Völundur - 01.04.1935, Page 18
16
VÖLUNDUR
Smátt og stórt.
Iðnaðarmenn! Sendið Völundi greinar um
áhugamál ykkar — eða ,efni í greinar. Það
er sitt hvað að hugsa og skrifa. Þú getur
verið snillingur að hugsa en skussi að skrifa.
Láttu það ekki standa í vegi. Talaðu við rit-
stjóra Völundar og láttu nann annast um
formið.
Skyldi vera afar torvelt og vandasamt að
búa til kartöflumjöl? — Völundi þætti
vænt um að fá fræðslu um það. — Við ís-
lendingar kaupum 160—170 smálestir af
kartölumjöli frá útlöndum árlega, og greið-
um fyrir það um 50 þúsund krónur. Mætti
ekki spara eitthvað af því fje? Varla kemur
til þess að kartöflurnar neiti að verða að
mjöli, þó að þær sjeu fæddar og uppaldar í
íslenskri mold.
Fyr á öldum gerði ísl. þjóðin ekki meiri
kröfur til iðnaðar en svo, að þeim var að
mestu fullnægt með heimilisiðnaði. Iðnað-
armenn voru ekki til sem vinnandi stjett. Á
síðari tímum hefur þetta breyst stórkost-
lega. Við semjum okkur nú að siðum full-
komnustu menningarþjóða, jafnt í notkun
iðnaðarvöru í hundruðum tegunda og fyrir
of fjár, sem enginn maður ljet sjer til hug-
ar koma að æskja eftir fyrir nokkrum tug-
um ára. Og fram á síðustu ár höfum við
keypt meginið af þessum iðnaðarvörum frá
útlöndum, svo að segja án nokkurs tillits
til þess, hvort við vorum færir um að fram-
leiða þær sjálfir eða ekki.
Alþingi er skipað 49 þingmönnum. Þar af
eru 7 ,,-stjórar“, 10 bændur og 12 lögfræð-
ingar, en enginn starfandi iðnaðarmaður.
Þetta má sjá. af þingmannaskránni, en það
má líka ráða af verkum þingsins.
Frumstæðar þjóðir þurfa lítið á iðnaði að
halda. ,,Hrávaran“, sem náttúran leggur til,
er notuð til neyslu lítið breytt. Og þarfirn-
ar eru fáar umfram það að afla næringar.
Með vaxandi menningu breytist þetta stór-
kostlega. Ætilegu hrávörunni er breytt á
ýmsa lund með vinnu, — iðnaði. Og annari
hrávöru verður að breyta með vinnu til þess
að fullnægja óteljandi menningarkröfum.
Iðnaðurinn verður því fyrirferðarmeiri at-
vinnugrein, sem menningin verður fjöl-
breyttari.
Sjálfsagðasta ráðið við atvinnuskorti er
það, að landsmenn hætti að kaupa vinnu af
útlendingum. Sú vinna er falin í iðnvörum,
sem við kaupum frá útlöndum. Þær jðnvör-
ur getum við framleitt sjálfir, — ekki nánda-
nærri allar að vísu, síst fyrst í stað, en þar
fæst þó vafalaust verkefni, sem gæti gefið
nokkrum þúsundum lifibrauð. Hversu mikið
hjer er um að ræða, getur enginn maður haft
glögga hugmynd um, meðan allar rannsóknir
vantar. Hvorki Alþingi nje ríkisstjórnir hafa
til þessa fundið ástæðu til að verja svo miklu
sem 10 krónum til slíkra rannsókna alment.
Framleiðsla hrávörunnar er þverrandi at-
vinnuvegur hjá öllum menningarþjóðum.
Iðnaður er vaxandi atvinnuvegur hjá öll-
um menningarþjóðum.
í Teknisk Tidskrift var nýlega skýrt frá
því, að ríkisskuldir Bandaríkjanna í Norð-
ur-Ameríku mundu verða á miðju þessu ári
32 miljarðar dollara. Ef við breytum dollar
í krónu og deilum Bandaríkjaþjóðinni nið-
ur í 5 manna fjölskyldur og ríkisskuldunum
jafnt á fjölskyldurnar, þá koma 6500.00 ísl.
krónur á hverja fjölskyldu. Ef við íslend-
ingar værum svona skuldugir, þá mundu rík-
isskuldirnar okkar nema 145 miljónum kr.
ÍSAFOLDARPRÉNTSMIÐJA H/F.