Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 32
32 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Flatahrauni 5a
Boltinn í beinni og lifandi
tónlist allar helgar.
Tilvalinn staður fyrir
einkasamkvæmi stærri
og smærri hópa.
Happy Hour alla daga
frá kl. 16 til 19 og fleiri
flott tilboð á barnum.
Flatahrauni 5a, Hafnarfirði
sími 578 0200
Stofnuð 1983Starfsfólk Hraunhamars
óskar viðskiptavinum,
samstarfsaðilum og
landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Þökkum fyrir viðskiptin
á liðnum árum.
Smelltu á
LIKE
og skoðaðu myndir
á Facebook síðu
Fjarðarfrétta
Brenna á
gamlárs-
kvöld á
Ásvöllum
Að venju verður brenna á
Ásvöllum á gamlárskvöld en
það er Knattspynufélagið
Haukar sem sér um brennuna.
Kveikt verður í brennunni
kl. 20 og er öll meðferð blysa
og skotelda óheimil á brennu
svæðinu.
Bæjarbúar eru hvattir til að
mæta og njóta þess saman að
brenna út gamla árið en ekki
er nein skipulögð dagskrá á
svæðinu.
Jólatrén
ekki sótt
Bæjarbúar bera nú sjálfir
ábyrgð á að farga jólatrjám
sínum eftir jólin. Fólk getur
klippt þau niður og komið
þeim á Sorpu en ekki þýðir
lengur að henda þeim út með
von um að þau verði sótt.
Kíktu á vefverslunina:
Stóra litla verslunarmiðstöð okkar Hafn
firðinga er nú í jólabúningi og verslanir
bæjarins eru tilbúnar til að taka vel á móti
viðskiptavinum að venju.
Fyrir allt of marga er það eins og sjálf
sagður hlutur að renna í höfuðborgina fyrir
jólin til að kaupa jólagjafir. Það er bæði
tímafrekt og víða erfitt að finna bílastæði
– nema í Hafnarfirði þar sem úrval
verslana er meira en margur heldur.
ÚRVAL VERSLANA Í
HEIMABYGGÐ
Við búum vel að skartgripaverslunum í
Hafnarfirði með úrvals gullsmiðum sem
getið hafa sér gott orð langt út fyrir Stór
Hafnarfjarðarsvæðið. Konur þurfa ekki að
fara langt til að finna glæsilegan fatnað
enda eru kvenfataverslanir á hverju strái í
miðbænum og því ættu karlar ekki að fara
langt eftir jólagjöfum handa sínum betri
helmingi.
Verkfærabúðir hafa sprottið upp í bæn
um og þeir handlögnu ættu að geta fengið
eitthvað við sitt hæfi. Útivistarvörur og
sprotfatnaður er í úrvali og svona mætti
lengi telja.
Því meira sem Hafnfirðinga kaupa inn í
Hafnarfirði, því fleiri verða verslanirnar og
betri.
FJÖRÐUR - OKKAR
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
Töluverð endurnýjun hefur orðið í Firði
og margar nýjar verslanir verið opnaðar.
Óvíða er jafnmikið úrval af leikföngum og
í Leikfangalandi, glæsiúrin fást í Úr og
gull, leðurhanskarnir fást í Smart Boutique,
skórnir í Skóhöllinni og hvíla má lúin bein
og fá góðan kaffisopa í Kökulist.
Gott er að geyma bílinn í bílastæða
kjallaranum í Firði og njóta þess að fara
ekki langt yfir skammt og upplifa mann
lífið í miðbæ Hafnarfjarðar.
Gefðu Firði og miðbænum tækifæri!
Jólagjafirnar fást í Hafnarfirði
Verslanir í Firði og í miðbænum og víðar opnar til 23 á Þorláksmessu
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Nýendurnýjuð verslun Augastaðar
Gott andrúmsloft er í Firði
Herra Hafnarfjörður
Glæsilegur fatnaður í Konu
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n