Öldin - 01.03.1935, Blaðsíða 11

Öldin - 01.03.1935, Blaðsíða 11
Ö L D 1 N 9 útlendar, jafnóðum og þær koma út, og sömuleiSis tímarit og blöð. Ef þaS á aS gegna hlutverki sínu, verSur ekki hjá þessu komizt. Og úr því aS ekki er hægt aS gera ráö fyrir, að þetta safn öðrum fremur, fái allt aS gjöf, er óhjákvæmilegt aS það hafi til umráSa nokkurt fé, til bókakaupa fyrst og fremst, og síðan til viShalds á því, sem fyrir er og aS kann aS berast. ÞaS er því bráSnauSsynlegt fyrir bóka- safniS á GarSi, aS þaS fái einhvern fjárstyrk nú þegar eSa þá í nánustu framtíS, og vænt- anlega beita hlutaSeigendur sér fyrir því aS útvega þann stvrk, ef enn hefir ekkert veriS aShafzt. ÞaS liggur eSlilega beinast viS, aS ríkissjóSur verSi styrkveitandinn og leggi safninu árlega til nokkurt fé — ef rétt er munaS, hefir „íþaka“ í Menntaskólanum not- iS einhvers opinbers styrks til bókakaupa, og þaS ætti því ekki aS vera neinn einstæSur bitlingur, þó aS GarSur nyti svipaSra hlunn- inda. — Ef í nauSir ræki, mætti líka bera fram þá spurningu, hvort happdrættiS gæti ekki látiS eitthvaS af hendi rakna. ÞaS er reyndar öllum ljóst, aS happdrættiS hefir nóg viS sitt fé aS gera, þar sem þaS er orSin svo aSkallandi nauSsyn aS háskólinn fái nýtt hús- næSi og viSunandi, en hitt er líka jafn-víst, aS smávægilegt fjárframlag gerSi því hvorki til né frá, og auk þess rynni þaS fé, sem þann- ig væri variS, óbeint til háskólans. GarSur verSur áreiSanlega svo nátengdur þeirri stofn- un í framtíSinni, aS vegur þeirra eSa van- sæmd hlýtur aS fylgjast aS. — BókasafniS á GarSi verSur aS vísu ekki steinn í vegg hins nýja háskóla, en ef vel væri vandaS til, ætti þaS samt sem áSur aS geta orSiS verulegur og þýSingarmikill hluti hans, og aS því verS- ur aS keppa. — ÞaS má auSvitaS benda á margt fleira, sem vert væri aS athuga, í sambandi viS þetta mál, og ræSa þaS frá fleiri hliSum en hér hefir veriS gert. Margar leiSir eru sjálfsagt færar, og um margt aS velja, þegar þar aS kemur. En fyrst um sinn verSur þaS aS telj- ^W Olafur Lárusson prófessor fimmtugur. Þunn 25. febrúar síðastl. varð próf. Ól. Lárusson fimmtugur. Þann dag gengu stúdentar Lagadeildar heim lil hans og afhenlu honum skrautritað ávarp með eigin undirskrift þeirra allra, en prófes- sorinn þakkaði með ræðu og bauð stú- dentunum til stofu. Ávarp það, sem stúdentarnir afhentu prófessornum, var að efni til nokkur þakklætisorð lil hans, fyrir starf hans í þágu Háskólans og þjóðarinnar. Ólafur er nú fimmtugur að aldri og á marga lærisveina, sem þegar hafa lengi starfað eða eru nú í skóla, og þegar hann hefir enn bætt við sig árnm, mun hann mega líta yfir miklu meiri fjölda þeira. En það er ekki höfðatala lærisveina Ólafs, sem út af fyrir sig verður tit að minna á hann, heldur það, hve glögglega það mun eiga eftir að koma í Ijós, að með- ferð íslerizkra lögvísinda skapist í Ótafs mynd. Hógværð hans og skýrleiki i fram- setningu og allri efnismeðferð hefir djúp áhrif á nemendur hans og kennir þeim, að það er athygli og þolinmæði, — skit- yrðislaus játun á staðreyndum, sem skap- ar þann vísindamann, er lengi lifir. E. K. ast aSalatriSiS, að málinu sé sinnt á ein- hvern hátt og leitaS viSunandi lausnar. ÞaS snertir alls ekki GarSbúa eina, aS sú stofnun, sem á aS marka nýtt spor í ísl. stúdentalífi, eignist sæmilegan bókakost. Öllum stúdent- um ætti aS vera umhugaS um þaS, aS GarS- ur mætti gegna hlutverki sínu sem bezt, á þessu sviSi sem öSrum. Og þeir, sem hafa aSstöSu til, ættu aS telja þaS rétt sinn og skyldu að íhuga máliS gaumgæfilega, og síðan að brjóta því braut. Ó. B.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/1626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.