem fara nú fram í Tókýó. Ólympíuleikarnir eru hátíð þar sem bestu íþróttamenn heims koma saman og leika listir sínar. Um leið og þeir keppa um hið eft- irsótta ólympíugull blása íþrótta- mennirnir þeim sem á horfa í brjóst. Úr verður eins konar fögnuður mannkynsins og alls þess sem það getur afrekað. Þess vegna bítast oft stærstu borgir heims um hver fær að halda leikana. Á leikunum í Tókýó eru konur stærri hluti keppenda enn nokkru sinni fyrr. 48,8% keppenda eru konur samanborið við 45% á leikunum fyrir fimm árum. Alþjóðaólympíunefndin hefur það að markmiði að ýta undir kynjajafnrétti og hefur til þess sagt skilið við nokkrar greinar þar sem að- eins karlar kepptu og bætt við kvennaflokki í öðrum greinum í stað- inn. Þá munu konur og karlar keppa saman í 4x400 metra boðhlaupi, tvenndarkeppni í borðtennis og fjög- urra manna boðhlaupi í þríþraut svo eitthvað sé nefnt. Tvöfalt fleiri hinsegin íþróttamenn en nokkru sinni fyrr taka þátt á leik- unum. Þrír íþróttamenn sem höfðu komið út úr skápnum tóku þátt í Pek- ing 2008, 23 í London 2012 og 56 í Ríó 2016. Í ár eru íþróttamennirnir 121. Að þessu sögðu eru margir á því að endurhugsa þurfi Ólympíuleikana hvort sem það varði framkvæmd þeirra, undirbúning eða úthlutun. Ekki gangi að borg eftir borg verji milljörðum dala til að undirbúa leik- ana en hafi svo lítið upp úr því. Ein- hverjir vilja að hverjir leikar verði haldnir í mörgum löndum. Önnur hugmynd er að halda leikana alltaf á sama staðnum, þar sem ekki þarf að ráðast í miklar framkvæmdir til þess. Önnur hugmynd er að leikarnir flakki á milli nokkurra stórborga með reglulegu millibili. Flestar hugmynd- irnar stuðla að því að minnka umsvif alþjóðaólympíunefndarinnar sem margir telja löngu úrelta og sumir spyrja sig jafnvel hvort halda eigi Ól- ympíuleika yfir höfuð. Hin bandaríska Allyson Felix hyggst brjóta blað í sögu Ólympíuleikanna er hún tekur þátt í sínum fimmtu leikum. Þessi 35 ára gamla hlaupadrottn- ing er skráð til leiks í bæði 4x400 metra hlaupi kvenna og hinu nýja 4x400 metra kynjablandaða hlaupi. Vinni Bandaríkin til verðlauna í öðru þess- ara hlaupa mun Felix hafa unnið til flestra verð- launa allra kvenna í frjálsum íþróttum á Ólympíu- leikum, en hún hefur tryggt sér níu til þessa. Felix á nú þegar metið yfir flest gull, alls sex talsins. Í aðdraganda leikanna átti Felix erfitt með að finna sér stað til æfinga vegna kórónuveirunnar. Brá hún meðal annars á það ráð að æfa á götum Los Angeles-borgar þar sem hún býr. Felix þurfti að taka á honum stóra sínum til að tryggja sig inn á leikana en hún náði öðru sæti í 400 metra hlaupi eftir að hafa unnið sig upp um tvö sæti á síðustu 100 metrunum. Á síðustu árum hefur Felix gert sig gildandi í réttindabaráttu íþróttakvenna. Fyrir tveimur ár- um lét hún styrktaraðila sína hjá Nike heyra það í pistli fyrir New York Times vegna þess hvernig tekið er á því þar innanbúðar þegar íþróttakonur fara í leyfi vegna barnsburðar. „Ef við eignumst börn eigum við á hættu á því að tapa tekjum frá styrktaraðilum á meðan meðgöngunni stendur og eftir hana,“ sagði Felix. „Það er ein birtingarmynd íþróttaiðnaðar þar sem reglurnar eru settar af körlum, fyrir karla.“ Felix eignaðist dóttur, Camryn, í lok árs 2018. Sú tók á móti móður sinni þegar hún tryggði sér farseðilinn til Tókýó. Felix sagði við AFP að móðurhlutverkið hvetji hana til dáða á lokastigum ferilsins. „Mig langaði að sýna henni að, sama hvað, gerir þú hlutina af heilindum og gefst aldrei upp,“ sagði hún. Hinn 22 ára Noah Lyles gerði sér vonir um að keppa um verðlaun í bæði 100 og 200 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Tókýó. Hann átti hins vegar slæman dag á úrtöku- móti Bandaríkjanna í 100 metra hlaupinu og missti af sæti þar. Hann sýndi þó sitt rétta andlit viku síðar í 200 metra hlaupi þar sem hann sigraði á besta tíma ársins, 19,74 sek- úndum, og er til alls líklegur á leikunum. Lyles hefur talað opinskátt um glímu sína við þunglyndi í kjölfar morðsins á George Floyd í maí í fyrra. Lyles hafði áður barist við sjúkdóminn, en heilsu hans hrakaði vegna samkomutakmarkana og umræðunnar í kjölfar dauða Floyds. Á Twitter sagði Lyles að hann hefði tekið lyf við þunglyndi og það hefði verið ein besta ákvörðun sem hann hefði tekið lengi. „Síðan þá hef ég getað hugsað án þess að tilfinningin um að ekkert skipti máli sé undirliggjandi,“ sagði hann. Lyles hefur verið óhræddur við að láta skoðanir sínar í ljós í keppni. Í ágúst í fyrra klæddist Lyles svörtum hanska, lyfti hendi með krepptan hnefa og laut höfði fyrir hlaup í Mónakó. Þar vísaði hann í ódauðlegt látbragð þeirra Tommie Smith og John Carlos á verðlaunapallinum í Mexíkóborg á Ólympíuleikunum 1968. Lyles gerði hið sama fyrir 100 metra hlaupið á úr- tökumótinu og segist hvergi nærri hættur. „Við erum enn að deyja á götunum,“ sagði hann um svarta landa sína. Tennisleikarinn Novak Djokovic mæt- ir á sína fjórðu Ólympíuleika í Tókýó og hefur líklega aldrei átt meiri mögu- leika á sigri en nú. Hinn 34 ára Serbi hef- ur unnið fyrstu þrjú risamót ársins; Opna ástralska, Opna franska og Wimbeldon- meistaramótin. Vinni hann á leikunum nú og á síðasta risamóti ársins, Opna banda- ríska meistaramótinu, verður hann fyrsti karlinn og aðeins annar tennisleikari sögunnar til að ná hinni svokölluðu gullnu alslemmu. Steffi Graf vann öll fjögur risamót ársins og gull á Ólympíuleikunum í Seúl árið 1988. Djokovic vann fyrr í mánuðinum sitt 20. risamót á ferlinum þegar hann lagði Matteo Berrettini í úrslitaleik. Jafnaði hann þar með keppninauta sína, Rodger Federer og Rafael Nadal, í fjölda sigra á risamótum, en þeir þrír deila nú titlinum yfir þann karl sem hefur unn- ið flest slík mót. Er í raun ótrúlegt að þeir þrír sigursælustu frá upphafi hafi allir verið við toppinn síðasta áratug og til marks um yfir- burði þremenninganna. Djokovic þarf hins vegar ekki að hafa áhyggj- ur af þeim Federer og Nadal á leikunum í ár þar sem þeir eru frá vegna meiðsla og álags. Þá verður Dominic Thiem, sigurvegari Opna bandaríska meistaramótsins í fyrra, ekki held- ur meðal keppenda. Djokovic vann brons á Ól- ympíuleikunum 2008, lenti í fjórða sæti árið 2012 en tapaði í fyrstu umferð 2016. Þar til Djokovic tilkynnti fyrir rúmri viku að hann yrði með var ekki alls kostar ljóst að hann myndi mæta til Tókýó. Eftir að hafa unnið Wimbel- don-mótið í byrjun júlí sagði hann helmingslíkur á því. Hann væri óviss með að keppa undir þeim ströngu sóttvarnarreglum sem yrðu við lýði á leik- unum. Fjölskylda hans gæti ekki komið og horft á og hann gæti ekki haft með sér mikilvæga aðila úr teymi sínu. Hann lét þó til leiðast og sagðist á Twitter stoltur af því að keppa fyrir hönd Serbíu á leikunum. Hin 24 ára Bandaríkjakona Simone Bi- les sló í gegn á Ólympíuleikunum í Ríó fyrir fimm árum. Þar vann hún fjögur gull; í fjölþraut, liðakeppni, stökki og gólfæfingum. Síðan þá hefur hún ekki tapað keppni í fjölþraut og raunar ekki síðan 2013. Frá því ári hefur hún unnið til 26 verðlauna á heimsmeistaramótum, þar af 19 gullverðlauna. Ótrúlegir yfirburðir. Raunar hafa yfirburðirnir verið svo miklir að Biles lét setja mynd af geit aftan á búning sinn sem vísun í að hún sé sú besta allra tíma (e. G.O.A.T.: greatest of all-time). Einhverjir íþrótta- menn myndu fá á sig hrokastimpil fyrir slíkt en yfirburðir Biles hafa verið svo miklir síðustu ár að enginn kippir sér upp við þetta. Markmið Biles á leikunum í ár er eflaust að verða fyrsta kon- an til að verja gull sitt á leikunum í fjölþraut í meira en hálfa öld en Vera Caslavska gerði það síðast árið 1968. Þá gæti hún jafn- að Larisu Latynina með því að vinna til samtals níu gull- verðlauna á Ólympíuleikum. Til þess þarf hún að verja gullin fjögur frá því í Ríó og bæta við gulli á jafnvægisslá þar sem hún fékk brons fyrir fimm árum. Fáir myndu veðja gegn Biles enda vann hún til fimm gullverðlauna á heimsmeistaramótinu í Stuttgart fyrir tveimur árum. Í ár varð Biles sú fyrsta til að lenda í svokölluðu Yurchenko- stökki sem engin kona hafði áður reynt í keppni. Biles hefur þó látið í sér heyra varðandi stigagjöf stökksins, telur það vera mun erfiðara en stigin sem fást fyrir það segja til um. „Þeir vilja ekki að of langt sé á milli keppenda,“ sagði hún við New York Times. Fáar fimleikakonur hafa átt eins langan feril og Biles. Hafa allir gullverðlaunahafar í fjölþraut verið undir tvítugu síðan 1976. Það var því ákveðið reiðarslag fyrir Biles þegar leikunum var frestað í fyrra. „Mig langaði að gefast upp,“ sagði Biles á þessu ári en ákvað að láta slag standa þrátt fyrir að þurfa að þola eitt erfitt æfingaár til viðbótar áður en hún hættir eftir leikana. Geitin mætir til Tókýó AFP Næst gullna alslemman? AFP Íþróttakonur líka mæður AFP Lætur þunglyndi ekki stöðva sig

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.