Fjarðarfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 19
www.fjardarfrettir.is 19FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Árlega koma leikskólabörn úr
leikskólum Hafnarfjarðar og víðar til að
skoða hús Bjarna riddara sem er hluti af
húsakosti Byggðasafns Hafnarfjarðar
við Vesturgötu. Þar fá þau að heyra
fróðleik um heimilishald fyrri alda en
ekki síst að hitta gamaldags íslenskan
jólasvein. Hann vakti heldur betur
kátínu þegar börn úr Stekkjarási komu í
heimsókn. Gekk honum illa að finna út
úr því hvernig nota ætti stól og hurfu
börnin stundum þegar hann reyndi að
setjast. Hafði hann þá sest öfugt á
stólinn.
Men: 29.900
Lokkar: 19.900
Sign · Fornubúðum 12 · 220 Harnarrörður · S:555 0800 · sign@sign.is · facebook.com/signskart · www.sign.is
Hringur: 29.900
Fargjöld
hækka um
4-4,8%
Á fundi stjórnar Strætó bs. 9. desem
ber sl. var samþykkt að hækka gjaldskrá
Strætó í takt við almenna verðlags
hækkun á rekstrarkostnaði Strætó. Í
rekstri Strætó vegur launa kostn aður og
olíuverð um 70% af heild ar rekstrar
kostnaði. Fyrirséð er 10% hækkun
launa á næsta ári og þjóð hagsspá spáir
allt að 15% hækkun á olíuverði.
Almennt staðgreiðslugjald og stakt
fargjald í appinu verða 440 kr., sem er
hækkun um 4,8%, en staðgreiðsla og
stakt fargjald í appinu fyrir börn yngri
en 18 ára, aldraða og öryrkja verða
óbreytt. Önnur fargjaldaform eins og
far miðar og kort hækka í kringum
4,0%.
NÝ GJALDSKRÁ STRÆTÓ
MUN TAKA GILDI 3.
JANÚAR 2017
Í eigendastefnu Strætó sem samþykkt
var í apríl 2013 kemur fram að stefnt
skuli að því að fargjaldatekjur standi
undir allt að 40% af almennum rekstrar
kostnaði Strætó. Í dag standa fargjalda
tekjur undir um 32% af almennum
rekstrarkostnaði félagsins.
Upplýsingar um nýja gjaldskrá er að
finna á vefnum www.straeto.is
Jólasveinninn á Byggðasafninu
Óttalegur klaufi og vissi ekki hvernig átti að nota stól
Fengu börnin óskakerti að gjöf í lok heimsóknarinnar.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n