Fiskifréttir


Fiskifréttir - 20.02.1998, Síða 2

Fiskifréttir - 20.02.1998, Síða 2
2 FISKIFRÉTTIR föstudagur 20. febrúar 1998 Fiskmarkaðir Fiskmarkaður Snæfelisness: Seldu 275 tn í verkfallinu — Ég get ekki kvartað yfir verk- fallsdögunum. A meðan verkfall- inu stóð þá seldum við 275 tonn af fiski, sem smábátar lönduðu, og meðalverðið var rúmar 100 krónur fyrir kílóið. Uppistaða aflans var þorskur og meðalverð á óslægðum þorski í verkfallinu var 97,55 kr/ kg, sagði Þórður Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæ- fellsness í Ólafsvík, er Fiskifréttir slógu á þráðinn til hans. Þórður segir aflabrögðin hjá bátunum hafa verið með ólíkind- um góð þá daga sem gefið hefur á sjó. Til marks um það nefnir hann að sl. sunnudag hafi smábáturinn Anna Ólafs GK fengið rúm sjö tonn eftir daginn og hafi meirihluti aflans verið þorskur sem vó fimm kíló eða meira. Þá hafi dragnótar- báturinn Steinunn SH farið í stutta veiðiferð sl. mánudag og hafi afl- inn verið 25 tonn eftir aðeins fjóra og hálfan tíma. Ysuverð hefur verið mjög hátt á mörkuðunum síðustu daga, alls hafa verið seld 25 tonn af óslægðri ýsu hjá Fiskmarkaði Snæfellsness og hafi meðalverðið verið rúmar 140 kr/kg. Allir íslenskir markaðir Vikan 8.-14. febr. 1998 Tegund Hæsta verð (kr/kg) Lægsta verð (kr/kg) Meðal- verð (kr/kg) Magn (kg) Annar afli 1.700,00 46,00 108,90 2.656 Annar flatf. 30,00 30,00 30,00 90 Bland. 47,00 5,00 44,42 277 Gellur 325,00 225,00 290,44 425 Grálúða 50,00 50,00 50,00 4 Grásl. 142,00 30,00 42,84 4.662 Hlýri 102,00 80,00 87,00 1.463 Hrogn 225,00 15,00 150,43 2.585 Hákarl 900,00 100,00 500,00 10 Karfi 119,00 13,00 102,18 8.095 Keila 76,00 15,00 62,40 7.921 Kinnar 180,00 112,00 139,49 172 Langa 90,00 8,00 65,10 7.489 Langlúra 119,00 100,00 111,64 2.610 Litl.karfi 14,00 5,00 7,72 235 Lúða 715,00 100,00 485,76 553 Lýsa 48,00 23,00 39,30 1.944 Rauðm. 192,00 100,00 151,50 547 Rækja 85,00 82,00 83,76 2.700 Steinb./ hlýri 80,00 75,00 76,04 168 Sandkoli 86,00 35,00 80,48 6.929 Skarkoli 190,00 11,00 150,66 7.001 Skata 240,00 130,00 213,25 143 Skrápfl. 60,00 40,00 42,84 1.386 Skötusel. 225,00 100,00 190,38 1.584 Steinb. 120,00 50,00 84,26 79.161 Stórkj. 100,00 79,00 80,28 247 Sólkoli 245,00 140,00 220,40 400 Tindask. 10,00 5,00 6,90 10.422 Ufsi 71,00 26,00 56,21 98.708 Undm.f. 145,00 51,00 90,38 21.947 Svartfugl 40,00 10,00 37,31 78 Ýsa 177,00 50,00 127,70 181.891 Þorskal. 30,00 30,00 30,00 1.461 Þorskur 143,00 36,00 99,08 871.617 1.333.908 Elliði GK. (Mynd: Snorri Snorrason). Guðlaugur Jónsson skipstjóri á Elliða GK Það skýríst um helgina hvort loðnan skilar sér Eftir að sjómannaverkfallinu var frestað fram til 15. mars nk. hefur loðnuskipaflotinn leitað að loðnu fyrir austan land en árangur var frekar takmarkaður nú í byrjun vikunnar þótt fréttir um loðnuafia við Gerpi undir kvöld á mánudag gæfu mönnum tilefni til bjartsýni. Það eru helst flottrollsskipin, sem náð hafa árangri á loðnuveiðunum fram að þessu, en loðnan hefur yfirleitt staðið djúpt og verið illveiðanleg í nót. Það er helst að skipin, sem útbúin eru með djúpum nótum, hafi náð nokkrum þokkalegum köstum. Sjómenn og útgerðarmenn loðnuskip- anna, svo ekki sé talað um forráðamenn loðnuverksmiðja og frystihúsa, hafa beðið með óþreyju eftir því að fyrsta stóra loðnugangan gerði vart við sig en nokkur undanfarin ár hefur loðnuveiðin yfirleitt hafist af krafti á tímabilinu frá 20. janúar fram undir 10. febrúar þótt þess séu reyndar dæmi að vertíðin hafi ekki hafist fyrr en um eða upp úr miðjum febrúar. - Við komum á miðin í bræl- unni sl. laugardag og erum nú á landleið með um 550 til 600 tonn af loðnu. Við fengum þennan afla í fimm holum í Reyðarfjarð- ardjúpi og vegna veðurútlitsins ætlum við að landa honum á Seyðisfirði í kvöld. Ef veðurspá- in hefði verið hagstæð þá hefðum við siglt með aflann til Akraness, sagði Guðlaugur Jónsson, skip- stjóri á Elliða GK, er Fiskifréttir ræddu við hann sl. mánudag. Loðnan að skríða upp á grunnið við Gerpi? Að sögn Guðlaugs voru fimm flottrollsskip að veiðum í Reyð- arfjarðadýpinu og nokkur nóta- skip. Afli flottrollsskipanna var þokkalegur en árangurinn hefur ekki verið góður hjá nótaskipun- um fram að þessu. — Það fengu nokkur skip upp í 100 til 200 tonna köst í djúpar næt- ur en flest voru með mun minni afla. Ég er búinn að stunda loðnu- veiðar frá árinu 1970 og ég held að það sé orðið óhætt að fullyrða að það er engin vertíð eins. Stóra torf- an, sem hafrannsóknaskipið fann í verkfallinu, hefur enn ekki komið fram og á þeim fáu stöðum, sem vart hefur orðið við loðnu, eru þetta litlar torfur sem gefið hafa litla veiði. I fyrra byrjaði loðnan að veiðast af krafti 1. febrúar og um miðjan mánuðinn vorum við komnir miklu sunnar á veiði- svæðið. Núna virðist loðnan enn vera mjög dreifð og hún hefur hvergi fundist í miklu magni. Þó er flotinn búinn að kemba svæðið frá Ingólfshöfða og austur og norður um og tvö skip, Gullberg VE og Gígja VE, urðu nú í nótt vör við loðnu uppi undir yfirborðinu út af Gerpi. Þær lóðningar skiluðu að ég held lítilli veiði, segir Guðlaugur en þess má geta að skömmu eftir að Fiskifréttir ræddu við hann náði ísleifur VE að fá 300 tonna loðnu- kast í grunna nót skammt undan Gerpi og voru menn þá að vonast til þess að loðnan væri að skríða upp á grunnið. Er við ræddum við Guðlaug að nýju í hádeginu sl. þriðjudag höfðu þó ekki borist fréttir að því að fleiri nótaskip hefðu fengið þarna góðan afla. Guðlaugur sagði að kaldaskítur væri á miðunum og það myndi væntanlega ekki skýrast fyrr en um helgina hvort loðnan væri að skila sér af krafti upp á grunnið. Stór og falleg vertíðarloðna Að sögn Guðlaugs var hrogna- fylling loðnunnar, sem veiddist um síðustu helgi, töluvert mikil og vonir voru bundnar við að hægt yrði að frysta hana fyrir Japans- markað. — Beitir NK, sem var að veið- um í Reyðarfjarðardýpinu, land- aði loðnu á mánudagsmorgun sem var með tæplega 13% hrognafyll- ingu en fyrir helgina var Hólma- borgin með loðnu sem mældist með 10% hrognafyllingu. í loðn- unni, sem hafrannsóknaskipið fann í verkfallinu, var hrognafyll- ingin 12% þannig að ástandið nú er nokkuð ólíkt því sem menn eiga að venjast á þessum árstíma. Guðlaugur segir að loðnan, sem fékkst í Reyðarfjarðardýp- inu, hafi verið stór og falleg. — Þetta er sannkölluð vertíð- arloðna og það stendur til að reyna að frysta hana hjá Strand- arsíld og Dvergasteini á Seyðis- firði. Við löndum hjá SR mjöli hf. og það kemur fyrst í ljós við flokkunina hvort japönsku eftir- litsmennirnir telji loðnuna henta fyrir Japansmarkaðinn. Annars verður hún vafalaust fryst fyrir Rússlandsmarkað, segir Guð- laugur en er Fiskifréttir ræddu við hann var ekki vitað til þess að breytingar hefðu orðið á hráefn- isverðinu. Greiddar hafa verið 8500 krónur fyrir loðnutonnið til bræðslu og fyrir frystingarloðn- una hafa verið greiddar 12 krónur fyrir kflóið. — Það var reyndar einhver að tala um það í dag að verðið á loðnu til bræðslu hefði verið lækkað í 6300 krónur en mér finnst ótrúlegt að það sé rétt. Það er enginn kraftur kominn í veið- arnar og í ljósi þess væri mjög óeðlilegt að lækka verðið, segir Guðlaugur Jónsson. Útgefandi: Fróði hf. Héðínshúsmu. Seijavegi 2, 101 Reykjavík Pósthólf 8820,128 Reykjavík Sími: 515 5500 Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Guðjón Einarsson Rítstjórnarfulítrúi: Eiríkur St. Eiriksson Ljósmyndarar: Gunnar Gunnarsson Hreinn Hreinsson Auglýsi ngastjóri: Hertha Árnadóttír Ritstjórn: Sími 515 5610 Teiefax 515 5599 fiskífretti rfa frodi .is Augíýsingar: Sími515 5558 Telefax 515 5599 Áskrift og innheimta: Simi 515 5555 Telefax 515 5599 Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson Framkvcemdastjori: Halldóra Viktorsdóttir Prentvinnsia: Prentsmiðjan Grafík hf. Áskriftarverð: 996 kr. mánaðarlega Hvert tölublað í áskrift 249 kr. m.vsk. Þeir sem greiða áskrift með greiðslu- korti fá 10% afslátt, þannig að áskriftar- verð verður 896 kr. fyrir ofangreint tímabil og hvert tölubiað þá 224 kr. Lausasöiuverð 349 kr, Allt verð m.vsk. Handbókín SJÁVARFRÉTTIR fylgir áskrift að Fiskifrettum, en hún kemur út í byrjun september ár hvert. ISSN 1017-3609

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.