Dagrenning - 01.02.1939, Page 19
«3 Bagrenntng s*
Oháð Mánaðarrit gelið út af
MARLIN MAGNUSSON
að Víðir P. O, ÍVlanitoba, og prentað hjá
THE NORTHERN PRESS
KosUr $1.00 Argangurinn. Borgist Fyrirfram
Aðsendar greinar um hvaða mál og stefnur sem er á dagskrá verða birtar í ritinu
ef kurteblega ritaðar, en nafn höfundarins verður að fyl^ja ritgörðum öllum. en þau
verða ekki birt í ritinu ef þsss er ó’kað. Ritið er óháð í trúmálum og pólitík.
Áskriftargjöld sendiat til ráðsmannsins og eins pantanir fyrir ritinu.
G. P. Magnusson, Ráðsmaður.
Með þessu hefti
endar fjórði árgangurinn af
“DAGRENNING”
Hefir ritið reynst lífseigara
en sumir spáðu við fæðingu
þess og líf treinst lengur en
sumir hefðu óskað. Verða það
því engar gleðifréttir
til þ e i r r a, að heyra það,
að “Dagrenning” er við góða
heilsu og,aðhenni hefir aldrei
liðið betur en nú. Kaupendum
hefirfjölgað að mun á árinu.
Fleiri en hundrað gjörðust
áskrifendur yfir nóvember og
desember mánuði síðast liðna.
Kaupendur hafa staðið ágæt-
lega vel í skilum með áskrift-
argjöld sín, og hefir það gert
ritinu mögulegt fjárhagslega,
að koma út. Fyrir það þakkar
útgefandinn innilega, og einn-
ig fyrir þau mörgu bréf, sem
ritinu hafa borist á árinu með
hlýjum orðum í þess garð. Þau
bréf hafa ekki verið birt í rit-
inu fyrir þá sök, að álitið hef-
ir verið, að það rúm í ritinu
væri til annars betur varið
fyrir kaupendurna, en að birta
skjall um sjálft sig, þó fs-
lenzku blöðin hér Vestra hafi
þann sið, sjálfsagt sér til ein-
hverrar hagnaðarvonar meira
en af sjálfselku.
“Dagrenning” hefir stað-
ið við það loforð, sem gefið
var í byrjun útkomu hennar,
nú fyrir f jórum árum, sem var
það, að kaupendur skyldu ei
þui'fa að borga fyrir auglýs-
ingar í ritinu, sem auglýsarar
eru látnirborga fyrir að birta.
Það loforð viljum vér endur-
nýja fyrir næsta ár.