Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Qupperneq 11

Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Qupperneq 11
www.fjardarfrettir.is 11FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 Við erum mjög þakklát þegar vel gengur og það var því mjög ánægjulegt að í báðum þessum stóru leitum fundust hinir týndu heilir á húfi. Útköllin hafa verið bæði stutt og löng, á landi og sjó, þau hafa verið miskrefjandi en alltaf er hópur félaga okkar tilbúinn til að rjúka af stað þegar kallað er. Það er fjöl breytt­ ur hópur björgunarfólks sem sinnir starfinu í sjálfboðavinnu og er tilbúinn til að koma ykkur til aðstoðar hvenær sem er sólarhringsins allt árið. Sérstaða Björgunarsveitar Hafnar­ fjarðar er og hefur verið þjálfun og rekstur á sporhundum í gegnum árin. Í dag höfum við yfir að ráða einstaklega fallegum sporhundi sem heitir Perla. Hún hefur staðið sig mjög vel á síðasta ári og farið í mörg útköll. Nú í byrjun desember náði hún þeim áfanga að ná seinna úttektarprófinu sem leggja skal fyrir blóðhunda. Perla er fyrsti spor­ hundurinn á landinu sem nær þessu prófi frá því að kröfur um það voru settar fram fyrir um 10 árum síðan. Við erum mjög ánægð með þennan góða árangur og stefnum nú á að fá annan blóðhund til landsins um mitt næsta ár. Lionsklúbbur Hafnarfjarðar hefur heldur betur stutt vel við bakið á okkur með sölu á Gaflaranum undanfarin ár og nú síðast með styrk fyrir nýjum sporhundi. BSH sinnir líka samstarfi við ýmsa aðila eins og skátahreyfinguna. Björgunar sveitin sá um sjúkragæslu fyrir Hraunbúa á skátamóti í Krýsuvík í júní eins og undanfarna áratugi. Einnig sinntum við vatna og bátagæslu á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni í sumar. Þar fengu félagar okkar mikilvæga reynslu og þjálfun í meðhöndlun slöngu báta. Að reka björgunarsveit er kostnaðar­ samt og nú fer í hönd mikilvægasti fjár öflunartími okkar. Jólatrjáasala sem og flugeldasala eru okkar mikilvægustu fjáraflanir. Jóltrjáasalan okkar er í Hvalshúsinu við Reykjavíkurveg 48 eins og undan­ farin ár. Við tökum vel á móti ykkur og þar sem kaffi, og piparkökur eru í boði á meðan fólk velur sér tré. Bæði jólatrén og flugeldarnir eru forsenda þess að halda úti öflugu björg­ unarstarfi í Hafnarfirði. Sölustaðir flugelda opna miðvikudaginn 28. des­ em ber og verða í björgunarmiðstöðinni okkar að Hvaleyrarbraut 32, að Flata­ hrauni 14 (gamla húsinu okkar) og við Tjarnarvelli. Kæru bæjarbúar, um leið og við þökk um ykkur fyrir ómetanlegan stuðn ing í gegnum árin, þá bjóðum við ykkur velkomin á sölustaði okkar, hvort sem er til að versla jólatré eða flugelda og leitum til ykkar eftir áframhaldandi stuðningi svo hægt sé að halda áfram kraftmiklu björgunarstarfi í Hafnarfirði. Með ósk um gleðilega hátíð, slysalaus áramót og gæfuríkt komandi ár. Vigdís Björk Agnarsdóttir, formaður Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. Hvar kaupir þú flugelda? Flugeldasala: • Hvaleyrarbraut 32 (innst á Lónsbraut) • Gamla slökkvistöðin (Flatahrauni 14) • Við Tjarnarvelli OPIÐ: Miðvikudaginn 28. desember ........ kl. 12 ­ 22 Fimmtudaginn 29. desember ......... kl. 10 ­ 22 Föstudaginn 30. desember .............. kl. 10 ­ 20 Gamlársdag ..................................... kl. 09 ­ 16 Flugeldasala björgunarsveitarinnar er lífæð starfsins – Bæjarbúar! Leggjum okkar skerf af mörkum.

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.