Dagrenning - 01.06.1939, Page 7

Dagrenning - 01.06.1939, Page 7
DAGRENNING 305 allar klukkur í bænum orðnar langt á eftir því og það þá orðið liðugum 13 dögum á und- an almanakinu. Það varkom- ið í kaf í nóvember snjóana, þó að októberblöðin héngu enn á trjánum. Það rak svo gríð- arlega eftir húsaleigu, víxlum og þess háttar hlutum, að slíkt var með öllu óþolandi. Jeg fór því með úrið til annars úrsmiðs til þess, að fá það sett rétt. Hann spurði mig hvort nokkurn tíma hefði verið gert við það áður. Ég neitaði því, og sagði að það hefði aldrei þurft aðgerð fyrr en þetta. Þegar hann heyrði þessi orð mín, skein illgirnis- leg gleðin úr augum hans þeg- ar hann opnaði úrið; síðan stakk hann stækkunargleri í augnatóptina og tók að stara á verkid í úrinu. Hann sagði, að það þyrfti að hreinsa það, og bera á það olíu, og loks að setjaþað réttog nákvæmlega. Eftir að búið var að hreinsa úrið, bera á það og að setja það “rétt,” fór það nú heldur en ekki að seinka sér; það tók að höggva hægt og hægt, eins og þegar hringt er líkfararklukku. Ég fór að koma of seint til járnbrautar- stöðvanna, og á öll mannamót, en það, sem verst var af öllu var það, að ég fékk engann miðdagsmat því ég var altaf of seinn til máltíða. Einusinni átti ég að fá víxil borgaðann, eftir þrjá daga; en úr þeim teigði úrið mitt svo, að þeir urðu að fjórum dögum, og þá vildu skuldunautar mínir ekki framar borga víxilinn. Ég fór að smá hrökklast aftur á bak; fyrst þangað til í gær, svo þangað til fyrradag, svo þang- að til í vikunni sem leið, og smám saman fór ég að verða var við, að ég drógst áfram í hinni hátíðlegu einveru minni í hitt eð fyrra vikunni, en tíminn hljóp frá mér, sem óð- ur væri. Mér fanst einhver hulinn skyldleiki með mér og “Múmíunni” á forngripasafn- inu, mig eins og hálf langaði til að fara að spjalla við hana ef þess væri kostur. Jeg hélt því aftur til úr- smiðs; hann tók það alt sund- ur, ögn fyrir ögn, á meðan ég beið, og svo sagði hann mér, að “óróinn” væri farinn að láta sig. Hann sagðist geta gert við þetta á 3 dögum; og

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.