Heilsuvernd - 01.06.1975, Qupperneq 16

Heilsuvernd - 01.06.1975, Qupperneq 16
sjúkdóma með réttu mataræði og réttum lifnaðarháttum, taldi sjúkdóma stafa af röngum lífsvenjum og vildi lækna þá með því að lagfæra lífshættina og með ýmsum öðrum styrkjandi ráðum. Og þetta er inntakið í kenningum náttúrulækna enn í dag. Nú á dögum þekkjast mörg ráð, lyf, skurðaðgerðir o.fl., sem grípa verður til þegar sjúkdómur er kominn á hátt stig eða verður ekki bættur með öðrum hætti. En flesta sjúkdóma telja þeir unnt að lækna með hinum náttúrlegu aðferðum, svo sem lagfæringu á mataræði, hreyfingu og útivist, böðum og ýmsum öðrum styrkj- andi ráðum sem hér verða ekki upp talin. Og aðalstarf þeirra beinist að því að kenna fólki heilnæma lifnaðarhætti í hvívetna til að koma í veg fyrir sjúkdóma. Kunnasti boðberi þessarar stefnu á Norðurlöndum, Are Waerland, kemur boðskap hennar fyrir í einni stuttri kennisetningu: „Við eigum ekki í höggi við sjúkdóma, heldur við rangar lífsvenjur. Leiðréttið hinar röngu lífsvenjur, og sjúkdómarnir munu hverfa af sjálfu sér“. Þessi stefna hefir átt formælendur á öllum öldum, bæði meðal lærðra lækna og ekki síður meðal leikmanna, og hefir sumum þeirra orðið mikið ágengt í því að leiðbeina sjúklingum og lækna þá. Á hinn bóginn hafa svo verið til menn sem hafa beitt alls- konar kukli og margvíslegum svokölluðum lyfjum, bæði útvortis og innvortis, án minnstu kunnáttu og einungis í því skyni að auðgast á því, og gert sér þannig neyð og trúgimi almennings að féþúfu. Sumir hafa aflað sér nokkurrar þekkingar í læknisfræði og náð vissum árangri í lækningatilraunum sínum. Og í sumum löndum, aðallega í Þýskalandi, var heitið náttúrulæknir um tíma notað um slíka skottulækna. Á síðari árum er náttúrulækningastefnan orðin viðurkennd inn- an læknisfræðinnar, a.m.k. í sumum löndum, og í Þýskalandi hefir henni verið helgað nokkurt rúm í kennslubókum í læknisfræði. Þar í landi er fjöldi háskólamenntaðra lækna sem hafa gengið þessari stefnu á hönd, og hafa margir þeirra sett upp hæli, sem eru mikið sótt. Jónas Kristjánsson er óumdeilanlega athafnamesti boðberi nátt- úrulækningastefnunnar hér á landi, vék aldrei af vegi hennar í orði eða á borði og helgaði henni síðustu 40 ár ævi sinnar. En 64 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.