Fiskifréttir


Fiskifréttir - 20.02.1998, Page 1

Fiskifréttir - 20.02.1998, Page 1
ISSN 1017-3609 T R 0 L L B L A K K I R] -The blue line- Með hertri skífu Mtu KEFLALE6UM Ai.(.£.D.fl.nj ÖT6ERÐARVÖRUR Óseyrarbraut 4 • 220 Hafnarfjörður Sími: 565 3950 • Fax: 565 3952 J I FRETTIR 7. tbl. 16. árg. föstudagur 20. febrúar 1998 Slippfélagið Málningarverksmiöja SIMI: 588 8000 Hugmynd Sigurðar Einarssonar: Útgerðin reki að- stoðarskip tyrir loðnu- flotann Loðnan hefur að þessu sinni látið bíða lengur eftir sér en oftast áður, en nú í vikunni þóttust menn sjá merki þess að loðnan væri loksins mætt. Þegar Fiskifréttir fóru í prentum var þó enginn kraftur kominn í veiðarnar. (Mynd/Fiskifréttir: Hjörvar Sigurjónsson). „Ég tel að það gæti komið til greina fyrir þá sem stunda loðnuveiðar að reka eftirlits- og hjálparskip fyrir loðnu- flotann. Skipið myndi fylgjast með loðnugöngum og reyna að finna nýjar þannig að allur flotinn þyrfti ekki að leita. Þetta skip gæti jafnframt að- stoðað flotann ef á þyrfti að halda, jafnvel haft lækni um borð, dregið skip í land, boð- ið upp á köfunarþjónustu o.fl., sérstaklega ef veiðar eru stundaðar langt frá landi. A skipinu gæti líka verið maður frá Hafrannsóknastofnun, sem gæti þá séð um að loka svæðum ef á þyrfti að halda vegna smáloðnu.“ Þetta segir Sigurður Einarsson loðnuútgerðarmaður og forstjóri ísfélags Vestmannaeyja í grein í Fiskifréttum í dag. Sigurður víkur einnig að nýtingu loðnustofnsins og varar við því að gengið sé of nærri honum. Hann telur að skilja þurfi eftir meira en þau 400 þús. tonn sem fiskifræðingar miða við á hverri vertíð og álítur að ástæða þess hve stórir árgangar hafi kom- ið á undanförnum árum sé ekki síst sú, hve mikið hefur fengið að hrygna. Þá er það skoðun hans að ekki sé hægt að treysta því að loðnuskipstjórar verndi smáloðn- una og hafi Hafrannsóknastofnun verið alltof sein að loka smáloðnu- svæðum og ekki haft þau nógu lengi lokuð. Loks hvetur hann til þess að áhrif flottrollsveiða á loðn- una verði rannsökuð betur og slík- ar veiðar bannaðar, ef líkindi séu á því að þær geti valdið tjóni á stofn- inum. Sjá Skoðun bls. 5. Afleiðingar afnáms línutvöföldunarinnar að koma íIjós: Flótti úr línuútgerðinni — þorskafli á línu hjá aflamarksskipum hefur minnkað um helming á tveimur árum þrátt fyrir að afli einstakra skipa hafi stóraukist Þorskveiði á línu hefur dregist verulega saman á undanförn- um þremur árum. Á árinu 1995 nam aflinn samtals 45.227 tonnum en á sl. ári var hann kominn niður í rétt rúm 31.000 tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags Islands. Sam- drátturinn í tonnum talið er rúm 15.200 tonn eða alls 31,5%. Hrun hefur orðið í línuveiði á þorski í aflamarkskerfínu en krókabátar hafa bætt sig um 4% á þessum tíma. í grein, sem Örn Pálsson fram- I smábátamanna,ritaðiíFiskifréttir kvæmdastjóri Landssambands I í síðustu viku var vakin athygli á því hve mikið veiðar á línuþorski í aflamarki hefðu dregist saman. Samkvæmt upplýsingum frá Fiski- félagi íslands nam þorskafli á línu innan aflamarkskerfisins alls 31.699 tonnum árið 1995 og var hlutdeild hans í heildarþorskaflan- um þá 18,9%. A sl. ári var aflinn hins vegar ekki nema 16.911 tonn eða 8,6% heildarþorskaflans. Örn segir í grein sinni að orsakanna fyrir þessum samdrætti sé fyrst og fremst að leita í afnámi línutvö- földunarinnar. Þar hafi stjórnvöld gert reginmistök. Ef litið er á þorskafla línubáta á aflamarki á árunum 1995-1997 kemur í ljós að aflinn hefur minnk- að um tæpan helming eða úr tæp- um 31.700 tonnum í rúm 16.900 tonn. Á sama tíma hefur línuafli krókabátanna aukist úr rúmum I húsi NAUST marine HF. að Skeiöarási 3 i Garöabæ er 400 fermetra iðnaðarhúsnæði til leigu frá 2. mars 1998. Nánari upplýsingar á skrifstofunni eða í síma 565 8080. 13.500 tonnum í tæp 14.100 tonn eða um 4%. Á sl. ári var afli krókabátanna rúm 45% af heildarþorskaflanum sem veiddur var á línu. Sjá nánar LiÁ bls. 3 ./ % SKIPAÞJÓNUSTA tsso Olíufélagið hf

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.