Feykir


Feykir - 01.04.2020, Qupperneq 2

Feykir - 01.04.2020, Qupperneq 2
Þó allt liggi í láginni þessa dagana og samkomubann rétt hálfnað reynir fólk að gera sér lífið léttbærara með ýmsum hætti. Þannig höfum við m.a. orðið vitni að framlagi hinna ýmsu listamanna á flestum miðlum, upplestur, söngur, leikur og uppskriftir að hvers kyns afþreyingu með börnunum og e.t.v. margt fleira sem ég man ekki eftir að nefna. Það verður gaman að sjá hvernig umræðan verður við næstu úthlutun lista- mannalauna, hvort einhverjum hugkvæmist að leita eftir því hvort viðkomandi hafi gert eitthvað fyrir almenning í sam- komubanninu. Sama er mér þar sem ég er hlynntur listamanna- launum almennt. Reyndar má alveg eins búast við því að bannið verði fólki löngu gleymt eftir nokkra mánuði og allt komið á annan endann í venjulegu nútíma neyslufylleríi, sem við þekkjum fullvel. Eða kannski ekki. Þær dapurlegu aðstæður sem við upplifum nú hafa komið ýmsu góðu til leiðar og hefur náð að hægja örlítið á fólki, komið því til að líta lífið öðrum augum, virða náungann á annan og vonandi betri hátt og ekki síður að enduruppgötva hið raunverulega ríkidæmi, sem er hverjum og einum mikilvægt, þ.e. fjölskyldu og vini. Hver hefur ekki séð færslu á Facebook þar sem fjölskyldumeðlimir eru að gera eitthvað saman, úti að leika eða ganga, á bangsaveiðum, baka og jafnvel föndra, gott ef ekki einhverjir hafi uppgötvað að það er hægt að leggja kapal með pappaspilum. Fólk setur þetta fram eins og það hafi aldrei áður verið með sínum nánustu nema þá helst í sófanum fyrir framan sjónvarpið þar sem afþreyingunni er úðað út um skjáinn. En einhverjum kann að leiðast og það er líka allt í lagi. Ég heyrði einhvern tímann að börn hefðu gott af því að láta sér leiðast. Það á við fullorðna líka. Það er allt í lagi svo framarlega að maður geri eitthvað í því. Þeim sem leiðist ætti þá að taka sig til og skapa eitthvað skemmtilegt, fara út að ganga, fara á bangsaveiðar, gefa sig að börnunum, baka eða framkvæma eitthvað sem ekki hefur gefist tími til. Mér finnst það magnað að það þurfi banvæna veiru til að opna augu fólks fyrir þessum hlutum, sem í raun ættu að vera sjálfsagðir. En svo lengi lærir sem lifir og gamla máltækið á vel við á þessum tíma; Neyðin kennir naktri konu að spinna. Og svona rétt í lokin. Nú heyrist slagorð sem á að minna okkur á að fara varlega: „Ég hlýði Víði“. Allt í lagi, en ég spyr á móti: „Hver fór á skíði með Víði?“ Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Neyðin kennir naktri … Grásleppuveiðin fer vel af stað á Skagafirði en fimm grásleppubátar lönduðu á Sauðár- króki og á Hofsósi í síðustu viku. Á vefnum Aflafréttir.is segir frá því að Hafey SK hafi komið með fimm tonn að landi úr einum róðri og hafi þurft að fara tvær ferðir til þess að ná öllum sínum 15 trossum í land. Þá fékk Þorgrímur SK 4,3 tonn í sínum fyrsta grásleppuróðri og Steini G kom með 5,6 tonn af grásleppu úr einum róðri. Haft er eftir Þorvaldi Steingrímssyni á Steina G að aldrei hafi grásleppuvertíðin byrjað jafn vel þau tíu ár sem hann hefur stundað grásleppuveiðar. Heildarafli vikunnar á Norðurlandi vestra var 394.697 kíló, 34 tonnum var landað á Skagaströnd, 356 á Sauðárkróki og fjórum og hálfu á Hofsósi. /FE Aflatölur 22.– 28. mars 2020 á Norðurlandi vestra Grásleppuveiði á Skagafirði fer vel af stað SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 146.241 Fannar SK 11 Grásleppunet 8.430 Hafey SK 10 Grásleppunet 7.462 Kaldi SK 121 Grásleppunet 2.298 Málmey SK 1 Botnvarpa 183.411 Steini G SK 14 Grásleppunet 8.282 Alls á Sauðárkróki 356.124 SKAGASTRÖND Auður HU 94 Landbeitt lína 162 Blíðfari HU 52 Handfæri 2.512 Blær HU 77 Handfæri 1.559 Fengsæll HU 56 Grásleppunet 4.976 Hafdís HU 85 Línutrekt 482 Loftur HU 717 Handfæri 942 Onni HU 36 Dragnót 18.294 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 5.098 Alls á Skagaströnd 34.025 HOFSÓS Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 4.548 Alls á Hofsósi 4.548 Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum COVID-19 I Samkomubann Fyrstu smitin í Skagafirði Þegar þessi frétt er skrifuð, upp úr hádegi þriðjudags 31. mars, hafa verið greind 22 tilfelli af Covid-19 á Norður- landi vestra, þar af þrjú fyrstu smit í Skagafirði, sem greind voru um helgina. Uppruni þeirra smita eru utan héraðs- ins, samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum á Norðurlandi vestra. Alls eru 363 í sóttkví á svæðinu. Smitrakningu er lokið og hafa tengdir aðilar verið settir í sóttkví en ekki er talin þörf á neinum frekari aðgerðum vegna þessara smita. Úrvinnslusóttkví sem sett var á í Húnaþingi vestra þann 21. mars var felld úr gildi á miðnætti föstudagsins 27. mars. Sam- komubann er engu að síður í gildi líkt og annars staðar á landinu. Í gær 31. mars, voru alls 1.135 staðfest smit á landinu eftir 17.904 sýnatökur, 935 voru í einangrun, 35 á sjúkrahúsi þar af 11 á gjör- gæslu en 198 er bötnuð veikin. Alls voru 8.879 einstaklingar í sóttkví en 6.214 höfðu lokið henni. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru tvö látin, eftir því sem fram kemur á covid.is. Ef rýnt er í tölur um fjölda smitaðra eftir aldri má sjá að flestir eru þeir á aldursbilinu 40- 49 ára eða 250. Næstflestir eða 206 eru 50-59 ára en fæstir á aldrinum 90-99 ára, sex manns og átta eru 80-89 ára. Alls eru 577 konur smitaðar samkvæmt tölum gærdagsins og litlu færri karlar eða 558. Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra vill áfram biðja almenning um að gæta að öllum reglum sem settar eru fram vegna þessa sjúkdóms og gæta vel að eigin sóttvörnum. /PF Húsafriðunarsjóður úthlutar styrkjum Tæpar 30 milljónir á Norðurland vestra úr húsafriðunarsjóði Úthlutað hefur verið úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2020 og verða veittir að þessu sinni alls 228 styrkir að upphæð 304.000.000 kr. Alls bárust 272 umsóknir, þar sem sótt var um rétt rúmlega einn milljarð króna, eftir því sem kemur fram á heimasíðu Minjastofnunar. Tæpar 30 milljónir koma í hlut þrettán verk- efna á Norðurlandi vestra, athugið að upphæðir eru í þúsundum króna. Friðlýstar kirkjur í Skagafirði og Austur- Húnavatnssýslu: Fellskirkja 1.300 Hofskirkja 5.000 Reykjakirkja 200 Silfrastaðakirkja 5.000 Holtastaðakirkja 4.300 Þingeyraklausturskirkja 500 Friðuð hús og mannvirki: Hús Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga 2.500 Möllershús – Sjávarborg Hvammstanga 900 Deild Aðalgötu 10 á Sauðárkróki 1.600 Gúttó Sauðárkróki 5.000 Gilsstofa Glaumbær 1.200 Tyrfingsstaðir á Kjálka 2.000 Önnur hús og mannvirki: Gamli spítalinn Blönduósi 300 Lista yfir þau verkefni sem fengu styrk má finna á minjastofnun.is. Auk þessa fékk Byggðasafn Skagfirðinga 2,1 milljón úr Fornminjasjóði til uppfærslu, samræm- ingar og frágangs á stafrænum uppmælingar- gögnum frá árunum 2005-2019. /PF 2 13/2020 Gúttó á Sauðárkróki var byggt árið 1897 og var leikhús bæjarins fram á þriðja áratug síðustu aldar. Nú hýsir það myndlistarfélagið Sólon. MYND AF NETINU

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.