Fiskifréttir - 05.03.2004, Side 8
8
FISKIFRÉTTIR 5. mars 2004
FRÉTTIR
Skinnfiskur ehf. í Sandgerði:
Brettin framleidd úr fiskfarsi!
— um 20 þúsund tonn af dýrafóðri úr fiskúrgangi framleidd á ári
Úr vinnslusal Skinnfisks. Krani í loftinu er að sækja fullfrosna vöru í frystitæki og fer með hana í sjálf-
virkan brettastaflara sem sést fjærst á myndinni.
Skinnfiskur ehf. í Sandgerði er eina fyrirtækið hér á landi sem
framleiðir dýrafóður úr fiskúrgangi til útflutnings. Framleiðslan
nemur um 20 þúsund tonnum á ári en hráefnið er aðallega bein og
beingarðar sem falla til frá fiskvinnsluhúsum á suðvesturhomi lands-
ins. „Með þessu tekst okkur að skapa verðmæti úr fiskúrgangi en
framleiðsla okkar skilar heldur meiri útflutningstekjum hlutfallslega
í þjóðarbúið en t.d. beinamjöl,“ sagði Ari Leifsson, framkvæmda-
stjóri og einn af eigendum Skinnfisks, í samtali við Fiskifréttir.
Skinnfiskur hefur verið starf-
andi frá árinu 1997 en félagið tók
þá á leigu því sem næst fokhelt hús
í Sandgerði sem lengi hafði staðið
autt. Starfsemin fer fram á rúmlega
tvö þúsund fermetrum. Ari sagði
að það hefði ráðið úrslitum að
starfseminni var valinn staður í
Sandgerði að í húsinu hefði verið
um 1.700-1.800 tonna frysti-
geymsla. Einnig hafa þeir frysti-
geymslu gamla Miðness til ráðstöf-
unar. Tólf manns starfa hjá Skinn-
fiski og er unnið á vöktum.
Hakkað og fryst
Ari sagði að miklu máli skipti að
hráefnið væri ferskt og er því safn-
að saman daglega frá ýmsum stöð-
um. Þegar það kemur í verksmiðj-
una er það flokkað. Úrgangur úr
helstu tegundum eins og þorski,
ýsu, steinbíti, karfa og ufsa er
flokkaður sérstaklega en allur flat-
fiskur er flokkaður í einn flokk.
Aðarar tegundir eru yfirleitt flokk-
aðar saman. Um fimm til sex mis-
munandi afurðir er að ræða. Tals-
vert fiskhold fylgir með beingarð-
inum eins og gefur að skilja en það
er þó misjafnt hve mikið það er.
Framleiðslan fer þannig fram að
fyrst fer úrgangurinn í gegnum
hakkara þar sem beinin eru mulin
mélinu smærra. Næst fer hakkið í
blandara þar sem hrært er í því þar
til það verður að farsi. Engum efn-
um er blandað saman við. Farsinu
er loks dælt inn í frystitæki og það
fryst í pönnum í 40 kílóa blokkir.
Sterkari en trébretti
Ekki þarf að setja blokkirnar í
umbúðir en þeim er raðað á bretti
og plastborði bundinn yfir við út-
skipun. Athygli vekur að brettin
eru búin til úr fiskfarsinu sjálfu en
ekki plasti eða tré eins og venja er!
Ari sagði að þessi aðferð væri ekki
alveg óþekkt annars staðar en hann
vissi þó ekki mörg dæmi þess að
þetta væri gert. „Við byrjuðum að
framleiða bretti úr fiskfarsinu þeg-
ar á árinu 1998. Það gefur auga
leið að þetta sparar flutningskostn-
að og auðveldar flutninga. Brettin
eru svo notuð í dýrafóður þegar
þau eru komin á áfangastað ásamt
annarri framleiðslu sem á þeim er.
Við keyptum á sínum tíma tæki til
að framleiða brettin annars staðar
frá en þurftum að endurhanna þau
nánast frá grunni til að þau gætu
þjónað okkur. Farsinu er dælt í
tækin og það mótað og fryst. Sjálft
brettið er um 100 kíló að þyngd en
það vegur um eitt tonn með afurð-
unum á. Ekki er þörf á að styrkja
brettið sérstaklega enda er það níð-
sterkt og mun sterkara en tré-
bretti," sagði Ari.
Ari Leifsson. (Mynd: Víkurfrétt-
ir).
Blandarinn sem hrærir efninu saman þar til það verður að farsi sem
síðan er dælt eftir leiðslum í frystitækin.
Útskipun á dýrafóðri úr fiskafgöngum. Brettin sem blokkunum er
staflað á eru úr frosnu fiskfarsi. (Mynd/Fiskifréttir: Kristinn Bene-
diktsson).
Gætu framleitt 30-40 þús.
tonn á ári
Við hráefnisöflun er farið aust-
ur á Þorlákshöfn og norður á Akra-
nes og allt þar á milli. Lengra geta
þeir ekki farið því fiskúrgangur er
ódýrt hráefni sem þolir ekki mik-
inn flutningskostnað. Ari sagði að
ágætlega gengi að fá fiskúrgang til
vinnslu en þeir gætu þó tekið á
móti mun meira magni en þeir gera
ef það stæði til boða. Skinnfiskur
getur auðveldlega unnið um 160
tonn af afurðum á sólarhring og
ársframleiðslan gæti þess vegna
numið um 30-40 þúsund tonnum.
Samkeppni er um hráefni til
vinnslunar. Ari gat þess að þeir
gætu greitt hærra verð fyrir það en
fiskimjölsverksmiðjur þar sem þeir
framleiða verðmætari vöru.
Dansk Pels í Danmörku á 25%
hlut í Skinnfiski og er jafnframt
aðalkaupandi að framleiðslunni.
„Dansk Pels er með um 55% af
heimsmarkaðinum í minkaskinn-
um. Ein af ástæðunum fyrir vel-
gengni þeirra er sú mikla áhersla
sem þeir hafa lagt á fóðurgjöf. Til-
búið fóður sem minkunum er gefið
er mjög misjafnt allt eftir ástandi
dýranna. Yfirleitt er fiskúrgangur
um 35% af tilbúna fóðrinu sem
þeir framleiða en einnig er notað í
það ýmis önnur efni, svo sem fiski-
mjöl.“
Ari gat þess í lokin að til að auka
framleiðslu á dýrafóðri úr fiskúr-
gangi hér á landi hefði verið í
gangi verkefni undanfarin tvö ár
við að kanna möguleika á því að
koma upp svipaðri vinnslu og er í
Sandgerði í hverjum landsfjórð-
ungi í góðri samvinnu við heima-
menn.
h^hbhhhhi
sjódælur
Útgerðamenn - Fiskeldisstöðvar
Sjódælur úr AISI 316L ryðfríu stáli
6 m3/klst. til 228 m3/klst. - 0,75 kW til 75 kW
Gæði - Öryggi - Þjónusta
i«3m: w,
ITTIndustries
Danfoss hf
Skútuvogi 6 Simi 510 4100
www.danfoss.is
4
«
4
4
4
4
4
4
4
»
4
4
4
4
4
4
l
4
4
4
4
4