Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Blaðsíða 5
www.fjardarfrettir.is 5FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
Tjarnarvöllum 11 220 Hafnarfjörður apotekhfn.is
Hagstætt verð
í heimabyggð
Sími 555 6650
Þau voru vægst sagt sterk, viðbrögðin
sem komu við frétt á Fjarðarfréttir.is
um hugmyndir að vegtengingu frá
Ásvöllum að Skarðshlíð.
Hafði VSB verkfræðistofa verið látin
vinna þrjár frumhugmyndir að vegstæði
og meta hugsanlegan kostnað við þau.
Tillaga um að gera vegtengingu á milli
þessara hverfa hefur hvergi verið lögð
fram og hvergi er að finna rök fyrir þörf
á slíkri tengingu.
Í fjörugum umræðum á samfélagssíðu
íbúa Valla segir Pétur Óskarsson, fulltrú
Bjartrar framtíðar í skipulags og
byggingarráði að hugmyndin um
vegtenginu Ásvalla og Grísanes hafi
verið sett fram af fagfólki sem unnið
hefur að skipulags og umferðar verk
efnum fyrir Hafnarfjarðarbæ undanfarin
ár m.a. í tengslum við þéttingars kýrsl
una svokölluðu um möguleika á þétt
ingu byggðar í Hafnarfirði og einnig í
tengslum við endurskoðun á deiliskipu
lagi í Skarðshlíð og skipulagsvinnu við
Ásvallabraut og tengingu hennar við
Kald árselsveg.
Tugir manns hafa tjáð sig um
tillöguna og er afstaða fólks öll mjög
neikvæð gagnvart henni og segja hana
m.a. eyðileggja tengingu við útivistar
svæði. „Ekki er öll vitleysan eins,“ eru
orð sem kannski endurspegla viðbrögð
almennings.
KOSTAR 180-280
MILLJÓNIR
Skv. mati VSB kostar A (sú græna)
ca. 180 millj., tillaga B (sú gula) ca. 191
millj. og tillaga C (sú bláa) ca. 208
millj. kr.
Sterk viðbrögð við
hugmyndum um veg á Völlum
Tillögur eru uppi um veg frá Ásvöllum, fyrir Grísanesið og að Skarðshlíð
ÁSVALLALAUG
ÁSVALLALAUG
GRÍSANES
SKARÐSHLÍÐ
HAUKAR