Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 10
10 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Ágætu Hafnfirðingar.
Árið 2016 hefur verið viðburðaríkt
hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar.
Björgunarmiðstöðin Klettur heldur
áfram að þjóna okkur vel. Búið er að
ganga frá húsinu okkar að mestu,
aðeins eftir að laga og snurfusa lóðina
okkar baka til, Lónsbrautarmegin.
Björg unarmiðstöðin þjónar Björgunar
sveitinni, unglingadeildinni Björgúlfi,
Slysavarnadeildinni Hraunprýði og
klúbbum eldri félaga HSH og Fiska
kletts. Við erum stolt af húsinu okkar
sem reist hefur verið af myndar skap, en
mjög mikil sjálfboðavinna var unnin
við húsið auk þess sem bæjarbúar í
Hafnarfirði hafa verið dyggir stuðn
ings aðilar sveitarinnar, sem hefur gert
okkur kleift að ljúka þessum stóra
áfanga í sögu sveitarinnar.
Nýliðastarfið okkar gengur mjög vel,
við erum með stóran hóp nýliða bæði á
fyrra og seinna starfsári. Þetta er flottur
hópur efnilegs fólks á ólíkum aldri,
sem hefur sótt um að starfa með okkur.
Nýliðastarfið tekur að minnsta kosti 18
mánuði og á því tímabili gangast
nýliðar undir fjölbreytta þjálfun sem
reynir á bæði andlega og líkamlega.
Nýliðahópurinn á breiðu aldursbili sem
við teljum góðan kost til að ná fram því
besta í hverjum og einum.
Útköll á árinu hafa verið 56 fram til
þessa og hefur þeim farið fjölgandi með
ári hverju. Útköllin hafa verið af
ýmsum toga en við höfum þó fengið
pásu frá óveðursútköllum þetta haustið.
Mest áberandi útköll í haust hafa eflaust
verið stóru leitirnar tvær á Snæfellsnesi
og á Héraði þar sem rjúpnaskyttur
höfðu ekki skilað sér. Þrátt fyrir mikla
fjarlægð þá hefur Björgunarsveit
Hafnar fjarðar sent stóra hópa til leitar.
Takk fyrir
stuðninginn