Feykir - 16.06.2020, Blaðsíða 2
Íslenska ferðasumarið er hafið
með tilheyrandi blíðu fyrir
austan og rigningarköflum í
öðrum landshlutum.
Fellihýsa- og hjólhýsaeigendur
eru komnir á faraldsfótinn og
þó vísast sé frekar tómlegt um
að litast enn á helstu
ferðamannastöðum landsins á
vafalítið eftir að rætast úr því
þegar sumarleyfistíminn hefst
fyrir alvöru, auk þess sem
einhverra erlendra gesta mun vera að vænta nú eftir að
nýjar reglur um sóttkví og sýnatöku tóku gildi.
Íslendingar eru hvattir til að ferðast innanlands í sumar,
enda talsverð óvissa enn um möguleika á ferðalögum um
erlenda grundu. Í sérstöku hvatningarátaki Ferðamálastofa
eru ferðaþjónustufyrirtæki hvött til að taka vel á móti
Íslendingum í sumar, til dæmis með því að hafa kynningarefni
og aðrar upplýsingar á íslensku.
Er það ekki annars ótrúlegt að það þurfi sérstakt
hvatningarátak til þess að ferðaþjónustan bjóði upp á
kynningarefni á tungumáli innfæddra? Sú umræða er síður
en svo ný af nálinni en svo virðist sem hún skili ekki miklu.
Alltof algengt er að ferðaþjónustufyrirtæki auglýsi þjónustu
sína eingöngu á ensku, símaþjónusta sé á ensku, þjónusta á
veitingastöðum sé á ensku og þar fram eftir götunum. Ég
þekki til fólks sem veigrar sér við að hringja í þjónustuaðila,
eingöngu vegna þess að það má teljast fyrirfram öruggt að
ekki sé í boði að fá fyrirspurnum svarað á íslensku. Og ég
verð að segja það fyrir mína parta, og reyndar fleiri sem ég
þekki, að þó ég geti alveg lesið ensku ef ég vil og meira að
segja talað hana líka þá er því bara þannig farið að ég VIL að
auglýsingar fyrir íslenska vöru séu á íslensku og þá VIL ég
ekki þurfa að lesa þær á ensku.
Það verða því að teljast gleðitíðindi að í tengslum við
fyrrnefnt hvatningarátak var settur á laggirnar nýr vefur á
íslensku og meira að segja með íslensku nafni, Ferðalag.is.
Við fyrstu sýn virðist mér sem vefur þessi sé mjög
aðgengilegur og gefi ágætt yfirlit yfir það sem ferðalöngum
stendur til boða á leið þeirra um landið. Gott framtak þar.
Gleðilegt ferðasumar.
Fríða Eyjólfsdóttir
blaðamaður
LEIÐARI
Íslenska ferðasumarið
Í þar síðustu viku lönduðu 25 bátar á Skagaströnd, flestir handfærabátar, og var saman-
lagður afli þeirra rúmlega 61 tonn. Aflahæstur var línubáturinn Sævík GK 757 með rúm 14
tonn. Á Sauðárkróki var landað rúmum 411 tonnum og var það Málmey SK 1 sem átti tæp
273 tonn af þeim afla. Tveir bátar lönduðu á Hofsósi rúmum þremur tonnum og á Hvamms-
tanga landaði einn bátur rúmum átta tonnum.
Heildarafli þar síðustu viku á Norðurlandi vestra var 484.128 kíló. /FE
Aflatölur 31. maí – 6. júní 2020
484 tonn í síðustu viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Hjalti HU 313 Handfæri 1.194
Hjördís HU 16 Handfæri 1.514
Hrund HU 15 Handfæri 1.081
Húni HU 62 Handfæri 1.310
Kambur HU 24 Handfæri 564
Kópur HU 118 Handfæri 331
Lukka EA 777 Handfæri 1.684
Ólafur Magnússon HU 54 Handfæri 226
Óli G GK 50 Lína 11.501
Svalur HU 124 Handfæri 344
Sæunn HU 30 Handfæri 1.624
Sævík GK 757 Lína 14.264
Viktor Sig HU 66 Handfæri 1.192
Víðir EA 423 Handfæri 1.355
Víðir ÞH 210 Handfæri 718
Alls á Skagaströnd 61.132
HOFSÓS
Geisli SK 66 Handfæri 2.220
Skotta SK 138 Handfæri 880
Alls á Hofsósi 3.100
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 8.456
Alls á Hvammstanga 8.456
SAUÐÁRKRÓKUR
Drangey SK 2 Botnvarpa 125.663
Gammur SK 12 Handfæri 153
Hafey SK 10 Handfæri 740
Hafsól SK 96 Handfæri 408
Kristín SK 77 Handfæri 978
Málmey SK 1 Botnvarpa 272.930
Már SK 90 Handfæri 770
Onni HU 36 Dragnót 5.158
Skvetta SK 7 Handfæri 989
Steini G SK 14 Handfæri 980
Vinur SK 22 Handfæri 982
Ösp SK 135 Handfæri 1.689
Alls á Sauðárkróki 411.440
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Handfæri 1.743
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 1.530
Blíðfari HU 52 Handfæri 1.454
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 1.125
Bragi Magg HU 70 Handfæri 817
Daðey GK 777 Lína 11.246
Dagrún HU 121 Handfæri 870
Geiri HU 69 Handfæri 1.477
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 1.577
Hafdís HU 85 Línutrekt 391
Tæpum 800 tonnum, eða 796.597 kílóum, var skilað á land á Norðurlandi vestra í síðustu
viku. Munaði þar mest um afla togaranna tveggja, Arnars og Málmeyjar, sem lönduðu á
Sauðárkróki en þar var heildaraflinn rúm 658 tonn. Til Skagastrandar bárust 116 tonn og á
Hvammstanga var landað rúmum 18 tonnnum. Þá var landað fjórum tonnum á Hofsósi. /FE
Aflatölur 7. – 13. júní 2020
Arnar með 522 tonn í þessari viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Hafdís HU 85 Línutrekt 2.001
Hjördís HU 16 Handfæri 1.852
Hrund HU 15 Handfæri 2.307
Húni HU 62 Handfæri 2.193
Ísak Örn HU 151 Handfæri 342
Jenný HU 40 Handfæri 365
Kambur HU 24 Handfæri 1.506
Kópur HU 118 Handfæri 1.768
Loftur HU 717 Handfæri 2.411
Lukka EA 777 Handfæri 1.143
Ólafur Magnússon HU 54 Handfæri 1.449
Óli G GK 50 Lína 23.393
Stakkhamar SH 220 Lína 10.780
Svalur HU 124 Handfæri 1.373
Sæunn HU 30 Handfæri 2.334
Sævík GK 757 Lína 16.551
Viktor Sig HU 66 Handfæri 1.855
Víðir EA 423 Handfæri 2.447
Víðir ÞH 210 Handfæri 442
Alls á Skagaströnd 116.007
HOFSÓS
Geisli SK 66 Handfæri 295
Skáley SK 32 Handfæri 2.644
Skotta SK 138 Handfæri 1.078
Alls á Hofsósi 4.017
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 17.908
Steini HU 45 Handfæri 298
Alls á Hvammstanga 18.206
SAUÐÁRKRÓKUR
Arnar HU 1 Botnvarpa 522.470
Fannar SK 11 Handfæri 1.427
Gammur SK 12 Þorskfiskinet 400
Gammur II SK 120 Þorskfiskinet 96
Gammur II SK 120 Handfæri 186
Gjávík SK 20 Handfæri 600
Hafey SK 10 Handfæri 2.062
Hafsól SK 96 Handfæri 381
Kristín SK 77 Handfæri 1.990
Málmey SK 1 Botnvarpa 121.453
Már SK 90 Handfæri 1.583
Skvetta SK 7 Handfæri 1.742
Steini G SK 14 Handfæri 1.457
Vinur SK 22 Handfæri 1.933
Ösp SK 135 Handfæri 587
Alls á Sauðárkróki 658.367
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Handfæri 1.620
Beggi á Varmalæk HU 219 Handfæri 225
Bergur sterki HU 17 Lína 5.700
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 2.412
Blíðfari HU 52 Handfæri 2.401
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 2.288
Bragi Magg HU 70 Handfæri 1.579
Daðey GK 777 Lína 15.246
Dagrún HU 121 Handfæri 1.593
Elfa HU 191 Handfæri 1.408
Geiri HU 69 Handfæri 2.081
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 2.470
Gyðjan HU 44 Handfæri 472
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Soffía Helga Valsdóttir, bladamadur@feykir.is
Auglýsingastjóri:
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
2 24/2020
Ert þú áskrifandi?