Feykir - 01.04.2020, Side 8
Hlustum á Konfúsíus
ÁSKORANDAPENNINN | palli@feykir.is
Konfúsíus, sá mikli
heimspekingur Kínverja,
var eitt sinn spurður um
það hvað stjórnvöldum
bæri að gera eftir að
friði og velmegun hefur
verið komið á í kjölfar
ófriðar- eða óróatíma.
Hann svaraði að bragði að
mennta ætti þjóðina.
Við erum í vanda stödd
þessa dagana og því er spáð
að erfiðleikarnir séu rétt að
byrja. Hugsanlega erum við
að sjá fram á svipaða kreppu
og setti samfélagið á hliðina
fyrir um rúmlega tíu árum
síðan. Þótt það kunni að
hljóma undarlega á þessari
stundu, þegar við erum að
ganga inn í storminn, að
velta fyrir sér hvað við gerum
eftir að þetta gjörningaveður
er afstaðið. Ég vil að við
tökum Konfúsíus á orðinu
og stöndum loksins við
stóru orðin um að stórefla
menntun, rannsóknir og
nýsköpun í landinu. Við
tölum gjarnan um slíka
framtíðarsýn á tyllidögum en
þrýtur gjarnan þolinmæðin
til að fylgja því eftir og áður
en við vitum af erum við
komin á kaf í eitthvað annað
sem gefur betur af sér þá
stundina. Niðurstaðan
er því sú að við stöndum
nágrannalöndum okkar
töluvert að baki á þessu
sviði. Hvernig væri að láta
núna verða af því að standa
við stóru orðin.
Ein áhugaverð hlið á því að
efla rannsóknir og nýsköpun
er byggðasjónarmið. Við
þurfum ekki annað en
líta til nærumhverfisins á
Norðvesturlandi til að sjá
glæsileg fyrirtæki sem eru
að vinna frábært starf í
rannsóknum og nýsköpun.
Það er nefnilega ekkert sem
segir að nýsköpun sé bundin
við Vatnsmýrina í Reykjavík
heldur þvert á móti eru
gríðarleg tækifæri fólgin í því
að auka verðmætasköpun
einmitt þar sem þegar er
verið að vinna verðmæti.
Glæsileg sprotafyrirtæki á
Skagaströnd, Sauðárkróki
og Siglufirði, svo nokkur
góð dæmi séu tekin, eru
sönnun þess. Og það er
ekki bara í sjávarútvegi sem
tækifæri til nýsköpunar
liggja. Landbúnaður og
ferðaþjónusta búa yfir
miklum tækifærum á þessu
sviði ef við bara gefum þeim
gaum, tíma og fjármagn. Ég
veit að hugsanlega höfum
við ekki þá þolinmæði sem
þarf í verkið, það verður víst
seint talin okkar sterkasta
hlið, en það væri sannarlega
kaldhæðni örlaganna ef
þessi blessaði vírus yrði þess
valdandi að við sem þjóð
myndum þroskast og temja
okkur meiri langtímahugsun.
- - - - - -
Magnús skorar á bróður
sinn, Ingvar Björnsson,
bónda á Hólabaki að taka
við pennanum.
Magnús. AÐSEND MYND
Magnús Björnsson frá Hólabaki
FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS | Hugi Halldórsson | palli@feykir.is
Stjórnar hlaðvarps-
þættinum FantasyGandalf
Króksarann Huga Halldórs-
son þekkja margir sem Ofur-
Huga í skemmtiþáttunum 70
mínútum sem vinsælir voru
á Popptíví á árunum 2000
til 2004 en eftir skólaárin
á Króknum flutti kappinn
suður og býr nú í Garðabæ.
Lengi vel rak hann Stórveldið
og síðar Heimsveldið sem
framleiddi mikið af innlendu
sjónvarpsefni en nú einbeitir
hann sér að sportþætti sínum
á hlaðvarpi, eða podcast, sem
enginn íþróttaáhugamaður
ætti að láta framhjá sér fara.
Hann er hægt að finna undir
nafninu Fantasy Gandalf.
Hugi segir okkur frá því
hvernig dagurinn líður frá
morgni til kvölds.
Starf: Þáttastjórnandi í hlað-
varpsþættinum Fantasy Gandalf.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi: Sumarið 2018 ákvað ég að
reyna gera sem minnst og fá sem
mest fyrir það. Fannst alveg galin
hugmynd að láta vinnuna slíta
sundur daginn hjá mér enda
margt mikilvægara en vinnan.
Við hvað vannstu áður: Var
sölustjóri hjá Vodafone í nokk-
ur ár, þar áður í eigin rekstri í 10
ár.
Hvenær hefst venjulegur vinnu-
dagur hjá þér? Vakna kl. 7:30 og
Hugi Halldórsson á toppi Table fjalls í Suður Afríku.
AÐSEND MYND
handstarta krökkum og konu á
fætur. Kem þeim svo í skóla kl. 9,
fer í ræktina til kl. 11, skoða
tölvupósta, jafnvel sendi 2–3
pósta úr símanum, set í vél, brýt
saman þvott, ryksuga og dytta
að öðrum heimilisverkum. Á
fimmtudögum er mesta álagið í
starfinu frá kl. 9–12 þá er ég að
taka upp hlaðvarpsþáttinn minn
FantasyGandalf... allir að sub-
skræba.
Hvað færðu þér í morgunmat?
Langoftast Havre Fras með
léttmjólk. Stundum nenni ég að
elda hafragraut af því það er ekki
svo tímafrekt. Reyndar er ég ekki
tímabundinn þannig að ég mætti
elda grautinn oftar.
Hvernig myndir þú lýsa venju-
legum vinnudegi hjá þér? Lítið
álag, helst ekki neitt. Mjög þægi-
legt að segja mér til, ég á auðvelt
með að fara eftir því sem ég segi.
Hvað er gert í kaffitímum? Ég er
meira og minna í kaffi allan
daginn, bara spurning hvernig
liggur á mér hvaða verkefni ég
tek að mér í kaffinu. Stundum
gott að hringja í vini mína sem
eru fastir í vinnu
Hvernig eyðir þú hádegishlé-
inu? Ég reyni kannski að hitta
einhvern upp úr kl. 11:30 þá
helst í 2–3 klukkutíma áður en
ég sæki börn í skóla uppúr kl.
14:30
Hvað er best við starfið? Fyrir
utan að þurfa ekki að gera neitt
þá er voða þægilegt að hafa allt
spik og span heima. Við hjónin
höfum ekki rætt heimilisstörf
síðan ég tók þau yfir með valdi.
Það eru svo forréttindi að sækja
börnin snemma og dunda með
þeim eitthvað skemmtilegt fram
að kvöldmat.
Ef þú þyrftir að skipta um starf
hvað gætir þú hugsað þér að
gera? Ég mundi vilja vera
bassaleikarinn í U2. Grunar að
það sé auðveldara en starfið mitt
í dag.
Eitthvað minnisstætt úr vinn-
unni sem þú vilt deila með
lesendum? Já það læddust einu
sinni rauðar nærbuxur af frúnni
með hvítum þvotti. Ég ákvað að
vera ekkert að segja henni frá því
enda eru töluverðar líkur á því að
ég eigi sökina. Það hefur ennþá
enginn á heimilinu minnst á að
það vanti hluta af hvíta fata-
safninu þeirra þannig ég slapp
vel.
COVID-19 I
Dægrastytting
í samkomubanni
Bangsaveiðar
í Skagafirði
Fólk hefur fundið ýmislegt
skemmtilegt sér til dægra-
styttingar í samkomubann-
inu sem nú er í gildi og hafa
foreldrar verið duglegir að
tileinka sér hina ýmsu
afþreyingu með börnum
sínum sem mörg hver eru
meira heima við en venju-
lega. Einn af þeim skemmti-
legu leikjum sem hafa verið
settir í gang eru bangsa-
veiðar í Skagafirði þar sem
reynt er að finna sem flesta
bangsa í gluggum héraðsins.
Leikurinn er geysivinsæll
enda fólk duglegt að setja
bangsa og önnur tuskudýr út í
glugga og þeir sem eru á gangi
með börnin sín hafa nóg að
gera í veiðiskapnum eða rétt-
ara sagt að skoða, telja eða
spekúlera í litum bangsanna.
Fyrirmyndin er fengin að láni
úr höfuðborginni þar sem ein
mamman í Laugarneshverfi
kom þessum leik af stað en á
Mbl.is kemur fram að upp-
haflega komi hugmyndin
erlendis frá. /PF
Bangsi út í glugga getur skemmt
mörgum í samkomubanninu sem
nú ríkir á landinu.
MYND: FB BANGSAVEIÐAR
Í SKAGAFIRÐI
8 13/2020