Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Blaðsíða 6

Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Blaðsíða 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016 Nýr leikskóli var opnaður við Bjarkavelli 8. ágúst sl. Þetta er leik­ skólinn Bjarkalundur sem stendur við Bjarkavelli 3. Leikskólanum er skipt í fjórar deildir og verða 50 börn í skólanum til að byrja með að sögn Jennýjar Dagbjartar Gunnarsdóttur á skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Skólinn er hannaður fyrir 100 börn en ekki liggur fyrir hvenær hann verði fullnýttur. BYGGÐUR Á RÚMU ÁRI Að sögn Sigurðar Haraldssonar sviðsstjóra umhverfis og framkvæmda hjá Hafnarfjarðarbæ var bygging leikskólans boðin út í ársbyrjun 2015 en þá var búið að steypa upp kjallara og plötu 1. hæðar. Hafði staðið til að byggja leik­ og grunnskóla á þremur hæðum auk kjallara en byggingar­ nefndarteikningar að þeirri byggingu voru samþykktar í júlí 2008. Gengið var að tilboði frá SÞ verk­ tökum ehf. en húsnæðið er samtals 951,8 m² að stærð en af því er 180,9 m² kjallari. Lóðin er 4.918 m². ASK Arkitektar ehf, Mannvit hf og Forma ehf. sáu um hönnun leikskólans og lóðarinnar og var Sigurlaug Sigurjóns­ dóttir hönnunarstjóri. Lárus Ársælsson var verkefnastjóri verkfræðihönnunar og Inga Rut Gylfadóttir landslags­ arkitekt. Byggingarstjóri var Sigurður Þórðarson. SVAVA BJÖRK MÖRK ER LEIKSKÓLASTJÓRI Bæjarstjóri afhenti Svövu Björk Mörk leikskólastjóra lyklavöldin að nýja leikskólanum Bjarkalundi við hátíðlega athöfn. Fjölmenni var við athöfn ina, leikskólafólk, stjórnmála­ menn, foreldrar og fleiri. Svava Björk var áður leikskólastjóri á Bjarma. HORFT Á BARNIÐ SEM GETUMIKINN EINSTAKLING Að sögn Svövu Bjarkar starfar leikskólinn í anda Reggio Emila aðferðarinnar þar sem leitast er við að horfa á barnið sem getumikinn einstakling. Svava segist virkilega ánægð með nýja húsnæðið og segir að búið sé að fullmanna skólann af góðu starfsfólki. Fyrstu börnin komu í skólann 8. ágúst og þau síðustu byrjuðu á mánudeginum á eftir. Fanney Dóróthe Halldórsdóttir fræðslu stjóri sagði í ræðu sinni að starfsemi þessa nýja skóla geri það m.a. að verkum að út frá inntökureglum bæjarins séu nú engir biðlistar inn á leikskólana. „Öll börn ættu að geta komist að hjá dagmóður eða á leikskóla í bæjarfélaginu.“ BYGGÐUR ÁN LÁNTÖKU Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri sagði leikskólann að öllu leyti fjár­ magnaðan fyrir eigið fé Hafnar fjarðar­ bæjar. „Nýframkvæmdir á að fjármagna með eigið fé úr rekstri sveitarfélagsins. Það á ekki að gerast með lántökum. Slíkar lántökur eru ávísun á tekjur í framtíðinni sem ætlaðar eru til þess að standa undir lögbundnum verkefnum á hverjum tíma og geta því ekki leitt til annars en auknar álögur á íbúa og/eða jafnvel enn frekari lántökur. Ég tel rekstrarumhverfi sveitarfélöga í dag þannig að þau eiga að geta fjármagnað nýframkvæmdir með peningum úr rekstri ef rétt er staðið að rekstrinum,“ segir bæjarstóri. Þannig sé stefnt að því að byggja nýjan grunn­ og leikskóla í Skarðshlíð fyrir eigið fé, en framkvæmdir við þann skóla eiga að hefjast á næsta ári. 5.000 MANNS BÚA Á VÖLLUM Á Völlum búa í dag rúmlega 5.000 manns og bætir leikskólinn því úr brýnni þörf fyrir leikskólarými í hverfinu. Tvær deildir við skólann hefja starfsemi sína núna með 50 börnum. Heildarframkvæmdarkostnaður mun verða um 430 milljónir króna en ef meðtalinn er fyrri kostnaður vegna kjallara og plötu er áætlað að kostn­ aðurinn verði um 550 milljónir kr. Bjarkalundur er nýjasti leikskóli Hafnarfjarðar Byggður án lántöku og getur hýst 100 börn Svava Björk Mörk leikskólastjóri og Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri. Að leik á litríku gólfinu. Fanney Dóróthe Halldórsdóttir fræðslustjóri ávarpar gesti. – Sjá nánar á www.fjardarfrettir.is Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Glæsileg útileiksvæði eru við skólann og gúmmí undirlag í stað malar. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n www.fjardarfrettir.is

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.