Dagrenning - 01.02.1939, Blaðsíða 15

Dagrenning - 01.02.1939, Blaðsíða 15
DAGRENNING 233 Nei. — Hvað ætti ég svo sem að heyra?” “Haglið — Hlustaðu nú, Ámundi,” sagði Manga. “Ég heyri ekkert, — held ég,” sagði Ámundi lágt. Svo gekk hann til Jódisar og lagði hægri höndina á öxl hennar. Jódís hætti að spinna, og þau horfðu bæði á Möngu. Manga sat sem fyrr. “Nú kemur það aftur......eins og áðan......frammi. —Heyrið þið hvernig það hrynur og dynur um frosið þakið?...... — það er haglið.” “Ég sé eftir því, að ég lét hana fara eina fram í myrkrið áðan. Hún hefir orðið fyrir einhverju, aumingin litli,” sagði Jódís mjög alvarleg. “Þetta er brjálsemi, góða mín. — Hún verður aldrei, að ég býst við, jafngóð aftur," sagði Ámundi og titruðu varir hans af hræðslu. Jódís leit til hans viðvör- unar augum, en sagði ekkert. “Mér fer nú að skiljast, að reimleikarnir hérna séu ekki eingöngu spunanum þín- um að kenna, þó að hann sé háskalegur. — Svona skepnur draga að sér hitt ogannað.” “Komdu hingað til mín, Manga litla,” sagði Jódís. “Ónotin líða frá ef þú sest hjá mér.” “Heyrirðu það?” spurði Ámundi með þjósti. “Konuna mína vantar að þú komir til sín,” Við rostann í Ámundi rann mókið af Möngu litlu að nokkru. Hún leit þakklátlega til Jódísar rétt í svip en sat kyr. Svo sókti í sama horfið fyrir henni aftur. “Nú geng- ur hanní hlaðið.” “Ég held að þetta hljóti að vera aðsókn, þessi skratti! Það er eins og barnið sé hálf sofandi ” sagði Jódís og stend- ur upp af rúminu. “Blótaðu ekki, Jódís. — Nóg er nú samt,” sagði Á- múndi í umvöndunar róm. “Hann tekur í hurðina en hún er lokuð að innan,” sagði Manga, sem enn situr sem áð- ur. Þau hjónin standa kyr og hlusta. “Heyrir þú nokkuð, elskan mín?” spurði hann. “Ekki með vissu! — Við skulumhafa lágt um okkur- Mér heyrist einhver undir- gangur útifyrir,” sagði Jódís.

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.