Feykir


Feykir - 01.04.2020, Blaðsíða 3

Feykir - 01.04.2020, Blaðsíða 3
Hafðu samband! Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is Viðskiptavinir Skagfirðingabúðar athugið! Vegna Covid 19 viljum við benda fólki á að hafa eftirfarandi tilmæli að leiðarljósi þegar versla þarf inn til heimilisins: - Aðeins einn komi frá hverju heimili til að versla. - Vera með tilbúinn innkaupalista til að innkaupin gangi hraðar fyrir sig. - Ekki koma í verslunina að nauðsynjalausu s.s. með því hugarfari að hitta mann og annan. - Virða fjarlægðarreglur milli óskyldra aðila, þ.e. hafa a.m.k. tvo metra í næsta mann. - Versla meira inn í einu svo fækka megi ferðum í búðina. - Nýta afgreiðslutíma eins og hægt er. Skagfirðingabúð og Almannavarnir Norðurlandi vestra HSN SAUÐÁRKRÓKI Breytt fyrirkomulag á heilsugæslu vegna COVID-19 Til að minnka líkur á smiti vinnur nú helmingur starfsmanna heilsugæslu að heiman og helm- ingur er á staðnum. Áhersla er lögð á að leysa vandamál í gegnum síma eða myndsamtöl en læknar geta bókað viðtöl ef nauðsynlegt er að hitta viðkomandi. Allar komur þarf að bóka fyrirfram og á það einnig við um blóðprufur. Símtöl er hægt að bóka á heilsuvera.is eða með því að hringja í síma 432 4200. Til að fá samband við vaktþjónustu er hringt í síma 432 4200 frá kl. 8-16 en eftir kl. 16 í síma 1700. Í bráðatilfellum skal alltaf hringja í 112. Sameining sveitarfélaga Undirbúningur dregst Undirbúningsvinna fyrir sameiningu sveitarfélaga víða um land, þar á meðal í Austur- Húnavatnssýslu, dregst á langinn vegna kórónuveiru- faraldursins sem nú geisar. Í Morgunblaðinu sl. mánu- dag var rætt við Róbert Ragn- arsson, framkvæmdastjóra RR ráðgjafar sem fer með verk- efnastjórn í sameiningarvið- ræðum sveitarfélaga á fjórum stöðum á landinu; á Suðurlandi, á Austurlandi, í Þingeyjarsýslu og í Austur-Húnavatnssýslu. Róbert segir að vinnan haldi áfram en það hægi á henni og afgreiðslur frestist enda þurfi sveitarfélögin á öllu sínu fólki að halda núna og hafi lítið svigrúm í önnur verkefni. Öllum verkþáttum þar sem fólk þarf að hittast á vinnustofum hefur verið frestað og það leiðir til þess að verkefnum mun seinka. „Við höfum verið með fjölmenna fjarfundi þar sem upplýsingum er miðlað og átt í samráði. Þeir fundir hafa gengið vonum framar, en fjar- fundaform hentar ekki nægi- lega vel fyrir vinnustofur,“ segir Róbert í viðtali við Morgun- blaðið. Vinna starfshópa mun því frestast en önnur grein- ingarvinna heldur áfram svo og reglulegir fjarfundir samstarfs- nefndarinnar. /FE Safnasjóður úthlutar Átta verkefni á Norður- landi vestra fá styrki Mennta- og menningar- málaráðherra hefur úthlutað styrkjum úr Safnasjóði að fenginni umsögn safnaráðs. Úr aðalúthlutun var úthlut- að 111 styrkjum til eins árs til 48 aðila að upphæð 139.543.000 króna. Auk þess voru veittir 13 Öndvegisstyrkir til viður- kenndra safna að upphæð 110.400.000 til þriggja ára. Þrjú söfn á Norðurlandi vestra fengu styrk til átta verk- efna, alls 9,5 milljónir króna, og skiptast þeir þannig. Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna kr. 3.000.000,- Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi kr. 2.400.000,- Byggðasafn Skagfirðinga kr. 4.100.000,- Sjá nánar á Feykir.is. /FE 13/2020 3 Viðskiptavinir Skagfirðingabúðar athugið! Ákveðið hefur verið að hafa fyrirkomulag við heimsendingar á Sauðárkróki óbreyttar frá því sem verið hefur. Við óskum eftir að viðskiptavinir reyni að panta fyrir eina viku í senn til að gera okkur þetta framkvæmanlegra. Ekki verður gjaldtaka fyrir heimsendingar og fyrirkomulag því eins og verið hefur. Pantanir sem berast fyrir kl. 13:00 verða afgreiddar samdægurs. Best er að senda pöntun á netfangið pantanir@skagfirdingabud.is eða hringja í síma 455 4545. Þetta fyrirkomulag verður endurskoðað á miðju þessu ári. Góðar kveðjur til ykkar allra. Skagfirðingabúð og starfsfólk Skagfirðingabúðar

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.