Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Blaðsíða 18
14
ekki einkennandi fyrir hinar eiginlegu (typisku) snjódældir, þar sem
snjór liggur lengur fram eftir sumri og styttir mjög verulega vaxtar-
tímann. Stærsta samfellda svæði þessarar tegundar liggur sunnanvert
við Dalsá. Hér er um nær slétta grund að ræða með nokkrum halla mót
norðri. Gróður er nær eingöngu grasvíðir og grávíðir, er lyftir sér all-
mikið, en það bendir til þess, að snjóalaga gæti ekki mjög lengi fram
eftir vori. Jarðvegur er sendinn og mosi enginn. Mosi þrífst jafnan illa
á sendnum áfokssvæðum, og snjóalög halda honum einnig í skefjum.
Stærð gróðurhverfisins er um 60 hektarar.
E i Víðigrund.
(Salix association).
Greinilegra gróðurhreytinga verður vart nokkru sunnan Dalsár. Hér
fer að bera meira á víðitegundum, og verða þær algerlega ríkjandi í
öllum þurrlendisgróðurhverfum, þegar norðar dregur. Vaxandi hæð yfir
sjó veldur að sjálfsögðu nokkru um þessa gróðurbreytingu, en fyrst
og fremst mun hér vera um áhrif sandfoks að ræða. Grávíðir er ríkj-
andi í víðigrundinni og í þeim mun ríkari mæli, sem lengra dregur inn
í landið. En loðvíðir og grasvíðir eru einnig áberandi. Lítið sem ekkert
ber á öðruin tegundum. Víðirinn er yfirleitt fremur lágvaxinn. Af svæði
því, sem víðiheiðin (gróðurhverfin D i, E i og E 2) þekur, eru um 77%
víðigrund, og liggur langmestur hluti hennar norðan Dalsár.
Stærð gróðurhverfisins er um 1480 hektarar.
E 2 Mosaríkt víðis gróðurhverfi.
(Salix sp.—Grimmia sp. association).
Gróðurhverfi þetta líkist raunar einna mest mosaþembu, en er þó
víða svo þéttvaxið grávíði, að það er talið til víðigróðurhverfis. Gróður-
hverfið er í rakari jarðvegi en víðigrund (Ei).
Stærð gróðurhverfisins er um 100 hektarar.
Torvelt er að svo stöddu að gera grein fyrir beitargildi hinna þriggja
síðasttöldu gróðurhverfa (D2, Ei og E2). Ungsprotar af víði eru mikið
bitnir, en eldri hlutar víðijurtarinnar eru sennilega lítið bitnir. Al-
mennt mun talið, að grasvíðir og ungsprotar af grávíði og loðvíði séu
eftirsóttir af sauðfé.
F 1 Krækilyngs—bláberjalyngs—stinnastarar gróðurhverfi.
(Empetrum hermafroditum—Vaccinium uliginosum—-Carex rigida
association).
Gróðurhverfi þetta, sem telst til lyngheiðarinnar, kemur aðeins fyrir
á einum stað, á Gljúfurleitarsvæðinu. Gróðurinn er þroskamikill, enda
gætir hér skjóls og hagstæðra áhrifa snjóalaga. Þrátt fyrir grózkuna