Feykir


Feykir - 19.02.2020, Page 10

Feykir - 19.02.2020, Page 10
Síðasti dansinn var stiginn við Skansinn Króksarar, komnir af alléttasta skeiði, sem fylgdust með fréttum fyrir helgi hafa mögulega blakað eyrum þegar þeir heyrðu talað um að Blátindur VE21 hafi sokkið í höfninni í Vest- mannaeyjum sl. föstudags- morgun. Blátindur var áður SK88 og því fastagestur í Sauðárkrókshöfn, en hann og Týr SK33 voru lengi stærstu vélbátarnir sem gerðir voru út frá Króknum. Bæði Blátindur og Týr sem lengi lágu í nágrenni hvor við annan við Syðraplanið á Króknum, stundum líka kallað Kristinsplan, voru orðnir safngripir á efri árum. Týr tekur sig nú vel út á Síldarminja- safninu á Siglufirði, gjöf frá Svf. Skagafirði til safnsins, en Blátindur var gerður upp um aldamótin og lá nú síðast við Skansinn í Eyjum. Blátindur var byggður í Vestmannaeyjum árið 1947, 18,4 metrar að lengd og ríflega fimm metra breiður, og gerður út frá Eyjum fyrstu árin. Síðan frá Keflavík, þá Reykjavík og Grindavík. Samkvæmt heim- ildum Feykis er Blátindur skráður SK88 árið 1970 en er þá í eigu Lúðvíks Gizurarsonar en Fiskiðja Sauðárkróks er skráður eigandi árið 1972. Tindar sf. gera Blátind út frá Sauðárkróki frá árinu 1982 og hann er síðan seldur kvótalaus til Ólafsfjarðar 1990. Meðal þeirra sem stigu ölduna með Blátindi má nefna Stebba Páls, Mannsa, Agga Sveins, Hörð Fríðu og Kalla Hólm en sennilega hafa nú allnokkrir sjóarar komið við í Blátindi í gegn um tíðina. Í skýrslu Helga Mána Sigurðssonar frá árinu 2019, Stakir bátar, kemur fram að Blátindur hafi verið byggður af Dráttarbraut Vestmannaeyja hf. en meistari var Gunnar Marel Jónsson. Smíði Blátinds var hluti af raðsmíði fiskiskipa fyrir tilstilli ríkisstjórnarinnar til endurnýjunar á fiski- skipaflota þjóðarinnar í stríðslok og var hann meðal stærstu og glæstustu fiskiskipa Vestmannaeyinga þegar honum var hleypt af stokkunum 1947. Sem fyrr segir var Blátindur gerður út frá ýmsum verstöðvum vestan og norðan lands og var m.a. búinn fallbyssu og notaður sem varðskip í Faxaflóa sumrin 1950 og 1951. Í frásögn Árna Johnsen í fyrrnefndri skýrslu segir að Tryggvi Sigurðsson, vélstjóri og bátamódelsmiður, langafabarn Gunnars Marels, hafi séð Blátind í reiðileysi á Ólafsfirði sumarið 1992 og trúði vart sínum eigin augum, að báturinn væri enn til og héti Blátindur. Eyjamenn beittu sér fyrir því að eignast bátinn og dró Landhelgisgæslan hann til Vestmannaeyja árið 1993 en nánar má lesa um verndunar- sögu Blátinds á bls. 25-27 í skýrslunni Stakir bátar. Blátindur var færður á endanlegan stað, að Skansinum, vorið 2018 en í óveðrinu sem gekk yfir landið fyrir helgi greip Blátind gömul útþrá, hann sleit sig frá bryggju og flaut um höfnina nokkra stund áður en hann sökk. /ÓAB Blátindur VE 21 sökk í Vestmannaeyjahöfn sl. föstudag Blátindur SK 88 með „fullfermi“ á hátíðisdegi sjómanna á síðustu öld. Nafngift bátsins má rekja til Eyja en Blátindur heitir næst- hæsti tindur Vestmannaeyja, á eftir Heimakletti. ÚR MYNDASAFNI GUNNARS HELGASONAR Mannsi, Hartmann Halldórsson, skipstjóri á Blátindi SK 88. MYND MEÐ UMFJÖLLUN ÞÓRHALLS ÁSMUNDSSONAR Í DEGI 1986, DAGUR VIÐ SKELVEIÐAR Á SKAGAFIRÐI Það hefur oft gustað um bátana í Sauðárkrókshöfn. Hér eru þeir Blátindur SK 88 og Týr SK 33 á Syðra planinu einn vindasaman dag. ÚR MYNDASAFNI GUNNARS HELGASONAR Blátindur snurfusaður fyrir Goslokahátíðina sl. sumar en þá var unnið að því að rétta bátinn af eftir að hann fór af stað úr sætinu veturinn áður. MYND: EYJAR.NET Blátindur á leið í kaf sl. föstudag. MYND: EYAFRÉTTIR.IS/ÓSKAR PÉTUR FRIÐRIKSSON 10 07/2020

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.