Dagrenning - 01.02.1939, Page 5

Dagrenning - 01.02.1939, Page 5
DAGRENNING 223 og þar þekkir hver annan lengur, en meðan einn er að hafa gott af öðrum. Þeir eru ekkert gefnir fyrir það, að dinglaaftan í annara þjóðar mönnum sér til augnabliks virðingar. Þjóðin er yfirleitt listfeng og gáfuð, þaðsanna skólaprófin árlega. Þeir eru friðsöm þjóð, og nýtnir eru Gyðingar en það er stór kostur á hverjum manni og á hverri þjóð í öllum löndum. Hvað er það þá, sem orsakar þessa Gyðinga of“ sóknir? Svarið er einfalt og stutt. Það er: ö f u n d, sem brýst út í ýmsum myndum eftir skapferli þjóðanna eða þeirra manna, sem ofsókninni beitir. Hjá Hitler brýst hún út í dýrslegri grimmd og djöfulæði í samræmi við hans skapferli og innri mann. Hitler vantar að fá auð Gyðinganna svo hann geti, þeim mun lengur, haldið áfram sínum djöfladanz í Evrópu sökum fjárskorts, sem nú muna vera orðin tilfinnanlegur þar í landi. Og honum nægir ekki að nota vald sitt og gera eignir þeirra upp- tækar, heldur þarf hann að beita innraeðli sínu ogfremja hvert níðings verkið eftir annað á Gyðingum, með morð- um og líkams pintingum. Hér í landi heyrir maður suma menn niðra mjög Gyðingum. En ef þeir eru spurðir að, hvað þeir finni þeim til foráttu, þá er svarið oftast á eina og sömu leið, eitthvað í þá átt að þeir séu örðnir drottnarar yfir auðæf- um landanna. Það er öfund, sem þarna liggur til grund- vallar. Afþví þeim hefir tekist betur en Jóni eða Birni að hafa sig áfram fjárhagslega, þá eru Gyðingar meinvætti í augum þessara manna. Öfund og Ágirnd eru æfinlega reiðubún til, að taka ráðskonustöðuna hjá okkur mönn-

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.