Völundur

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Völundur - 01.04.1935, Qupperneq 10

Völundur - 01.04.1935, Qupperneq 10
8 VÖLUNDUE Nefndarálit milliþinganefndar í atvinnumálum. Rjett áður en síðasta Alþingi var frestað, var lagt fram í þinginu: „Skýrslur og álit milliþinganefndar í atvinnumálum 1933— 1935“. Þessi nefnd var skipuð af atvinnumála- ráðherra (M. G.) 9. sept. 1933, samkvæmt áskorun neðri deildar Alþingis, samþ. 3. júní sama ár. Nefnd þessari var falið ,,að rannsaka og safna skýrslum um fjárhagsástæður, af- komuhorfur og atvinnu sjómanna, verka- manna og iðnaðarmanna í kaupstöðum ög kauptúnum landsins". í nefndina voru skipaðir 3 menn: verk- fræðingur (Helgi H. Eiríksson), lögfræð- ingur (Sigurður Ólason) og sjómaður (Sig- urjón Á. Ólafsson). Virðist svo sem betur hefði farið á því, samræmis vegna, að þriðji maðurinn hefði verið guðfræðingur. Þetta má þó engan veginn skoða sem svigurmæli til þessara nefndarmanna. Þeir eru vafa- laust allir vel hæfir til svona starfa, Þegar rannsaka á sjermál einhverrar stjettar, er eðlilegast að menn úr þeirri stjett sjeu til þess valdir, en jafnframt fásinna að ætla, að ekki geti verið til menn utan stjettarinnar jafnvel til þess hæfir. Því má með fullum rjetti ætlast til þess, að ef til þess kemur aö rannsaka málefni verkfræðinga og lögfræð- inga, að opinberri ráðstöfun, þá verði til þess skipaðir verkamenn og iðnaðarmenn. Nefnd þessari var falið mjög merkilegt hlutverk, en um leið erfitt og vandasamt. Um hitt verða auðvitað skiftar skoðanir, hvernig nefndinni hefur tekist að leysa hlut- verk sitt af hendi, — og svo hefði orðið, hverjir sem nefndarmenn hefðu verið aðrir. Sem aðalaðferð við söfnun rannsóknar- efnis notaði nefndin spurningaeyðublöð, sem send voru út í Reykjavík og 56 kaup- stöðum og þorpum utan Reykjavíkur. í áliti sínu hefur nefndin þá sorglegu sögu að segja, „að almenningur brást yfir- leitt mjög treglega við málaleitunum nefnd- arinnar og torveldaði það stórlega alla starf- semi hennar, jók tilkostnað allan og spilti árangri nefndarstarfanna alment“. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að rannsóknin ætti að ná til 14088 manna, og sendi hún út nægilega mörg eyðublöð til þess, að þeir gætu allir gefið henni um- beðnar skýrslur. Útkoman var þó ekki betri en svo, að endursendar voru að eins 6518 nýtilegar skýrslur, 518 ónýtar, og virðist því vanta með öllu skýrslur frá meir en helmingi þeirra manna, sem rannsóknin átti að ná til. Það má ætla, að vanhöldin hafi verið nokkuð hlutfallslega jöfn í öllum stjettum. Sem dæmi má nefna, að úr stjett iðnaðar- manna voru framteljendur að eins 1247. Nú munu vera í Reykjavík einni um 1800 iðn- aðarmenn. Og æðimargir iðnaðarmenn eru í þessum 56 kaupstöðum og þorpum utan Reykjavíkur. Virðist því láta nærri, að fram- tal hafi vantað frá helmingi iðnaðarmanna. Úr hópi prentara voru 47 framteljendur. — Prentarar á landinu eru þó eitthvað yfir 100, og ber hjer að sama brunni. Af þessu leiðir, að niðurstöður af rann- sókn nefndarinnar sýna ekki það sem þær áttu að sýna, — ástandið eins og það er í raun og veru. Þær sýna að eins ástandið hjá þeim tæpa helmingi atvinnuflokkanna, sem skýrslur koma frá. Það má giska á, að hjer komi fram einskonar meðaltal, og niður- stöðurnar hefðu orðið svipaðar, þó að allir hefðu talið fram. En um það er ekkert hægt

x

Völundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Völundur
https://timarit.is/publication/1623

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.