Fiskifréttir - 20.02.1998, Qupperneq 3
FISKIFRÉTTIR föstudagur 20. febrúar 1998
3
Línuveiðar
Þorskatti á línu hefur minnkað um þríðjung frá 1995:
Stefnir saltfiskmörk-
uðunumívoða
— segir Jón Ásbjörnsson, fiskverkandi og
saltfiskútflytjandi, um afnám línutvöföldunarinnar
Þegar línutvöföldunin var afnumin á árinu 1996 bentu útgerðarmenn
línuskipa og saltflskverkendur á að þessi ráðstöfun gæti leitt til byggða-
röskunar auk þess sem hagsmunum fslendinga á saltfiskmörkuðum væri
stefnt í tvísýnu. Jón Ásbjörnsson, fiskverkandi í Reykjavík og stór útflytj-
andi á saltfiski, segir í samtali við Fiskifréttir að ótti manna hafi ekki
reynst ástæðulaus. Vandræðaástand ríki nú þegar á dýrustu saltfisk-
mörkuðum íslendinga vegna skorts á línuþorski frá íslandi.
— Það hafa veríð vaxandi erfið-
leikar á mörkuðunum, einkum á
Norður-Spáni, Norður-Ítalíu og í
Grikklandi, og það líður ekki sá
dagur að kaupendur á þessum
markaðssvæðum hafi ekki sam-
band við mig og biðji um meiri
fisk. Við höfum verið með allar
klær úti til þess að útvega línu-
þorsk en á sama tíma sem aflinn
hefur stóraukist á hvern bala hefur
framboðið minnkað og verðið
hækkað, segir Jón en í máli hans
kemur fram að þótt þorskur veidd-
ur í dragnót, net og jafnvel troll sé
oft á tíðum úrvalshráefni og úr því
sé hægt að gera jafngóðan saltfisk
og úr þorski veiddum á línu, þá
Notadar síldar/makríl- og
loðnunætur til sölu
Síldar/makríl- nót 330 fm x 90 fm frá 1982, lítið notuð.
Loðnunót 300 fm x 90 fm frá 1986, lítið notuð.
Næturnar eru til skoðunar í Færeyjum og til afhendingar strax.
Nánari upplýsingar gefur: Vótlin A/S
FO-100 Torshavn
Sími: 00298-14391
Fax: 00298-13319
Hafið samband við Arnold Berg
geti þessi fiskur ekki keppt við
línuþorskinn hvað varðar lit á fisk-
holdinu.
— Staðreyndin er sú að króka-
fiskurinn er mun hvítari á holdið
en neta- og dragnótafiskurinn og
hann er jafnframt mun smærri. A
dýrustu saltfiskmörkuðunum vill
fólk fá hvítan og smáan saltfisk. í
Grikklandi er t.a.m. aðeins ein
stærð, sem á upp á pallborðið, en
það er 800-1200 gramma flattur
fiskur. Þetta er þorskur sem er tvö
kíló slægður og með haus. Skortur
á þessum fiski hefur stefnt mörk-
uðunum í voða og ef afla krókabát-
anna nyti ekki við þá værum við í
mjög alvarlegum vandræðum, seg-
ir Jón Ásbjörnsson. Meðal þeirra,
sem börðust hvað harðast fyrir af-
námi línutvöföldunarinnar, var
Kristján Ragnarsson, formaður
LIU, og hann segist ekki í vafa um
að þetta hafi verið skynsamleg ráð-
stöfun.
— Það eru engir hæfari til að
meta það með hvaða veiðarfærum
er best að sækja aflann en viðkom-
andi útgerðarmenn. Línuútgerð
hefur jafnan þótt dýr útgerðarmáti
og það var í hæsta máta óeðlilegt
að beina sókninni yfir línuútgerð í
svartasta skammdeginu með til-
heyrandi kostnaði eins og gert var
á meðan línutvöföldunin var til
staðar. Nú eru menn frjálsir að því
að róa með línu ef þeir kjósa það
og komið hefur í ljós að það er
hægt að fá góðan línuafla á öðrum
árstíma en yfir dimmustu vetrar-
mánuðina. Hvað varðar saltfisk-
markaðina þá hefur sú breyting
orðið á gæði þorsksins, sem veidd-
ur er í net, hafa aukist til muna.
Sóknin hefur breyst. Menn taka
orðið netin upp fyrir helgar og ef
veðurútlit er slæmt og fyrir vikið fá
menn betra hráefni til saltfisk-
vinnslunnar, segir Kristján Ragn-
SKOVERKSMIÐJAN TAP
Línuveiðar Sighvats GK í janúarz
337 tonna afíi að
verðmæti 31 millj. kr.
— góður hásetahlutur þrátt fyrir
bullandi kvótabrask, segir
útgerðarmaðurinn
Línuafli hjá beitningarvélabátum var mjög góður í janúar og eftir því
sem Fiskifréttir komast næst var Sighvatur GK aflahæsti báturinn með
rúmlega 337 tonna afla að verðmæti um 31 milljón króna. Vísir hf. í
Grindavík gerir út fjóra báta til línuveiða og voru þeir samtals með
rúmlega 1078 tonna afla í janúar að verðmæti 97,4 milljónir króna. Að
sögn Péturs Pálssonar hjá Vísi hf. var hásetahluturinn 443-650 þúsund
krónur eftir mánuðinn hjá áhöfnum skipanna þrátt fyrir botnlaust kvóta-
brask útgerðarinnar en samkvæmt samningum við áhafnirnar eru
greiddar um 75-80 kr/kg fyrir milliþorsk en uþp í um 100 kr/kg fyrir
stærsta þorskinn. Meðalverð fyrir allan afla var hins vegar frá 87,58
kr/kg upp í 91.72 kr/kg í janúar.
Auk Sighvats GK gerir Vísir hf.
út bátana Fjölni GK, Frey GK og
Hrungni GK til línuveiða. Fjölnir
var með 219,4 tonna afla að verð-
mæti 19,2 millj. kr, Freyr var með
249,6 tonn að verðmæti 22,7 millj.
kr og Hrungnir GK var með 271,5
tonn að verðmæti 24,5 millj. kr.
Að sögn Unnsteins Líndal, skip-
stjóra á Sighvati GK, voru afla-
brögðin í janúar með hreinum
ólíkindum. Línuskipin voru lengst
af á veiðum í Kolluál og á Jökul-
tungunni á þessu tímabili og fengu
skipverjar á Sighvati GK aflann í
fjórum veiðiferðum á alls 24 dög-
um og var meðalaflinn 14 tonn á
dag. Ríflega 60% aflans var þorsk-
ur, um 80 tonn veiddust af ýsu en
einnig nokkuð af tegundum eins
og keilu og löngu og nam meðal-
verðið 91,72 kr/kg en allur ýsuafl-
inn var seldur á fiskmarkaði.
— Besti afli, sem ég veit til að
hafi fengist á línuskipi í janúar-
mánuði, er um 370 tonn en þar var
áhöfnin á Tjaldi SH að verki fyrir
nokkrum árum. Þá var reyndar
ekkert stoppað á milli veiðiferða
en nú erum við alltaf sólarhring í
landi á milli túra, segir Unnsteinn
en er Fiskifréttir ræddu við hann
var Sighvatur GK á landleið úr
fyrstu veiðiferðinni eftir verkfallið
með samtals 55 tonn af fiski eftir
fjóra daga á veiðum.
STYRKIR VIMULAUSA ÆSKU
Sterkir og
Góðir!
SKOVERKSMIÐJAN TAP
Eskiholt 23 • 210 Garðabær
Sími 565 9424 • Fax 565 9424