Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Qupperneq 2
2 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
Hönnun og umbrot
bækur | blöð | ársskýrslur
auglýsingar | skilti | matseðlar
ljósmyndir | greinarskrif
sími 565 4513 | hhus@hhus.is | stofnað 1990
Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. kt. 450106-1350
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, Auglýsingar: 565 3066,
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 2298-8858 Vefútgáfa: ISSN 2298-8866
www.fjardarfrettir.is
www.facebook.com/fjardarfrettir.is
Hönnunarhúsið ehf., Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Nýtt blað á gömlum grunni
kemur nú út en árið 1969 tóku
kennarar í Öldutúnsskóla sig til
og hófu útgáfu á Fjarðarfréttum
sem komu út allt að sjö sinnum á
ári. Blaðið kom út með hléum allt til 1988 er
síðasta blaðið kom út undir stjórn kennaranna.
Fjarðarfréttir komu reyndar út árin 1993 og 1994
undir stjórn annarra en síðan hefur nafnið geymst í
hillum og kössum.
Þann 1. júlí sl. setti Hönnunar húsið ehf. sem er í
eigu undirritaðs fréttavefinn www.fjardarfrettir.is í
loftið og hefur hann fengið mjög góðar móttökur.
Vefurinn mun verða þróaður með tímanum til að
mæta þörfum bæjarbúa sem best þannig að hann
geti flutt fjölbreyttar, lifandi fréttir úr bæjarlífinu
og verið góður upplýsingavefur fyrir Hafnarfjörð.
15 ára farsælu starfi að útgáfu Fjarðarpóstsins er
lokið á leiðinlegan hátt og mun Hönnunarhúsið
sækja sinn rétt gagnvart Keili útgáfufélagi ehf.
Það er eðlilegt að ýmislegt breytist við svona
tímamót. Ég mun áfram leitast við að veita
lesendum og auglýsendum góða og örugga
þjónustu. Með hagstæðari prentun tekst að hafa
blaðið að jafnaði stærra og gefa meira pláss fyrir
efni og myndir. Horfi ég því björtum augum á
framtíðina og hlakka til aukins samstarfs við
bæjarbúa, bæjaryfirvöld og auglýsendur.
Grísanestenging er eitt þeirra mála sem brennur
mjög á íbúum bæjarins, sérstaklega á Völlum en
Fjarðarfréttir.is flutti fréttir af hugmyndum að
vegstæðum fyrir veg sem á að tengja Ásvelli við
Skarðshlíðina. Gríðarleg viðbrögð voru við frétt
inni og undraðist fólk hvers vegna væri verið að
eyða fjármunum í að kanna gerð vegar sem enginn
vildi og væri ekki á neinu skipulagi.
Það eru skiljanleg viðbrögð enda myndi
vegstæðið skera hverfið frá m.a. friðlandinu
Ás tjörn og skerða lífsgæði íbúanna verulega.
Furðar fólk sig á því að ekki sé fyrst kannað hvort
þörf sé á slíkri tengingu og hvort einhver áhugi sé
fyrir hendi hjá íbúum að gera slíkan veg.
Hvað kostaði svo þessi vinna?
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Sunnudagur 21. ágúst
Guðsþjónusta kl. 11
í Haukaheimilinu
Matthías V. Baldursson leiðir tónlistina.
Sérstakur gestur verður
Íris Guðmundsdóttir gospelsöngkona.
Prestur er sr. Kjartan Jónsson.
Þetta er fyrsta guðsþjónusta eftir sumarfrí.
Fermingarbörn og aðstandendur þeirra eru
sérstaklega velkomin.
www.astjarnarkirkja.is
Vill halda Lego
sýningu í Dverg
Guttormur Þorfinnsson húsasmíðameistari hefur
sent bæjarráð ósk um að fá að setja upp Lego sýningu
í húsnæði Dvergs frá 1. september nk. og fá að hafa
hana í 46 mánuði.
Ætlunin er að setja upp Legosýningu þar sem börn
bæjarins eru velkomin að koma og skoða stærsta
Legosafn landsins og kubba. Möguleiki er á að gera
Legomovie stuttmynd þar sem öll tæki og tól til
stuttmyndagerðar eru fyrir hendi.
Aðgangseyrir á sýninguna yrði aðeins 400 kr. en
einnig yrði boðið upp á gæslu og leiðsögn fyrir 400 kr.
á klst. á barn. Í umsókn til bæjarráðs er þess getið að
jafnvel sé vilji fyrir því að halda námskeið fyrir börn í
samstarfi við frístundaheimili Hafnarfjarðar ef áhugi
er fyrir því að hálfu bæjarins.
Haldnar hafa verið 4 sýningar frá 1995 þar sem
gestir hafa verið hátt í 100.000.
Málið var tekið fyrir á afgreiðslufundi skipulags og
byggingarfulltrúa sem vísaði erindinu til bæjarráðs.
Baráttan við illgresið
Baráttan við illgresið getur verið snúin og það tekur á að rífa upp gróður sem ekki á að vera þar sem
hann er. Gróðrarstöðin Þöll hefur tekið í notkun forláta gasbrennara sem eyðir illgresi af malarstígum.
Illgresið er þó lífseigt og kemur fljótt aftur að sögn starfsmanns gróðrarstöðvarinnar.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Gleymdist ég?