Öldin - 01.03.1935, Síða 5

Öldin - 01.03.1935, Síða 5
Ö L D I N 3 um, og þaö er undir áhuga ráðherranna aö mestu komiS, hve mikil alúS er viS þau lögS. En þar sem þaö eru langt frá því alltaf lög- fræðingar, sem skipa ríkisstjórnina, þá er ekki heldur viS því aS búast, aS hún hafi alltaf fullan skilning á þörfinni í þessu efni. Og meSferð þessara mála á Alþingi er oftast fremur yfirborSsleg, svo sjaldan mun þaS vera, sem hún gefur verulegan stuSning um skilning á lagaákvæöum. ÞaS er ekki ótítt aS skekkjur eru í þýöingum á erlendum lög- um, sem tekin eru upp hér á Alþingi, og þess- ar villur fara svo leiöréttingalausar gegnum hendur þingmannanna. Sýnir þaS eitt meö öSru, aS meSferSin er yfirborösleg og lög- fræSingar á Alþingi aSgæta ekki málin sem skyldi. — Embættismenn meö lagamenntun og aörir lögfræöingar hafa yfirleitt líka ver- iS afskiptalitlir um framfarir í löggjöf lands- ins og heföu þó embættismennirnir, fremur öSrum, átt aS vera þess fýsandi, aS bætt yröi úr ýmsum agnúum á lögum þeim, sem þeir framkvæma. Hér veldur samtakaleysiS aft- ur öllu. ÞaS hefir lengstum vantaö vettvang bæöi i ræöu og riti fyrir lögfræöinga. Þeir hafa aldrei átt tækifæri á að koma saman og ræSa þau málefni, sem sérgrein þeirra varöa, og málgögn þau, sem lögfræöingar hafá átt sérstakan aögang aö, hafa veslast upp mest fyrir þaS — aS eg hygg — aö ekki stóS á bak viö þau nein starfandi „organisation" er héldi áhuganum vakandi. Þetta er því bagalegra fyrir framfarir í lög- gjöf landsmanna, þar sem þaS er reynt, aö lögfræSingar á Alþingi sjá vart nema eina hliS þeirra mála, eins og áöur er sagt. En þörfin á því, aS lögfræSingar landsins beini athygli sinni aö löggjafarmálunum og geri ákveSnar tillögur um þau, er aS verSa æ meiri og meiri. ViS erum aö byrja aS drag- ast aftur úr. Veigamiklir þættir laga vorra eru orSnir gamlir og úreltir, en eftir því sem ísland dregst meira inn í hringiSu viöskipta viS útlönd, á öllum sviöum, eftir því fjölgar viSfangsefnum löggjafarinnar. Ný tækni krefst nýrra laga um meSferS þeirra, og þró- un sambúöar fólks innanlands, t. d. hagir í kaupstööum, skapa löggjafanum ný og breyti- leg viöhorf. Á þessum tímum hraSa og breyt- inga vaxa einstakar greinir þjóSlífsins fljótt frá lögum sínum. En þá veltur á, er nýjar reglur eru settar, aö byggt sé á þekkingu og reynslu, svo ákvæSin standi aS óbreyttu, en ekki sé sá ruglingur á, sem nú er oft, aS sí- fellt sé veriS aS stagla í illa samin lög, þann- ig aö landslýöurinn á erfitt meS aS þekkja, hvaS gildir. Enn má tilfæra, aö þaS myndi vera hollt aö hafa fræSilega gagnrýni lög- fræSinga viö hliöina á greinargeröum stjórn- málamannanna fyrir lögum. ÞaS myndi veröa erfiöara fyrir stjórnmálamenn einstaks flokks aS dylja fyrir þjóöinni misjafnan tilgang, sem falinn er í ákvæöunum, ef til væri óháS lög- fræSileg gagnrýni, sem greindi skýrt sundur, hvaS væri hrein löggjafarnauSsyn og hvaö væri einungis sett einum hópi manna til hags- muna á annara kostnaö. Hin harSnandi flokksbarátta hefir tvennt í för meS sér, bæöi aS minni alúö er lögS viö ópólitísku löggjaf- armálefnin, eins og áSur er sagt, og eins hitt, aS meiri þörf veröur á lögfræöilegri gagnrýni á „pólitísku“ málunum. Þess vegna þarf aS efla starfsemi á hrein-lögfræSilegum grund- velli, og þar þurfa samtök lögfræSinga aS koma til —■ blöS þeirra og samkomur. Stofnun lögfræSingasambands, er gangist fyrir samkomum lögfræSinga og haldi úti málgagni þeirra, er brýnt nauSsynjamál, sem starfa þyrfti aö. Um nánari skipulagsatriSi viövíkjandi þvílíkum samtökum, er ekki rúm til aS ræöa í svo stuttri blaSagrein sem þess- ari, þaS yröi verkefni væntanlegs lögfræö- ingaþings aö skipa þeim málum. En hver á aS rísa upp úr hinu almenna samtakaleysi, sem nú er, og kalla menn saman til ráöa- gerSa? Mér viröist ekki efi á, aS annaS hvort MálflutningsmannafélagiS eöa prófessorarnir viö lagadéild Háskólans heföu beztar aSstæö- ur til þess. Einar Ásmundsson.

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/1626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.