Feykir


Feykir - 01.04.2020, Blaðsíða 10

Feykir - 01.04.2020, Blaðsíða 10
NAFN: Ágúst Kárason. ÁRGANGUR: 1964. FJÖLSKYLDUHAGIR: Sambýliskona, fjögur börn og tvö barnabörn. BÚSETA: Reykjavík, Meistaravellir, Vesturbær. HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Foreldrar eru Gerður Geirsdóttir (Geir og Inga, Brekkukoti í Blönduhlíð) og Kári Steindórsson (Steindór og Fjóla á Hólmagrund 7 Sauðárkróki). Fæddur og uppalinn á Sauðárkróki og Brekkukoti Blönduhlíð. STARF / NÁM: Jeppabílstjóri og leiðsögumaður til fjalla og jökla undanfarin 10+ ár. Grunnskólapróf og fjöldi námskeiða sem tengjast vinnu. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Stend á þessum blessuðu tímamótum. Ferðaþjónust- an hrunin vegna Corona-vírusins svo nú liggja leiðir til allra átta og eitt- hvað verulega spennandi mun gerast. Gústi Kára ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is Hvernig nemandi varstu? Slarkfær, fylgdist með en náði illa að halda athygli, hugurinn alltaf fyrir utan skól- ann – þetta slapp til. Hvað er eftirminnilegast frá fermingar- deginum? Stóra gjöfin, hestur með öllum reiðtygjum. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Sjómaður og það tókst, bæði að verða stór og fór á sjóinn mjög ungur. Annars hefur alltaf blundað í mér þessi þrá að ferðast um hálendið og okkar einstöku náttúru. Það fæ ég væntanlega frá henni ömmu minni á Hólmagrundinni, henni Fjólu Ágústsdóttur. Hún ferðaðist mikið og tók okkur krakkana með. Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Bílar og veiði- stangir. Besti ilmurinn? Nýslegið gras í sveit- unum. Hvar og hvenær sástu núverandi maka þinn fyrst? 1986. Önnur hæðin í Þýskalandi [við Kirkjutorgið á Króknum]. Þar leigði hún og sonur hennar her- bergi og ég var á þriðju hæðinni. Þarna hittumst við í fyrrsta sinn, ég að koma af sjónum (trillukall), haugdrullugur og illa lyktandi. Hvað hún sá við þennan 202 sm slána er mér enn hulin ráðgáta. Síðan eru liðin 34 ár. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Ég er frekar opinn fyrir tónlist. Á þessum árum var allt rokk, helst þungt, í spilaranum. AC/ DC, Nazaret og slíkar grúbbur og svo að sjálfsögðu íslensk dægurlagatónlist – það sem maður getur sungið með. Hvernig slakarðu á? Í útilegu með fjölskyldu og vinum, helst á fjöllum eins langt frá öllum skarkala lífsins eins og hægt er að komast. Hverju missirðu helst ekki af í sjón- varpinu? Allt sem viðkemur körfubolta. Besta bíómyndin? James Bond 007. Þarfnast ekki frekari útskýringa. „Allir drepnir og leikstjórinn líka,“ sagði afi Steindór. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Nr. 42 í LA Lakers. James Worthy. Og Jón Arnór Stefánsson sem og Pétur Guðmundsson. Allt körfu- boltamenn sem hafa skarað fram úr á stóra sviði körfuboltans. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Að henda í góða veislu með stuttum fyrirvara gerir enginn betur en ég á þessu heimili. Svo hef ég geggjaða rýmisgreind svo ég þarf að raða öllum hlutum í sérstakri röð til að auðvelda aðgengi að þeim. Þetta getur farið í taugarnar á mjög svo óskipulögðu fólki, nefni engin nöfn. Hvert er snilldarverkið þitt í eld- húsinu? Lambakjöt og fisk finnst mér skemmtilegast að vinna með. Ég sé nánast alltaf um eldamennskuna þegar einhver veisla er í gangi, enda vann ég sem kokkur til sjós og hef gríðarlega gaman af eldamensku. Hættulegasta helgarnammið? G&T – slæmt daginn eftir. Hvernig er eggið best? Á mörkum þess að vera hart og lint. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Þegar ég rýk upp og rífst og skammast í fólki, þá líður manni oft illa á eftir. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Leti og skipulagsleysi. Hver er elsta minningin sem þú átt? Hólmagrund 7, afi Steindór og pípan. Ég á þessa pípu í dag. Brekkukot í Blönduhlíð, Paradís og minningar sem aldrei gleymast. Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Eiríkur Hilmisson. Fengi að vera lítill fyrir hádegi og hann stór eftir hádegi – fengjum báðir mikið fyrir lítið, vinn vinn fyrir báða. Svo er hann einstakur skemmtikraftur. Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur? Útkalls-bækurnar eftir Óttar Sveins, þær lýsa raunverulegum atburðum, sjóslysum og björgunum, atburðum til jökla og fjalla. Einstaklega vel unnar frásagnir og oft erfitt að lesa því þetta stendur manni nær en maður heldur. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Þetta hefst. Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Siggu Kára, Sossu Kára og Herdísi Kára. Þetta eru systur mínar og ég bara þori ekki að nefna neina aðra. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Ekkert. Ég myndi ekki vilja breyta neinu, ég hef það eins og ég á skilið, Gott. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Þetta hefst. Framlenging: Er rétt að byrja seinni hálfleik og hlakka einfaldlega til þess að berjast fyrir framlengingu. Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... til Chile Patagonia, algjör paradís veiði- manna. Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Gera Tindastól að Íslandsmeisturum í körfubolta. Eignast hús á friðsælum stað í Skagafirði. Veiða og spila golf miklu meira en ég geri í dag.Gústi bætir á tankinn. MYND AF NETINU 10 13/2020 Ég velti fyrir mér fyrir hverja aðgerðapakkar ríkisins eru gerðir, til að mynda varðandi ferðaþjónustufyrirtækin. Nú hefur það komið fram að ríkið muni halda Icelandair á floti og heyrst hefur að Bláa lónið sé komið á ríkisjötuna. Þetta á eflaust við um mörg fleiri fyrirtæki í ýmis konar ferðaþjónustu og virðist engu skipta þótt milljarðar á milljarða ofan hafi mörg undanfarin ár verið greiddir út úr mörgum þessara fyrirtækja í formi arðs til skráðra eigenda. Það er allavega ljóst að þessi stóru fyrirtæki hljóta vernd ríkisins, nokkurs konar skjaldborg vegna ástandsins í þjóðfélaginu og heiminum. Nú velti ég því fyrir mér hvar að- gerðirnar til bjargar litlu ferðaþjónustufyrirtækjun- um eru? Hér í Skagafirði og um allt land eru lítil og meðalstór ferðaþjón- ustufyrirtæki, mörg þeirra eru fjölskyldufyrirtæki sem svo bæta við sig starfsmönnum á annatímum og þá aðallega á sumrin. Ekki fæ ég séð að til standi að bjarga þessum fyrirtækjum með aðstoð úr ríkissjóði, en niðurgreiðslur launa virka ekki þegar ekki er neinn starfsmaður ráðinn vegna þess að búið er að afpanta alla gistingu og alla afþreyingu sumarsins og þar með ársins 2020. Eigendur þessara fjölskyldufyrirtækja þurfa eftir sem áður að greiða skatta og skyldur af sínu reiknaða endurgjaldi því ekki hefur skatturinn fram til þessa gefið eftir af sínu. Eftir stendur að innkoma ársins verður engin þrátt fyrir að kostnaðarliðir margir hverjir standi eftir, t.d. hiti, rafmagn, fasteignagjöld, skattar og önnur gjöld ásamt svo því sem búið er að eyða í lagfæringar og endurbætur fyrir komandi vertíð sumarsins, sem ekki varð. Einhvern veginn get ég ekki séð fyrir mér hvernig þetta útspil með 5.000 kr. gjafabréf til almennings bjargi þessum fyrirtækjum og hlýtur það að teljast afar ómarkviss aðgerð þegar ástandið er þannig að enginn ferðast og skemmtir sér. Ég viðurkenni að ég hef allnokkrar áhyggjur af heimsfaraldri kórónuveirunnar og velti fyrir mér hvort nóg hafi og sé að gert til að minnka áhættuna. Ég velti líka fyrir mér hvort ástandið hér á landi verði svo slæmt að okkar frábæra heilbrigðisstarfsfólk þurfi að velja og hafna hverjir hljóti meðferð og verði þar með bjargað ef ekki verður til nóg af búnaði, lyfjum, starfsfólki og aðstöðu. Úr því sem komið er getum við líklega bara farið varlega hvert og eitt, verið okkar eigin „almannavarnir“. Eftir standa þessi skilaboð sem ég sendi ríkisstjórn Íslands og þingmönnum öllum: Þið þurfið að passa upp á litlu fjölskyldufyrirtækin í landinu s.s. í ferðaþjónustu, landbúnaði, einyrkja sem og öðrum greinum atvinnulífsins. Þetta eru fyrirtækin, ásamt öðrum, sem halda uppi byggð í landinu og þurfa að vera klár í slaginn þegar við komumst í gegnum þetta ástand. Nú er rétti tíminn til að standa með smáfyrirtækjunum og þar með heimilum landsins því þar á milli verður ekki skilið. Högni Elfar Gylfason Korná, Skagafirði AÐSENT | Högni Elfar Gylfason skrifar Aðgerðapakkar fyrir hvern...

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.