Feykir - 19.02.2020, Qupperneq 7
og textar eru settar inn á
heimasíðu kórsins en auk þess
syngur Helga Rós allar
raddirnar inn svo konurnar
geta hlustað heima og lært.
„Þetta gengur í rauninni ekki
öðruvísi en að fólk vinni heima,
þetta er það stuttur tími, oftast
eru lögin í þremur röddum,
stundum fjórum, og þá fer
náttúrulega mikill tími í að
kenna hverja rödd fyrir sig.
Þannig að eftir því sem
undirbúningurinn er meiri,
þeim mun hraðar gengur þetta
og þeim mun meira gaman er
það líka. Að hafa unnið,
undirbúið sig, koma á æfinguna
og finna að það er að skila sér,
alveg eins og í öllu námi,“ segir
Helga Rós og konurnar taka
undir að það sé nauðsynlegt að
læra heima. Sumar sökkva sér
meira að segja svo mikið niður í
heimanámið að þær gleyma
stund og stað, rétt eins og
Sigurlaug gerði þegar hún var á
leið suður í strætó nýlega og var
svo niðursokkin í að hlusta á og
læra röddina sína að þegar
strætóinn fauk til í vindhviðu
veitti hún því enga eftirtekt fyrr
en hann var að koma sér inn á
veginn aftur.
Eins og áður segir er æft í
Miðgarði einu sinni í viku.
Konurnar leggja áherslu á að
þetta sé kvenvænn kór, eða eins
og Íris segir, æfingar eru ekki
fram eftir kvöldi og kórinn
tekur sér gott jólafrí. Ekki er
staðið í neinum fjáröflunum og
starfsemin er rekin á árgjöldum
og innkomu af tónleikum. Þá
má ekki gleyma því að
Uppbyggingarsjóður SSNV og
Menningarsjóður KS hafa stutt
dyggilega við bakið á kórnum í
gegnum tíðina, ásamt fleiri
góðum stofnunum og fyrir-
tækjum.
Í nógu að snúast á næstunni
Fastir liðir í starfi kórsins eru
konudagstónleikar í Miðgarði,
tónleikar á Sauðárkróki á
Sæluviku og heimsókn á Heil-
brigðisstofnunina á Sauðár-
króki. Einnig hefur kórinn farið
í ýmsar söngferðir, bæði í
nágrannasveitir í Eyjafirði,
Þingeyjarsveit og í Húna-
vatnssýslum og einnig hefur
verið farið suður yfir heiðar og
meðal annars sungið í
Hafnarfirði og í Reykjavík. Auk
þess hefur kórinn farið í
æfingaferð einu sinni á vetri,
langan laugardag, og haldið
árshátíð sína í tengslum við
hann, en veður og færð settu
strik í reikninginn að þessu
sinni.
Þessa dagana æfir kórinn
stíft fyrir konudagstónleikana
sem haldnir verða í Miðgarði
nk. sunnudag kl. 15:00.
Söngskráin í ár er fjölbreytt að
vanda og auk einsöngvara
kórsins, Írisar Olgu og Ólafar
Ólafsdóttur, ætlar kórstjórinn,
Helga Rós, að syngja einsöng að
þessu sinni og er það sannarlega
tilhlökkunarefni en eins og
margir vita á Helga að baki
glæstan feril sem
óperusöngkona við óperuna í
Stuttgart í Þýskalandi. Meðal
efnis á dagskránni er nýtt lag
eftir Eddu Björk Jónsdóttur
sem ættuð er úr Fljótunum en
foreldrar hennar búa á
Reykjarhóli á Bökkum og reka
þar gistiheimilið Gimbur. Lagið
er hluti af útskriftarverkefni
Eddu úr Listaháskólanum og er
samið við ljóð Ólínu Andrés-
dóttur, Til Kvenréttinda-
félagsins. Að sjálfsögðu verður
svo hið rómaða kaffihlaðborð
kórsins, sem boðið er upp á að
tónleikum loknum, á sínum
stað.
Fljótlega eftir konudagstón-
leikana ætlar kórinn svo að
leggja land undir fót og halda
suður yfir heiðar. Þar verður
sungið í Langholtskirkju laugar-
daginn 7. mars klukkan 16:00
og í Vinaminni á Akranesi
daginn eftir, sunnudaginn 8.
mars klukkan 15:00. Þegar nær
líður vori er ætlunin að syngja á
Skagaströnd auk hinna hefð-
bundnu tónleika á Sauðárkróki.
Í útrás á afmælisári
Á afmælisári er við hæfi að gera
sér dagamun og það ætlar
kórinn svo sannarlega að gera. Í
byrjun júní er förinni heitið í
átta daga ferð til Ítalíu þar sem
dvalið verður við Gardavatnið
og sungið á tveimur stöðum.
Þaðan verður haldið til
Þýskalands, til Stuttgart, þar
sem Helga Rós er öllum
hnútum kunnug og segist hún
vera orðin afskaplega spennt að
sýna kórnum óperuhúsið og
margt fleira skemmtilegt.
Þegar litið er yfir farinn veg
þessi tíu ár sem kórnn hefur
starfað hlýtur óneitanlega
margt að koma upp í hugann.
Sigurlaug nefnir að það hafi
verið ótrúlega bratt hjá þeim að
koma fram í fyrsta sinn eftir
aðeins fjórar æfingar haustið
2010. Það var á hátíðarsamkomu
þegar haldið var upp á 35 ára
afmæli kvennafrídagsins en þá
flutti kórinn nokkur lög og stóð
sig með sóma.
„Það sem mér finnst
einkenna þetta starf er bæði að
þetta er metnaðarfullt söngstarf
og líka það að á æfingum, þar er
mikið hlegið og mikið sungið
og það er ágætis agi en það er
líka gaman, þetta er góður
félagsskapur,“ segir Íris. „Það
hafa auðvitað margar konur
kynnst og myndast alls konar
vinabönd í kringum það, konur
sem þú vissir ekkert um hverjar
voru áður. En það mæðir
náttúrulega mest á
söngstjóranum að halda aga og
reglu á liðinu,“ bætir Drífa
glettnislega við. „Við reynum
bara að hafa þetta skemmtilegt.
En höfum sönginn náttúrulega
í fyrirrúmi, að hann sé í lagi, og
með Helgu Rós sem söngstjóra
þá höfum við engar áhyggjur af
því,“ segir Drífa að lokum.
Fullveldishátíð í Miðgarði 1. des. 2018. MYND: FE
Puntað upp á Helgu Rós fyrir tónleika.
MYND: AÐSEND
Á konudagstónleikum í Miðgarði 2019. MYND: FE
Sungið á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Sólveig Sigríður stjórnar.
MYND: AÐSEND
Sóldísir skemmta sér. MYND: AÐSENDRögnvaldur undirleikari, Sigurlaug, Íris, Drífa og stjórnandinn Helga Rós. MYND: FE
Hitað upp fyrir æfingu. MYND: AÐSEND
07/2020 7