Feykir - 19.02.2020, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Forkeppni HM 2023 í körfu
Tveir Skagfirðingar
í landsliðshópnum
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik hefur leik í
forkeppni að undankeppni
HM 2023 á næstu dögum.
Tveir Skagfirðingar eru í
hópnum en það eru
Tindastólsmennirnir Pétur
Rúnar Birgisson og Sigtryggur
Arnar Björnsson sem spilar
nú með Grindavík. Auk þess
má nefna að Baldur Þór
Ragnarsson, þjálfari
Tindastóls, er aðstoðarþjálfari
Craig Pedersen landsliðs-
þjálfara og Baldur er
sömuleiðis styrktarþjálfari
liðsins.
Fram kemur á heimasíðu
KKÍ að fyrsti leikur liðsins
verði á útivelli gegn Kosovó á
morgun, fimmtudag, í Pris-
thina kl. 18:00 að íslenskum
tíma og verður hann í beinni
útsendingu á RÚV2. Íslenska
liðið flaug út í gær og verður
þar við æfingar fram að fyrsta
leik. Síðari leikurinn í þessum
glugga verður svo heima í
Laugardalshöllinni sunnudag-
inn 23. febrúar kl. 20:00 en þá
mætir Ísland liði Slóvakíu og
verður sá leikur einnig í beinni
á RÚV2.
Íslenska liðið leikur í einum
af tveimur fjögurra liða riðlum
forkeppninnar og er í riðli með
Slóvakíu, Kosovó og Lúxem-
borg. Efstu tvö liðin í lok þriðja
gluggans í febrúar 2021, þegar
liðin hafa leikið heima og að
heiman, fara áfram í aðra
umferð.
Það er skarð fyrir skildi að í
liðið vantar fjóra sterka pósta;
þá Elvar Má Friðriksson, Hauk
Helga Pálsson, Kristófer Acox
og Martin Hermannsson. /ÓAB
Geysisbikarinn undanúrslit - Tindastóll og Stjarnan 70-98
Þá er það bara gamla góða áfram gakk!
Tindastóll og Stjarnan mættust í frábærum
fyrri hálfleik í Laugardalshöllinni
miðvikudaginn í síðustu viku í undanúrslitum
Geysis-bikarsins. Stjarnan var tveimur stigum
yfir í hálfleik en það væri synd að segja að
liðin hafi mæst í síðari hálfleik því
Garðbæingar stigu Sport-Benzinn í botn og
skildu Tindastólsrútuna eftir í rykinu.
Stjarnan sigraði að lokum 70-98 og þó tapið
hafi verið súrt og sárt að vera einhent svona
úr Höllinni þá var fátt annað í stöðunni að
leik loknum en að grípa til gamla frasans:
Áfram gakk!
Stólana vantaði ekki stuðninginn frekar en fyrri
daginn og góð stemning á pöllunum.
Austurblokkin okkar fékk fljúgandi start og
Bilic, Brodnik og Perkovic virtust í stuði.
Stólarnir voru 9-4 yfir eftir rétt rúmar tvær
mínútur en þá hertu Garðbæingar varnarleikinn
og Stólabaninn Nikolas Tomsick fann fjölina allt
of snemma. Stjarnan snéri þá dæminu við og
komust yfir 13-18 en Simmons minnkaði
muninn með því að setja niður eitt víti og staðan
14-18 að loknum fyrsta leikhluta. Að mati
spekinga þurfti lið Tindastóls að halda
hraðanum í leiknum niðri til að eiga möguleika
gegn Stjörnunni en það var nógur hraði og hasar
í öðrum leikhluta og lið Tindastóls gaf ekkert
eftir. Liðin skiptust nú á um að taka stutt áhlaup
og leikurinn hin besta skemmtun. Axel Kára
setti niður tvo þrista í röð og jafnaði leikinn 24-
24 en þá gerðu Stjörnumenn níu stig í röð.
Stólarnir svöruðu að bragði með þristi frá
Geiger og sex stigum frá Bilic og allt jafnt að
nýju. Garðbæingar voru skrefinu á undan næstu
mínútur en Bilic jafnaði með þristi, 41-41, og
Jaka Brodnik kom Stólunum yfir í síðasta skiptið
í leiknum, 43-42, þegar 20 sekúndur voru til
leikhlés. Ægir Þór setti þá í túrbó-gírinn og
spólaði í gegnum vörn Stólanna, setti boltann í
körfuna og fékk víti að auki. Staðan í hálfleik 43-
45.
Perkovic jafnaði leikinn í byrjun síðari
hálfleiks en þá komu sjö stig frá Stjörnunni. Það
var skellur fyrir lið Tindastóls að Viðar var í
villuvandræðum en vandræði Garðbæinga
virtust þó jafnvel verri því Urald King fékk sína
fjórðu villu snemma í þriðja leikhluta í stöðunni
48-52. Líkt og í leik liðanna í Garðabæ nú eftir
áramót þá efldust Stjörnumenn þegar King var
kældur. Kyle Johnson og Tomsick gerðu sjö stig
í röð fyrir Stjörnuna sem náðu því ellefu stiga
forystu og nú var eins og Tindastólsrútan væri
föst í fyrsta gír og svo byrjaði hún bara að spóla
og sama hverjir voru sendir út að ýta – ekkert
gerðist. Smám saman rann mesti móðurinn af
okkar mönnum. Staðan að loknum þriðja
leikhluta var 60-73 og það var Stjarnan sem
gerði fyrstu sjö stig fjórða leikhluta, staðan 60-
80. Nú voru skrefin í vörn Stólanna þung og
Garðbæingar þutu í gegnum hana að vild, ef
skotin klikkuðu þá hirtu þeir bara sóknarfrákast
og settu næsta skot niður. Á meðan var allt erfitt
í sókn Stólanna, Stjörnumenn á tánum í
vörninni og lítið um opin færi og ef þau gáfust
geiguðu skotin oftar en ekki. 28 stiga rassskellur
í Höllinni því bitur staðreynd.
Bikarhelgin fyrir tveimur árum, þegar
Stólarnir urðu Maltbikarmeistarar, var frábær
og sennilega það allra besta sem lið Tindastóls
hefur sýnt í gegnum árin. Þá voru lið Hauka og
KR lögð í parket með krafti, áræðni, liðsheild og
leikgleði. Sú blanda var ekki til staðar á
miðvikudaginn – í það minnsta ekki í síðari
hálfleik. Allt of fáir leikmenn – ef einhverjir –
stóðu í lappirnar þegar mest á reyndi. Að
sjálfsögðu vitum við að þeir geta miklu betur.
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði
að leikurinn hefði verið stál í stál, síðan náðu
Stjörnumenn að búa til gott forskot í þriðja
leikhluta sem leiddi til þess að Stólarnir þurftu
að breyta leik sínum og það bara gekk ekki.
Jaka Brodnik var stigahæstur í liði Tindastóls
með 16 stig en Perkovic var með 19
framlagspunkta; gerði 12 stig og tók tíu fráköst.
Geiger var með 17 í framlag en hann gerði 10
stig og átti átta stoðsendingar. Bilic var með 10
stig en skoraði ekkert í síðari hálfleik frekar en
Simmons sem endaði með 5 stig. Pétur skilaði
sjö stigum en hann komst aldrei í takt við leikinn
og munar um minna. Tomsick og Johnson voru
stórgóðir í liði Stjörnunnar og þá áttu Tómas
Hilmars og Hlynur Bærings frábæran leik báðir
tveir. Ægir Þór skoraði ekki mikið en hann átti
15 stoðsendingar. Urald náði ekki að spila 15
mínútur áður en hann kláraði villukvótann en
það kom ekki að sök – eiginlega þvert á móti.
Stjarnan varð svo Geysisbikarmeistari karla
eftir 75-89 sigur á Grindavík í frábærum
úrslitaleik í Laugardalshöll á laugardeginum.
En svona er lífið og þessi úrslit hafa auðvitað
ekki komið neinum á óvart sem las völvuspá
Feykis í 48. tölublaði 2019.
Næsti leikur Tindastóls er 1. mars en þá
koma Fjölnismenn í heimsókn. Vonandi verða
strákarnir þá búnir að hrista af sér vonbrigðin
og þorrann. Áfram Tindastóll! /ÓAB
Stjörnumaðurinn Kyle Johnson í smá erfiðleikum gegn
Sinisa Bilic. MYND: FB-SÍÐA KKÍ
Skagfirðingarnir í landsliði KKÍ, Sigtryggur Arnar Björnsson og Pétur Rúnar Birgisson.
MYNDIR: HJALTI ÁRNASON.
Lúðvík Gunnarsson,
landsliðsþjálfari U15
kvenna, hefur valið Margréti
Rún Stefánsdóttur
markmann í Tindastól, í hóp
sem tekur þátt í
úrtaksæfingum dagana
24.-26. febrúar nk.
Margrét Rún er í hópi 24
annarra stúlkna sem flestar
koma frá liðum á höfuð-
borgarsvæðinu. Þrjár þeirra
eru frá Akureyri, tvær af
Akranesi, ein frá Vestmanna-
eyjum og ein leikur með
Racing Union Letzeburg í
Luxemborg. /PF
U15 kvenna
Margrét Rún í
úrtaksæfingum
Margrét Rún.
07/2020 5