Feykir - 13.05.2020, Qupperneq 6
NAFN: Kristín Guðmundsdóttir.
ÁRGANGUR: 1979.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Maður og fjögur börn.
BÚSETA: Hvammstangi.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Dóttir Ragnheiðar og
Guðmundar. Alin upp lengst af í Reykjavík.
STARF / NÁM: Garðyrkjubóndi og garn-litari.
Lærður vefhönnuður samt.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Sá og planta í Skrúðvangi gróðurhúsi
og halda áfram að byggja upp Vatnsnes Yarn.
Kristín
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Hvernig nemandi varstu?
Meðalnemandi. Hefði örugglega
gert betur væri ég ekki svona
sveimhuga.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Fruntalega
ljót fermingarfötin og hittingur
vinanna um kvöldið.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Bóndi lengst af.
Þar á eftir og ennþá, er það ekki
ákveðið.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Brúni bangsinn minn, blöðin og
litirnir.
Besti ilmurinn? Af nýslegnu.
Hvar og hvenær sástu núverandi
maka þinn fyrst? Út um glugg-
ann á Hvammstangabrautinni.
Rafmagnað móment.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Pearl Jam
og fleira í grunge geiranum.
Hvernig slakarðu á? Með því
að gera eitthvað sem mér finnst
vera skemmtilegt.
Hverju missirðu helst ekki af
í sjónvarpinu? Ahh... horfi ekki
á sjónvarp, er frekar í einhverju
þáttaglápi. Friends anyone?
Besta bíómyndin? Horton
hears a Who. Því mér líkar text-
inn í myndinni. Og svo er hún
skemmtileg.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Ég fylgist
ekkert með íþróttum en allir sem
sýna æðruleysi þrátt fyrir að vera
bæði ákveðin, staðföst og með
skýrt markmið sem unnið er að,
eiga aðdáun mína.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Virðist
vera með ósýnilegan en mjög
powerful radar á hvar allt er að
finna. Fólk flykkist að mér eins
og mý að mykjuskán til að fá að
njóta þessarar snilligáfu.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Skúffukakan.
Hættulegasta helgarnammið?
Helgarnammi? Alla daga M&M.
Er að reyna að hætta.
Hvernig er eggið best? Hrært.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Fljótfærnin. Hún er
reyndar bæði kostur og galli.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Undirförult
fólk og fólk sem getur ekki verið
einlægt.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? Aldrei er ein báran stök.
Af því að það er satt.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Bláir strigaskór með hvítri
rönd sem ég fékk þegar ég var
um 4 ára.
Þú vaknar einn morgun í líkama
frægrar manneskju og þarft
að dúsa þar einn dag. Hver
værirðu til í að vera og hvað
myndirðu gera? Jón Jónsson, ég
myndi vera glöð og syngja allan
daginn.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Brené
Brown og allar bækurnar hennar.
Vegna þess að ég hef mikinn
áhuga á mannlegu eðli.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Glimrandi.
Hvaða þremur persónum vild-
irðu bjóða í draumakvöldverð?
Ragnhildi Gísla, Páli Óskari og
Elizabeth Gilbert. Ég myndi biðja
þau að kenna mér allt sem þau
kunna.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Í skóg-
ræktina fyrir ofan bóndabæinn
ömmu og afa (Breiðabólsstaður
í Ölfusi). Man ekki eftir að hafa
komist í aðra eins ró og nánd við
náttúruna og þá.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Flutningarnir.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flug-
vél og réðir hvert hún færi, þá
færirðu… Gefið að nú er búinn
að vera vetur í hundrað ár, þá
myndi ég fara til heitra landa.
Kristín. AÐSEND MYND
Þeir snúast fjarri lausnar leið
í lífsins öfugstreymi,
og ganga þar á svartan seið
í sjúkum veruheimi.
Þeir reyna ekki að rata heim
en ráfa um í villu.
Þeir haldnir eru af huga þeim
sem hlýðir bara illu.
Þeir sakarefnin sækja í
og safna að sér meinum.
Og vilja í engu vita af því
sem vegi lýsir hreinum.
Þar smýgur eitur inn í blóð
með óláns hlöðnum kveikjum.
Þá merkir stöðug mæðuslóð
og mát í öllum leikjum.
Þeim fylgir allt frá fæðingu
það fár sem má ei dvína.
Og veldur banablæðingu
sem brautir allar sýna.
Á sálir þeirra verkar vá
svo vilji góðs þar kafnar.
Það afl til dauða dregur þá
sem dyggðum öllum hafnar!
AÐSENT | Rúnar Kristjánsson
Glötunarsynirnir
Starfsfólk ráðhúss tekur til hendinni
Hófu umhverfisdaga
2020 á mánudag
Starfsfólk ráðhúss Sveitar-
félagsins Skagafjarðar tók
forskot á Umhverfisdaga
2020 og hóf áskorenda-
leikinn sl. mánudag er það
hreinsaði rusl við strand-
garðinn og í kring við
Strandveg, fyrir neðan
Sæmundargötu. Eftir góðan
dag og mikinn afla var
ákveðið að skora á Byggða-
stofnun og Tengil ehf. að
bregða sér út í vorið og fegra
umhverfið.
Á síðasta ári var farið í
samskonar verkefni sem gekk
framar vonum. Mikil þátttaka
fólks um allt hérað skilaði
hreinna og fallegra umhverfi og
ekki síst skemmtilegri samveru
fólks í uppbyggjandi störfum.
„Munum að merkja myndirnar
#umhverfisdagar20. Við
hvetjum sem flesta til þess að
taka þátt. Margar hendur vinna
létt verk!“ segir á Facebook-
síðu Svf. Skagafjarðar en þar er
hægt að sjá fleiri myndir af
ráðhúsfólki í fegrunar-
aðgerðum. /PF
Hluti starfsfólks ráðhúss Svf. Skagafjarðar við Strandgötuna á Sauðárkróki. Sumir
mundu nú ekki eftir þessu verkefni er þeir mættu til vinnu og höfðu ekki alveg klætt
sig eftir tilefninu en létu það samt ekki á sig fá. Mynd: PF
6 19/2020