Feykir


Feykir - 27.05.2020, Page 8

Feykir - 27.05.2020, Page 8
Nokkrar myndir frá opnun Sundlaugar Sauðárkróks Mikil gleði með breytingarnar Eins og fram kemur á forsíðu blaðsins var Sundlaug Sauðárkróks formlega tekin í notkun eftir mikla yfirhalningu en afgreiðsla og búningsherbergi, ásamt fleiru, var endurnýjað með glæsilegum hætti. Blaðamaður Feykis mætti á svæðið og tók nokkrar myndir í tilefni dagsins. /PF Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 21 TBL 27. maí 2020 40. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Stórlygarar Þjóðsögur Jóns Árnasonar Jón tófusprengur segir sögur Áraförin Eitt sinn rerum við í blíðalogni af Suðurnesjum, en þegar degi hallaði gerði á landsynning svo mikinn að hús tók upp á landi. Öll skip rak til hafs og náði ekkert lendingu nema við; við börðum þangað til við komumst í vör. Daginn eftir var logn; þá rérum við aftur sömu leið. Þá [brá] svo undarlega við að áraför okkar, þau kvöldinu fyrir, sáust enn á sjónum og mátti rekja út á Svið. Það er ólygin saga. /PF Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 18 TBL 6. maí 2020 40. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Steinninn á melnum Eitt sinn var ég fyrirvinna hjá ekkju í Borgarfirði, Það var einn vetur að mikill svell- gaddur var á jörðu. Þá gerði dimmviðri svo mikið að eng- um manni var ratandi. Hestar voru úti og var hjá þeim eitt trippi sem ég óttaðist að mundi drepast. Ég réðst út í veðrið og fann hestana. Brá ég bandi um háls trippinu og hélt heimleiðis með það, en vissi ekki hvað ég fór. Eitt sinn kom ég á svellbumbu og ætlaði þar mundi þó vera undir melur. Mér kom til hugar ef ég næði til melsins mundi ég þekkja hann; lagðist ég þá niður og tók að grafa svellið með hendinni. Ég herti mig og klóraði svellið þangað [til] ég kom handleggnum niður upp að öxl; þá fann ég þar hnefastein, tók hann upp og þekkti á hvaða mel hann átti að liggja. Fyrir þetta náði ég heim og varð það mér til lífs og trippinu. Þjóðsögur Jóns Árnasonar Jón tófusprengur segir sögur Stórlygarar Það var blíðan sl. sunnudag á Norðurlandi vestra og margir notuðu tækifærið og viðruðu sig pínu- lítið. Blönduósingurinn Róbert Daníel Jónsson tók sig til og gekk á Tindastól ásamt Ernu konu sinni og hundinum Hrappi en þau fóru upp að Einhyrningi syðri sem er í 795 metra hæð og útsýnið hreint magnað. Róbert og Erna eru bæði vant útivistarfólk en þau lögðu af stað að morgni og voru tvo og hálfan tíma í ferðinni. Leiðin er 6,3 kílómetrar fram og til baka. Róbert segir að leiðin sé vel stikuð. „Færðin var nokkuð góð en eins og oft á þessum tíma er ennþá smá drulla því jarðvegur á smá í land að þorna. Samt ekki það slæmt,“ tjáði Róbert Feyki. Hann var að sjálfsögðu með myndavélina með sér og tók að venju magnaðar myndir á göngunni sem hann gaf Feyki góðfúslegt leyfi til að birta. /ÓAB Myndasyrpa frá Róberti Daníel Jónssyni Tjillað á toppi Tindastóls Grásleppuveiðar stöðvaðar Við sjávarsíðuna Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, hefur undirritað reglugerð um stöðvun veiða á grásleppu á þessu fiskveiðiári. Ástæðan er að fyrirséð er að veiðarnar muni fljótlega nálgast ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um að heildarafli á þessu fiskveiðiári verði ekki meiri en 4.646 tonn. Frá þessu er greint á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytisins. Í reglugerðinni kemur fram að grásleppuveiðar verða bannaðar frá og með miðnætti aðfaranótt sunnudagsins 3. maí sl. Hins vegar verði heimilt að gefa út leyfi til grásleppuveiða í allt að 15 daga til þeirra sem stunduðu grásleppuveiðar árin 2018 eða 2019 á Breiðafirði, svæði 2, samkvæmt leyfum sem tóku gildi 20. maí þau ár eða síðar. Er þetta gert til að koma til móts við grásleppu- sjómenn sem stunda munu veiðar á þessu svæði en þær veiðar verða ekki heimilar fyrr en 20. maí nk. „Hafrannsóknastofnun gaf út 4.646 tonna ráðgjöf fyrir veiðar á grásleppu á þessu fiskveiðiári. Með þessari reglugerð er verið að tryggja að veiðarnar verði sem best í samræmi við vísindalega ráðgjöf og það er mikilvægt fyrir alla hlutaðeigandi. Ekki síst til að tryggja að þær vottanir sem fyrir liggja tapist ekki,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í frétt á vef ráðuneytisins. /FE H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is BREYTTUR AFGREIÐSLUTÍMI!! Afgreiðsla Nýprents verður opin frá kl. 8 -12 í sumar. MYNDIR: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON Við höfnina á Skagaströnd. MYND:FE

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.