Feykir


Feykir - 19.02.2020, Blaðsíða 6

Feykir - 19.02.2020, Blaðsíða 6
Að sögn Drífu hafði hana árum saman dreymt um að hér á svæðinu væri starfræktur kvennakór og þeim stöllum hafi þótt það tilraunarinnar virði að prófa. Sigurlaug segir að í rauninni hafi þær ekkert athugað með viðbrögð við hugmyndinni fyrr en búið var að ráða söngstjóra og undirleikara og útvega æfingahúsnæði og skipuleggja ýmislegt fleira varðandi kórstarfið. „Þetta er sko kvennakór, allt skipulegt,“ skýtur Íris inn í en allri skipulagningu var lokið í júnímánuði 2010. Þá var hægt að fara að láta hlutina spyrjast út og auglýsa og um haustið hóf svo kórinn starfsemi sína með 35 starfandi félögum. Kosið var um nokkrar tillögur að nöfnum og varð nafnið Sóldís hlutskarpast. Viðtökurnar voru strax góðar og hefur félögum fjölgað jafnt og þétt. Í dag syngja tæplega 60 konur með kórnum og hafa margar þeirra VIÐTAL Fríða Eyjólfsdóttir verið með alveg frá upphafi. Kórfélagar eru á öllum aldri, allt frá rúmlega tvítugu til 80 ára aldurs en yngsti meðlimur kórsins frá upphafi var aðeins 14 ára. Félagarnir koma víða að, utan frá Hofsósi og vestur til Blönduóss og allt þar á milli. „Við reynum bara að hafa þetta skemmtilegt og viljum að konunum finnist gaman,“ segir Drífa. Fjölbreytt efnisval Stjórnandi kórsins er Helga Rós Indriðadóttir en hún hefur gegnt því starfi síðustu fimm árin. „Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fá svona aðlögun, ég kom ekki fyrr en eftir fimm ár. Sólveig Sigríður Einarsdóttir byrjaði með þær og lagði mikið á sig, sérstaklega seinnihlutann, að ferðast frá Reykjavík til þess að stjórna kórnum. En ég kom náttúrulega á alla tónleika og tók þetta inn í rólegheitunum,“ segir Helga glettnislega. „Þetta er fimmta starfsárið mitt og ég er búin að láta þær þreifa á hinu og þessu, svona verkefnalega séð, lagavalið er mjög fjölbreytt. Þær eru búnar að takast á við ýmislegt spennandi og strembið. Allt frá óperukórum til íslenskra þjóðlaga, allt þar á milli.“ „Já, og svæsnustu útlensku,“ bætir Íris við. „Svona eftir á að hyggja, þá er svolítið gaman að sjá hvað við vorum áræðnar, bæði söngstjórinn og við. Frá upphafi sungum við alls kyns lög en strax á öðru ári tókum við níu tungumála árið okkar,“ segir Íris og vísar þar til þess að þá voru textar á níu tungumálum á söngskrá kórsins. „Við vorum þarna nýbyrjaðar með einhvern kór þar sem þorrinn hafði ekki sungið upp á sviði áður, syngjandi á spænsku og ísraelsku og finnsku og rússnesku og ég veit ekki hvað og hvað, við vorum ekkert að þreifa okkur varfærnislega áfram.“ „Þetta er náttúrulega rosa- lega flott og mikill kjarkur að gera þetta. Þannig að eftir þeirra fortíð, þá er engin miskunn hjá mér. Ég hendi í Fyrir um það bil tíu árum síðan viðraði kona ein í Blönduhlíðinni í Skagafirði þá hugmynd við stallsystur sínar hvort ekki væri ráð að stofna kvennakór. Svarið var, „jú, við skulum stofna kór,“ og það var gert, rétt sisvona. Kórinn hlaut nafnið Sóldís og fagnar nú tíunda starfsári sínu. Konurnar sem um ræðir eru þær Drífa Árnadóttir á Uppsölum í Blönduhlíð, frænka hennar, Sigurlaug Maronsdóttir á Sauðárkróki og nágrannakonan Íris Olga Lúðvíksdóttir í Flatatungu. Þessar þrjár kraftmiklu konur skipa stjórn Sóldísar og hafa gert það frá upphafi. Þær, ásamt stjórnanda kórsins, Helgu Rós Indriðadóttur, gáfu sér tíma til að tylla sér niður með blaðamanni Feykis í síðustu viku, svona í lok vinnudagsins en rétt fyrir kóræfingu sem að þessu sinni var haldin á Löngumýri þó oftast fari æfingar fram í Menningarhúsinu Miðgarði. Valdimar Guðmannsson við kirkjugarðsvegginn. MYND: PF mikið á því.“ „Og svo byggist þetta líka á því að það sé góð stjórn, það skiptir líka mjög miklu máli fyrir starfsfólkið að það sé gott utanumhald og líka að halda uppi góðum anda, það hefur bara allt að segja,“ segir Helga og bætir við að kórinn hafi líka alltaf haft mikinn metnað til að vinna að sameiginlegu mark- miði. „Það hefur alltaf verið þannig hjá þeim að það er aldrei sungið með nóturnar, þær læra allt utan að og það er það sem gerir þetta svo skemmtilegt líka.“ Þó að kórinn æfi bara einu sinni í viku fer einnig fram mikið nám heima. Allar nótur þær hverju sem er,“ segir Helga, aðspurð um lagaval fyrir kórinn. „Þær koma nú oft með hugmyndir líka, sérstaklega Íris sem syngur oft einsöng, og hún er betur að sér í poppinu heldur en ég. En svo erum við svo heppnar með það að Rögnvaldur útsetur,“ en þar á Helga að sjálfsögðu við undirleikarann, Rögnvald Valbergsson, sem verið hefur með kórnum frá upphafi vega. „Það sem hefur náttúrulega verið lán í okkar starfi er hvað við höfum haft gott starfsfólk,“ bætir Drífa við, „söngstjórana tvo, Sólveigu og Helgu, og undirleikarann Rögnvald, þetta byggist náttúrulega mjög Metnaðarfullt söngstarf og góður félagsskapur Kvennakórinn Sóldís tíu ára Kvennakórinn Sóldís starfsárið 2019 - 2020. MYND: GUNNHILDUR GÍSLADÓTTIR Kveðið um kórinn Eins og í öllum góðum félagsskap er stundum kastað fram vísukorni. Kristín F. Jóhannesdóttir, Stína á Tyrfingsstöðum, er höfundur að þessum. Sú síðari er ort þegar Íris hafði setið raddlaus heima í einhverja daga. Lævi þrungið loftið tel, lítt þó mælist hagnaður. Sóldísirnar syngja vel og söngstjórinn er magnaður. - - - Ýmsar pestar eru að sveima sem angra raddsviðslagnirnar. Enda situr Íris heima og æfir bara þagnirnar. 6 07/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.