Feykir


Feykir - 27.05.2020, Qupperneq 3

Feykir - 27.05.2020, Qupperneq 3
Hafðu samband! Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is Aðalfundur Vilko var haldinn föstudaginn 15. maí síðastliðinn. Í frétt á huni.is segir að fram komi í tilkynningu frá félaginu að rekstratekjur hafi numið 266 milljónum króna árið 2019 og hafi hækkað um 23% milli ára. Rekstargjöld fyrir fjármagnsliði námu 259 milljónum og jukust um 14% milli ára. Minniháttar tap var á rekstri félagsins eða rúmar tvær milljónir króna. Alls greiddi Vilko 90 milljónir í laun og launatengd gjöld á árinu en að jafnaði starfa þar 12-15 starfsmenn. Húni hefur eftir Kára Kárasyni, framkvæmdastjóra Vilko, að vinnsla og sala hafi gengið vel það sem af er þessu ári, þrátt fyrir að sala til stóreldhúsa og veitingahúsa hafi nær alveg stöðvast. Mikil söluaukning hefur verið á klassískum Vilko vörum og Prima kryddum undanfarna mánuði. Í fyrra var hafin bygging á 160 m2 viðbyggingu sem nýtast mun sem móttöku- og afgreislusalur. Nýja viðbyggingin mun breyta allri vinnuaðstöðu, að sögn Kára, þar sem vörur séu meðhöndlaðar og geymdar á brettum en jafnframt verði sett upp vörulyfta til að flytja vörur milli hæða. Þá segir Kári að stöðugt sé unnið að vöruþróun og nýjungum. Nýjasta afurðin sé Amerískar pönnukökur sem þykja hafa heppnast gríðarlega vel. Stjórn Vilko skipa þau Jóhannes Torfason, formaður, Guðbjörg Óskarsdóttir, Ólafur Johnson, Ágúst Sindri Karlsson og Jón Gíslason. /FE Rekstrartekjur hækka um 23% milli ára Aðalfundur Vilko Vilko á Blönduósi. MYND: FE Fyrir skömmu var efnt til leiks á Facebooksíðu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þar sem fólk var beðið um að skrá í athugasemd það sem því líkaði best við að búa á Norðurlandi vestra. Þátttaka í leiknum var mjög góð og voru ástæðurnar fjölbreyttar þó rauði þráðurinn hafi verið fólkið og náttúran. Athugasemdirnar voru teknar saman og búið til orðaský yfir það sem fram kom. Stærð orðanna segir til um hversu oft þau komu fyrir. „Það er nauðsynlegt að minna sig á þau forréttindi sem við búum við á Norðurlandi vestra. Þau sjást glöggt á orðaskýinu,“ segir á vef samtakanna. /FE Það besta við að búa á Norðurlandi vestra SSNV Orðaský yfir það besta á Norðurlandi vestra. MYND: SSNV.IS Handbendi Brúðuleikhús fékk á dögunum styrk að upphæð 3.470.000 kr. þegar styrkjum var úthlutað til atvinnuleikhópa í átaksverkefni í menningu og listum fyrir árið 2020. Einnig fékk leikhúsið tveggja milljóna króna styrk þegar úthlutað var úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2020. Sjóðurinn var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands og hefur það hlutverk að styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífinu. Styrkina hlýtur Handbendi Brúðuleikhús til að standa að alþjóðlegri brúðulistahátíð á Hvammstanga; Hvammstangi International Puppetry Festival. Hátíðin er ný hátíð, sem ætlað er það hlutverk að auka fjölbreytni menningar í Húnaþingi vestra og gefa börnum á svæðinu tækifæri til að taka þátt í vönduðum listviðburðum á hátíð þar sem íslenskir og alþjóðlegir brúðulistamenn bjóða upp á brúðusýningar, vinnustofur og fyrirlestra. Handbendi hlaut einnig styrk frá Barnamenningarsjóði á síðasta ári fyrir sumarnámskeiði í leiklist. /FE Fékk tvo myndarlega styrki Handbendi Brúðuleikhús Úr sýningu Handbendis, Engi. MYND: HELEN MURRAY Á fundi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagastrandar þann 19. maí sl. voru ársreikningar sveitarsjóðs og stofnana þess fyrir árið 2019 lagðir fram til seinni umræðu. Rekstrar- niðurstaða var jákvæð um 22,8 milljónir króna en árið 2018 var hún einnig jákvæð, þá um 16,5 milljónir. Tekjur A-hluta voru 587 milljónir króna og rekstrar- gjöld án afskrifta námu rúmlega 571,6 milljónum. Rekstur A-hluta fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld var því jákvæður um 15,3 milljónir. Rekstrarniðurstaða A-hluta að teknu tilliti til fjár- munatekna og afskrifta var neikvæð um 2,8 milljónir króna. Heildareignir sveitarfélags- ins námu í árslok 1.831,1 milljón króna og var eigið fé 1.347 milljónir. Langtíma- skuldir sveitarfélagsins námu 229,9 milljónum og tilheyra þær eingöngu félagslegum íbúðum. Engin ný lán voru tekin á árinu. /FE Rekstur sveitarfélagsins skilaði afgangi Skagaströnd Golfklúbbur Skagafjarðar Uppbókað á nýliðanámskeið Félagar í Golfklúbbi Skagafjarðar hafa verið duglegir við golfiðkun undanfarna daga en vegna Covid hafa nokkur atriði tekið breytingum frá því sem var. Þannig hafa holur verið grynnkaðar, óheimilt að snerta golfflögg og sandgryfjur eru hrífulausar. Búið er að opna á allar sumarflatir nema þá níundu, en það stendur til bóta fyrir mánaðamót. Í tilkynningu frá GSS segir að félagar séu að venjast nýju skráningarkerfi en gerð er krafa um að kylfingar skrái rástíma áður en spilað er. „Segja má að völlurinn hafi verið vel nýttur um helgina og góð eftirspurn eftir rástímum. Nú bregður svo við að uppbókað er á nýliðanámskeið og því þarf að bæta við aukanámskeiði. Skráning á námskeiðið er hjá Dagbjörtu Rós (dagbjort79@live.com) formanni nýliðanefndar GSS,“ segir formaður GSS, Kristján Bjarni Halldórsson. Hann segist ánægður með mikinn áhuga á golf- íþróttinni í Skagafirði og vonar að klúbburinn geti tekið á móti öllum sem óska inngöngu. „50 ára afmælismót GSS verður 27. júní og líklegt að kastljósið verði á Skagafirði þá, a.m.k. hafa nokkrir fjölmiðlar sýnt mótinu áhuga. Stjórnin vinnur nú að því að afla vinninga fyrir mótið og vill helst hafa þá úr heimahéraði til að vekja athygli á mat, drykk, þjónustu og öðru sem Skagafjörður hefur að bjóða,“ segir Kristján. /PF Paradís á Nöfunum. MYND: GSS.IS/HJALTI ÁRNASON 21/2020 3

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.