Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Page 4
4 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
Eitt af gömlum landamerkjum Hafn
ar fjarðar og Garðabæjar er Há degishóll,
skammt aftan við slökkvi stöðina við
Skútahraun.
Hóllinn er gamalt eyktarmark frá
Hraunsholti og þaðan kemur nafnið.
Þann 30. ágúst 1913 seldi landssjóður
Hafnarfjarðarkaupstað eign Garða
kirkju á kaupstaðasvæðinu og nokkurn
hluta af öðru landi hennar; bein lína úr
Balaklöpp við vesturenda Skerseyrar í
veginn frá Hafnarfirði til Reykjavíkur
(Engidal), um Hádegishól frá Hrauns
holti. Sel stóð sunnan undir hólnum
skammt frá bænum sem var fremur
óvana legt en alls ekki óþekkt. Staðurinn
var allt eins kallaður Hraunsholtshellar,
en hellarnir komu að góðum notum
sem fjárskjól.
Selminjunum var eytt þegar hrauninu
var skóflað burtu af starfsmönnum
Hagvirkis sem var með höfuðstöðvar
sínar á þessum slóðum. Vottaði fyrir
Góð umhirða fóta
eykur á vellíðan
Fótaaðgerð er fyrir alla. Þú þarft ekki að hafa mein á
fótum til að koma til fótaaðgerðafræðings.
Taktu skref í rétta átt og láttu þér líða vel.
www.galleriutlit.isBæjarhrauni 6 | sími 555 1614 | www.galleriutlit
Rósa Ág. Morthens
löggiltur fótaaðgerðafræðingur
Ratleikur Hafnarfjarðar
Sumarið 2016
Ratleikur
Hafnarfjarðar
Sumarið 2016
R at le ikur inn FRÍTT
ratleikskort
Fæst í Bókasafninu, Fjarðarkaupum,
sundstöðum og víðar H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
.
stendur til 25. sept.!
Rétt landamerki
Hafnarfjarðar ekki
sýnd á kortum
Hádegishóll var færður til Garðabæjar með samningi
Á nýlega samþykktri umsókn má sjá gömlu landamerkin í stað þeirra nýju.
selinu að þeim tíma þó það léti ekki
mikið yfir sér.
HÁDEGISHÓLL FÆRÐUR
UNDIR LÖGSÖGU
GARÐABÆJAR
Hádegishóll er ekki lengur landa
merki þar sem samið var um það fyrir
stuttu að Hádegishóll yrði í Garðabæ.
Var það gert í tengslum við skipulag á
nýjum Álftanesvegi en vegurinn á að
liggja á mörkum bæjarfélaganna og
milli Hádegishóls og lóðar slökkvi
stöðvarinnar.
Gömlu mörkin eru þó á aðalskipulagi
Hafnarfjarðar og sjást á skipulagsvefsjá
Skipulagsstofnunar og erfitt var að fá
upplýsingar um þetta hjá Hafnar
fjarðarbæ. Þær fengust þó og var upp
lýst að samkomulag á milli sveitarfélag
anna hafi verið gert í maí 2014 og
færðist Hádegishóllinn þá í Garðabæ en
Hafnarfjörður fékk stærri sneið við
Hrafnistu. Uppdráttinn og samkomu
lagið er þó ekki að finna í fundargerðinni.
Breytingarnar má sjá á myndinni hér að
ofan til vinstri.
Hádegishóll
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n