Feykir


Feykir - 19.02.2020, Síða 2

Feykir - 19.02.2020, Síða 2
Þegar þetta er skrifað er því mótmælt að 17 ára írönskum transdreng og fjölskyldu hans hafi verið synjað um alþjóðlega vernd hér á landi en til stóð að senda fjölskylduna úr landi á mánudaginn. Maní kom til Íslands með foreldrum sínum þann 5. mars 2019 og er núna nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem hann hefur fest rætur, eignast vini og tengst samfélaginu. Muhammed Zohair, sjö ára dreng, og fjölskyldu hans var ekki vísað úr landi í upphafi febrúar eins og til stóð þar sem dómsmálaráðherra hefur frestað öllum brottvísunum barna í tilvikum þar sem málsmeðferð þeirra hefur tekið meira en 16 mánuði. Vísa átti fjölskyldu úr landi í byrjun desember, þar á meðal barni fæddu á Íslandi. Hjónin áttu barn sem grafið er hér á landi. Í fyrra sumar átti að vísa tveimur barnafjölskyldum úr landi sem höfði dvalið lengi á Íslandi og náð að skjóta rótum. Fréttalistinn er endalaus og ótrúlegt að svo sé. Hvernig má það vera að lög og reglur séu svo háskalegar að fjölskyldur séu rifnar upp eftir margra mánaða dvöl á Íslandi og þeim fleygt út fyrir þröskuldinn. Fólk sem hefur ekki annað af sér gert en að leita sér og afkomendum sínum að betri lífsskilyrðum. Auðvitað er það þannig að fólkið kemur ekki á réttum forsendum íslenskra laga eða reglugerða og ætti ekki að líðast en að senda börn og foreldra þeirra burt eftir langa vist á Íslandi er ekkert nema mannvonska, hvað sem líður öllum reglum. Ef við sem þjóð ætlum að stoppa flóttafólk í því að koma til landsins verður að vísa þeim umsvifalaust frá áður en rótum er skotið í okkar íslenska jarðveg. Hér er um fólk að ræða sem getur auðgað mannlífið og orðið þjóðarbúinu til gagns ef við hjálpum þeim til þess. Það er þannig að ég er ekki að brigsla dómsmálaráðherra eða útlendingastofnun um mannvonsku. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur gefið það út að hún muni kynna fyrir ríkisstjórninni áform um að stytta hámarkstíma málsmeð- ferðar úr átján mánuðum í sextán í hælismálum þar sem börn eiga í hlut. Það er úr einu og hálfu ári niður í eitt ár og fjóra mánuði. Því miður er það eins og að stytta hengingarólina um tvo sentímetra. Páll Friðriksson ritstjóri LEIÐARI Ólög og mannvonska Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Fáir sóttu sjóinn í síðustu viku og var heildarafli vikunnar í landshlutanum aðeins 292.045 kíló. Þrír bátar lönduðu á Skagaströnd og var samanlagður afli þeirra tæp sjö tonn og á Sauðárkróki lönduðu togararnir tveir, Drangey og Málmey rúmum 285 tonnum. /FE Aflatölur 9.– 15. feb. 2020 Fáir sóttu sjóinn SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKAGASTRÖND Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 3.022 Onni HU 36 Dragnót 1.074 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 2.578 Alls á Skagaströnd 6.674 SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 161.347 Málmey SK 2 Botnvarpa 124.024 Alls á Sauðárkróki 285.371 Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra Sextíu og fimm milljónir til sjötíu og sex verkefna Alls bárust 113 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra þar sem óskað var eftir 170 milljónum króna í styrki en aðeins sjötíu og sex verkefni, 60 aðila, náðu í gegn. Úthlutun fór fram sl. fimmtudag í félagsheimilinu á Hvammstanga. Samtals var úthlutað 65 milljónum króna en hæsta styrkinn hlaut Þekkingarsetrið á Blönduósi, 5.162.000. Næst hæsti styrkurinn, 3.896.500 kr., kom í hlut Olgu Lindar Geirsdóttur með verkefnið Lopalind spunaverksmiðja en stofn- og rekstrarstyrki upp á 2.200.000 kr. fengu Kakalaskáli, Prjónagleði, Spákonuarfur, Samgönguminjasafn Skagafjarðar og Selasetur Íslands. Sömu upphæð fékk Skotta á Sauðárkróki fyrir Alþjóðlegan kvikmyndaskóla. Styrkirnir voru eðlilega misháir, flestir undir milljón eða 52 og þeir lægstu 150 þúsund. Við sama tækifæri voru veittar viðurkenningar til tveggja framúrskarandi verkefna sem sett voru upp á Norðurlandi vestra en stjórn SSNV ákvað að veita þær árlega í tveimur flokkum, annars vegar á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og hins vegar á sviði menningar. Kallað var eftir tilnefningum íbúa svæðisins og barst alls 31 tilnefning um tuttugu verkefni. Í framhaldi af því valdi stjórnin eitt verkefni úr hvorum flokki til að veita þessar nýju viðurkenningar og komu þær að þessu sinni í hlut sýningarinnar 1238 á Sauðárkróki sem rekin er af fyrirtækinu Sýndar- veruleika ehf. sem framúrskarandi verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar fyrir árið 2019 og verkefnið sem hlaut viðurkenningu sem framúr- skarandi verkefni árið 2019 er líka tengt sagnaarfinum en það er sýningin um Þórð kakala sem rekin er af Kakalaskála ehf. Við athöfnina á Hvammstanga fluttu þeir ávörp Haraldur Benediktsson, fyrsti þingmaður Norð- vesturkjördæmis og Lárus Ægir Guðmundsson, formaður úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs. Karlakórinn Lóuþrælar söng fjögur lög undir stjórn Ólafs Rúnarssonar við undirleik Elínborgar Sigur- geirsdóttur en einsöngvari var Guðmundur Þorbergsson. Samkomunni stjórnaði Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV. /PF Þorleifur Karl Eggertsson, formaður stjórnar SSNV, veitir Sig- urði Hansen, Maríu Guðmundsdóttur og Berglindi Þorsteins- dóttur hjá Kakalaskála viðurkenningu fyrir framúrskarandi verkefni árið 2019. MYND: SSNV Húnvetningurinn Marín Guðrún Hrafnsdóttir mun taka við embætti forstöðumanns Hljóðbókasafns Íslands en hlutverk safnsins er að sjá þeim sem ekki geta fært sér venjulegt prentað letur í nyt fyrir bókasafnsþjónustu með miðlun á fjölbreyttu safnefni, þar á meðal námsgögnum, í sem bestu samræmi við óskir og þarfir notenda. Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að Hljóðbókasafn Íslands vinnur í samstarfi við aðila sem standa að skipulagningu bókasafnamála, þá sem vinna að framleiðslu og dreifingu námsefnis og þá sem starfa að málefnum blindra og sjónskertra og annarra hópa sem njóta þjónustu safnsins. Marín Guðrún Hrafnsdóttir, sem er frá Skeggsstöðum í Svartárdal, lauk B.A. prófi í íslensku frá Háskóla Íslands (1993), M.A. prófi í enskum bókmenntum frá Háskólanum í Leeds (1995), diplómanámi í hagnýtri fjölmiðlun frá HÍ (1996) og M.A. gráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands (2017). Hún hefur starfað sem blaðamaður, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, verkefnastjóri hjá Lögmannafélagi Hljóðbókasafn Íslands Marín Guðrún nýr forstöðumaður Marín Guðrún Hrafnsdóttir. MYND: STJORNARRADID.IS Íslands og sem sjálfstætt starfandi fræðimaður. Þá er Marín varaformaður Fræðagarðs. /PF Þökkum auðsýndan samhug og hlýju við andlát og útför Hilmis Jóhannessonar Hulda Jónsdóttir og fjölskylda 2 07/2020

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.