Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Síða 32
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2021
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
L 206 cm Leður ct. 15 Verð 449.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 15 Verð 379.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 15 Verð 409.000,-
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Það er ýmislegt á þá lagt sem
ætla að fylgjast vel með Ólympíu-
leikunum í Tókýó. Tímamismunur
á milli borgarinnar og Íslands er
níu klukkustundir og því fer
keppni oftast fram að nóttu til eða
á morgnana að íslenskum tíma.
Ríkisútvarpið sýnir frá leik-
unum eins og venjan er og verður
samantektarþáttur þar sem farið
er yfir helstu atburði sýndur á
hverju kvöldi meðan á þeim stend-
ur. Vert er þó að fara yfir nokkrar
áhugaverðar greinar sem sýnt
verður frá í vikunni.
Í dag, sunnudag, mætast Frakk-
ar og Bandaríkjamenn klukkan
tólf á hádegi þar sem nokkrir af
bestu körfuboltamönnum NBA-
deildarinnar mæta til leiks. Rúm-
lega átta í fyrramálið munu svo lið
Spánar og Noregs leiða saman
hesta sína á handboltavellinum. Á
þriðjudagsmorgun fer fram liða-
keppni kvenna í fimleikum þar
sem Simone Biles, sem fjallað er
um hér í blaðinu, mætir til leiks
með liði Bandaríkjanna.
Á miðvikudagsmorgun verður
sýnt frá nýrri grein á Ólympíu-
leikunum, brimbrettakeppni, þeg-
ar úrslit í kvennaflokki fara fram.
Aðfaranótt föstudags hefst svo
keppni í frjálsum íþróttum og
stendur yfir út leikana. Sýnt verð-
ur frá keppni bæði að nóttu til og
á morgnana. Allyson Felix, sem
fjallað er um hér í blaðinu, mun
keppa með liði Bandaríkjanna í
undanriðlum nýs kynjablandaðs
4x400 metra hlaups.
Af nógu er að taka og geta
íþróttaþyrstir nátthrafnar og
morgunhanar vel við unað næstu
tvær vikurnar.
AFP
Leikar nátthrafnanna
Ólympíuleikarnir eru farnir af stað og verður nóg um beinar útsendingar frá
leikunum. Tímamismunur gæti þó gert einhverjum erfitt fyrir.
Keppni í handbolta á leikunum
ætti að verða æsispennandi.
Spánverjar mæta Norð-
mönnum á mánudagsmorgun.
Klarinettuleikarinn Benny
Goodman settist niður með Jó-
hönnu Kristjónsdóttur blaða-
manni á Hótel Sögu sumarið
1981, einum sex árum eftir að
hann hafði spilað á Listahátíð og
birtist afraksturinn í blaðinu
sunnudaginn 19. júlí. „Hann kem-
ur á móti mér í forsalnum á
Sögu, léttur á fæti og glaðlegur,
fagnar mér eins og gömlum vini
þótt við höfum aldrei sést,“ skrif-
ar Jóhanna.
Goodman hafði verið að veiða
lax í Víðidalsá, en laxveiðarnar
voru ekki efni viðtalsins heldur
ævi hans og tónlistin. Foreldrar
hans voru rússneskir gyðingar,
sem fluttu til Bandaríkjanna, nán-
ar tiltekið Chicago.
„Chicago bernsku minnar var
mikill sælureitur bófa … Al Ca-
pone og fleiri harðsoðnir náung-
ar upp á sitt bezta. En því var nú
svo varið, að þessir borgarar
voru ekkert að hrella venjulega
borgara,“ segir Goodman. „Það
er dálítil kaldhæðni í því að á
þessum tíma var Chicago miklu
öruggari en núna.“
Goodman segir tónlistina eiga
hug sinn allan, hvort sem hann sé
að spila fyrir fólk eða blómin sín.
Djassleikarinn segist eiga góða
vini á Íslandi og bætir við: „Veðr-
áttan hér dregur ekki úr mér
kjarkinn, það skiptir mestu ef
fólkið er hlýtt.“
GAMLA FRÉTTIN
Spilar fyrir
fólk og
blóm
Benny Goodman á Keflavíkurflugvelli mættur til Íslands í laxveiði.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Justin Timberlake
söngvarinn sem ungur maður.
Ásthildur Ingibjörg Sigurjónsdóttir
starfsmaður á El Gordito á Selfossi.
Julie Garner
leikkona í Ozark-þáttunum.