Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Blaðsíða 7
www.fjardarfrettir.is 7FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
Söfnunarkassar í Hafnarfirði eru m.a. við:
Fjarðarkaup • Miðvang • Fjörð • 10/11
– gefðu okkur tækifæri!
Farvegur Kaldár er þurr eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd. Um þessar
mundir er deilt um það hvort
Reykvíkingar eigi að fá að dæla auknu
magni af vatni úr sameiginlegum
vatnsauðlindum sveitarfélaganna ef
það hefur þau áhrif að grunnvatnsstaða
í vatnsbóli Hafnfirðinga lækkar.
Það geta verið eðlilegar ástæður fyrir
því að grunnvatnsstaða lækkar, t.d. eftir
snjóþunga vetur og þurrkatímabil og
það getur orðið til þess að ekkert vatn
rennur í farveg Kaldár.
Hins vegar hefur það verið ráðgáta
hvers vegna yfirborð Hvaleyrarvatns
sveiflast svona eins og það gerist því
ekki er vitað um neitt aðrennsli né
frárennsli frá vatninu.
Á síðasta ári var vatnsstaða
Hvaleyrarvatns óvenjulega lág og töldu
sumir að þar gæti hin mikla skógrækt
haft áhrif. Það afsannaðist þegar
skyndilega hækkaði í vatninu og
vatnsstaðan varð eðlileg á ný.
Kaldá vatnslaus
Yfirborð Hvaleyrarvatns lækkar í kjölfarið
Það fór hins vegar saman við það að
vatn fór að renna í farveg Kaldár og nú
gerist það sama. Þegar Kaldá hættir að
renna, lækkar yfirborð Hvaleyrarvatns.
SNERTIR EKKI
ÁSTJÖRNINA
Hins vegar virðast önnur lögmál
gilda með Ástjörnina, sem ekki er langt
frá, því á meðan yfirborð Hvaleyrarvatns
var hvað lægst var mjög há vatnsstaða í
Ástjörn.
Farvegur Kaldár við Kaldársel er núna alveg þurr.
Lj
ós
m
.:
Sm
ár
i G
uð
na
so
n
Töluvert hefur lækkað í Hvaleyrarvatni eins og þessi mynd sýnir.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ástjörn