Feykir


Feykir - 27.05.2020, Qupperneq 5

Feykir - 27.05.2020, Qupperneq 5
Bæjarnafn þetta þekkist fyrst í brjefi frá 1384 (DI. III. 375) stafsett eins og nú: Kurfr, og finst eftir það öðruhvoru óbreytt, og má því álíta það sje óbjagað. (Stundum – frá síðari öldum – : Kurbur en þó sjaldnar – sunnlenzk afbökun? Sbr. Kálbatjörn). Samnefni eru engin til svo jeg viti. Kurfur er bygður úr Örlygsstaðalandi (rjett: Ormlaugarstaðir) og orðið þýðir „lítið afskorið stykki“. Þegar höggvinn var skógur til kolagerðar, var viðurinn bútaður sundur og kallaðist að kurfla viðinn, áður en sett var í gryfjuna. Af því er talshátturinn dreginn: „ekki koma öll kur(f)l til grafar“, ef e-ð þykir vanta af e-u. Sögnin kyrfa hefir verið vel þekt til forna og þýddi að skera eða skifta e-u. (Í Jónsbók stendur: „Þeir (þ.e. skiftamenn) eiga at þverkyrfa hús í sundr en eigi at endilöngu skifta“, bls. 106). Sama verður upp á teningnum ef litið er á uppruna orðsins. Það er talið stofnskylt engilsax. Ceorfan, þ.e. skera (e. carve). Náfrændur íslenzka orðsins eru t.d. norska orðið karfa = brytja (eða skera) e-ð í smátt, og fær. karva. (Kurfur er líka á engils. cyrf: skurður). Landið á Kurfi er dálítil (afskorin) sneið af heimajörðinni forðum, og af því hefir bærinn fengið nafnið. Kurfur á Skagaströnd TORSKILIN BÆJARNÖFN Séð heim að Örlygsstöðum, (eða Ormlaugarstöðum?), 17. maí sl. á þjóðhátíðardegi Noregs. Til vinstri er gamli Örlygs- staðabærinn en sá nýi hægra megin á myndinni. MYND: RAFN INGI RAFNSSON. AÐSENT I Rúnar Kristjánsson Hugað að Ernu Rannsóknir og leiðréttingar Margeirs Jónssonar Ástkær móðir okkar Kristín Bjarnadóttir Dvalarheimili HSN á Sauðárkróki lést sunnudaginn 24. maí sl. Útförin verður auglýst síðar. Bjarni Maronsson, Sigurlaug Maronsdóttir og fjölskyldur. ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Smábæjaleikunum á Blönduósi hefur verið aflýst í sumar en leikarnir hafa verið haldnir 16 sinnum og jafnan verið vel mætt til leiks. Smábæjaleikarnir eru fyrir knattspyrnulið yngri flokka og á síðasta ári voru 62 lið skráð til keppni með um 400 þátttakendum. Þá voru um 300 aðstandendur í fylgdarliði leikmanna. Í frétt á vefnum huni.is kemur fram að í tilkynningu frá stjórn knatt- spyrnudeildarinnar segi að þessi ákvörðun sé tekin með þungum hug en að vel ígrunduðu máli. Mótið sé brothætt í eðli sínu hvað fjölda þátttakenda varði og að hvert einasta lið skipti máli. Því sé öðruvísi farið á stóru mótunum hjá stærri félögum þar sem jafnvel 10-15 lið til eða frá skipti ekki sköpum. Ekki á að leggja upp laupana og ætlunin er að koma sterk inn á næsta ári. „Því vonum við innilega að þau félög sem hafa haldið tryggð við okkur undanfarin ár og þau félög sem áhuga hafa á að koma á Smábæjaleikana skilji þessa ákvörðun okkar og mæti til okkar galvösk að ári,“ segir í tilkynningunni. /FE Engir Smábæjaleikar í sumar Covid áhrif í boltanum Skagfirðingurinn Darri Freyr Atlason hefur verið ráðinn þjálfari Íslands- meistara karla í körfubolta og tekur við af hinum sigursæla þjálfara Inga Þór Steinþórssyni sem sagt var upp á dögunum. Sá átti tvö ár eftir af samningi sínum við Vesturbæjarliðið. „Ég tek við KR-liðinu af auðmýkt. Það var magnað að ganga inn í salinn í fyrsta skipti sem þjálfari KR eftir að hafa sett blek á blað. Ábyggilega verður það enn þá magnaðra þegar hægt verður að spila körfubolta. Í liðinu eru leikmenn sem ég ber mikla virðingu fyrir. Leikmenn sem ég ólst upp með og leikmenn sem ég fylgdist með sem áhorfandi. Sumir þeirra voru stjörnur þegar ég var að alast upp. Að fá tækifæri til að vinna með þeim að því að vinna áttunda titilinn í röð verður frábært,“ sagði Darri í viðtali á Mbl.is sl. mánudag en KR vann sex ár í röð 2014 - 2019 en ekkert lið varð Íslandsmeistari 2020. Þar segir að Darri þekki vel til hjá KR en hann var sjálfur leikmaður í gegnum yngri flokka félagsins og upp í meistaraflokk, þjálfaði yngri flokka og meistaraflokk kvenna um tíma áður en hann fór yfir til Vals þar sem hann hjálpaði kvennaliðinu að krækja í alla titla sem í boði voru á tímabilinu 2018-2019. Skagfirðingurinn snjalli er sonur Jennýjar I. Leifsdóttur og Atla Freys Sveinssonar sem bæði eru brottfluttir Króksarar. /PF Skagfirðingur tekur við KR Körfubolti Frá Smábæjaleikunum á Blönduósi. MYND/HÚNI.IS Darri Freyr Atlason ásamt unnustu sinni Lilju Gylfadóttur. MYND AF FACEBOOK. Við sandinn hér var sjávarþernu sögulegri skapað ból. Líta má hér leifar Ernu, lengi var hún öðrum skjól. Geymist hún hér, grafin sandi, gamalt skip sem vitað er. Forðum bar hún fisk að landi, feril góðan átti sér. Skipstjórum var fleyið falið, farsældin þar hvergi brást. Eikin sænska, efni valið, alla tíð með kostum sást. Tengist Ernu um tíðir farnar tjáning mörg sem deyr ei út. Má hér glæða minningarnar meðan sést í eikarbút. Hafið varð ei henni að grandi, heillir lengi hún bar með sér. Bálför út af Borgarsandi bauðst henni að lokum hér. Enn má hafa af henni kynni, hún ber gildi verskuldað. Enda er hún í margra minni merkistákn á sínum stað! Styrkir til atvinnumála kvenna 21/2020 5

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.