Fiskifréttir - 20.02.1998, Side 8
8
FISKIFRÉTTIR föstudagur 20. febrúar 1998
Endurbætur fiskiskipa
Ísleífur VE var endurbættur fyrír 200
milljónir króna
— helmingi kraftmeiri vél, öfíugrí
búnaður, lenging og fíeira
„Við erum mjög ánægðir með endurbæturnar á skipinu. Meginbreyt-
ingin er sú, að nú erum við komnir með nýja og helmingi öflugri aðalvél en
áður, stærri kraftblökk, aflmeiri hliðarskrúfur, nýtt stýri og stýrisvél, —
með öðrum orðum mun kraftmeira skip. Reyndar fann ég nú ekki neitt
sérstaklega fyrir því að skipið skorti afl fyrir, en það var fyrir löngu orðið
Ijóst, að þörf var á því að skipta aðalvélinni út. Hún var orðinn meira en
tuttugu ára gömul og orðin nokkuð bilanagjörn. Með þessum endurbót-
um ætti rekstraröryggið að aukast til muna,“ sagði Gunnar Jónsson
skipstjóri nótaskipsins ísleifs VE í samtali við Fiskfréttir, en skipið kom
úr umfangsmiklum breytingum í Færeyjum í síðustu viku, rétt í þann
mund sem fréttist af því að loðnan
væri loksins fundin úti af Suðaust-
urlandi. Eigendur ísleifs VE eru
tveir, Gunnar skipstjóri og Leifur
Ársælsson.
ísleifur VE kemur til Eyja eftir endurbæturnar, sem fram fóru í Skála
skipasmíðastöðinni í Færeyjum. (Myndir/Fiskifréttir: Guðm. Sigfús-
son).
Bátnum var slegið út að aftan.
búnaður er keyptur af Vélum og
skipum ehf.
Af öðrum vélbúnaði má nefna
að ný 700-800 hestafla Caterpillar
ljósavél frá Heklu hf. var sett í
skipið. Komið var fyrir nýrri 600
hestaafla hliðarskrúfu að aftan frá
Ulstein auk þess sem hliðarskrúf-
an að framan var lagfærð svo hægt
væri að keyra hana með meira afli
en áður. Sett var nýtt Beckers stýri
og stýrisvél með tveimur öflugum
mótorum. Keypt var ný og stærri
kraftblökk frá Karmöy.
Byggt var stórt og mikið mótor-
rými á aðalþilfari undir hvalbakn-
um. Þar eru 11-12 mótorar sem
knýja dælur. Önnur gamla ljósa-
vélin var einnig færð fram og hval-
bakurinn allur einangraður. Öll
spil eru nú rafknúin enda raf-
magnsframleiðslugetan um borð
miklu meiri en áður með tilkomu
stærri véla. Þá var smíðaður nýr
sjúkraklefi og ýmsar lagfæringar
gerðar neðanþilja. Eina nýja tækið
sem sett var í brúna var Furuno
straumlogg frá Brimrúnu. Skipið
var málað með Hempels málningu
frá Slippfélaginu málningarverk-
smiðju.
Slegið út að aftan
Af öðrum endurbótum má
nefna að skipið var lengt um tvo
metra. Skipinu var slegið út að aft-
an þannig að það er nú jafnbreitt
aftur úr. Nótakassinn var stækkað-
ur mikið og nótakrani fluttur til. í
kjölfar breytinganna og vélaskipt-
anna skapast nú möguleikar til
þess að stunda flottrollsveiðar, en
Gunnar segist í augnablikinu hafa
takmarkaðan áhuga á slíku. Hann
hafi ótrú á flottrollinu, sérstaklega
á síldveiðum. Þar að auki sé skipið
ekki með flottrollstromlu eða
nógu sterk spil fyrir flottroll. Þeir
muni því varla fara á flottroll í
bráð.
Þótt ísleifur VE hafi verið frá
veiðum í fjóra og hálfan mánuð
vegna endurbótanna hefur útgerð-
in ekki orðið fyrir neinum skakka-
föllum vegna óveidds kvóta. „Við
höfum ekki misst af neinu stóru
hingað til. Við erum með tvo sfld-
arkvóta sem við leigðum frá okk-
ur. Þá höfum við 2,5% af heildar-
loðnukvótanum sem þýðir tæp 25
þúsund tonn á yfirstandandi ver-
tíð. Við veiddum 10 þúsund tonn af
kvótanum síðastliðið sumar og eig-
um því tæp 15 þúsund tonn eftir.
Ég neita því ekki að við vorum
orðnir dálítið órólegir undir það
síðasta úti í Færeyjum vegna loðn-
unnar og verkfallsins, en það má
segja að við höfum komist heim í
tæka tíð. Hins vegar er ljóst að ef
svo illa fer að verkfall skelli á að
nýju 15. mars næstkomandi mun-
um við ekki ná að klára loðnukvót-
ann okkar. Við verðum að vona að
deilan leysist fyrir þann tíma,“
sagði Gunnar Jónsson.
Endurbæturnar á ísleifi VE fóru
fram í Skála skipasmiðju í Færeyj-
um, en þar var skipið einmitt smíð-
að árið 1976. Það var keypt hingað
til lands árið 1981 og lengt um 8
metra árið 1993. Vinna við breyt-
ingarnar nú tók fjóra og hálfan
mánuð og kvaðst Gunnar ánægður
með það verk sem færeyska skipa-
smíðastöðin skilaði. Um hönnun-
arvinnu sá Skipsteknisk í Noregi.
Heildarkostnaður við endurbæt-
urnar nemur um 200 milljónum
króna, þar af er um helmingur
vegna véla- og tækjakaupa og hinn
helmingurinn vegna vinnu og efn-
iskostnaðar.
Helmingi kraftmeiri vél
Gamla aðalvélin í skipinu var
Félagar í útgerðinni: Leifur Ársælsson og Gunnar Jónsson skipstjóri.
1.540 hestöfl (1133 kW) af gerðinni
Nohab Polar. Nýja vélin er Warts-
ila Vaasa 6R32 E, tvöfalt aflmeiri
en sú eldri eða 3.345 hestöfl (2.640
kW) miðað 750 snúninga á mín-
útu. Ásrafall er af gerðinni
LSA52D5/4P, 1500kvA frá Leroy
Somer. Skrúfubúnaður er frá
Wártsila NSD, Noregi. Gír SCV
620-P440. Þvermál skrúfu er 3000
m/m. Skrúfuhringur er af gerðinni
FN 3000/50. Stjórnbúnaður fyrir
vél og vélbúnað er af gerðinni
Wichmatic 2. Allur þessi nýi vél-
WÁRTSILÁ A ISLANDI
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með skipið.
Aðalvél skipsins er fra’Wártsilá NSD
og er af gerðinni 6R32-E 3345 hö.
Einnig er niðurfærslugír og skrúfubúnaður
Á V, .frájVVártsilá’NSD.
VÉLAR SKIP ©DoO,
Fiskislóð 137A - 101 Reykjavík - Sími 562 0095 - Fax 562 1095