Feykir - 16.06.2020, Qupperneq 3
Fornt og áður óþekkt bæjarstæði upp-
götvaðist nýlega á bænum Grófargili í Skaga-
firði þegar unnið var við að taka riðugröf en
riðuveiki kom upp á bænum fyrr á árinu. Í
bæjarstæðinu fundust fornminjar sem eru frá
því vel fyrir árið 980 af gjóskulögum að
dæma.
Í frétt á vef Matvælastofnunar kemur fram
að eftir að riða greindist á bænum hafi allt fé
verið sent í brennslu og annað sem talið var
geta borið smit grafið á staðnum. Staðurinn
sem Matvælastofnun taldi heppilegastan fyrir
riðugröf var nærri gömlum húsarústum sem
vitnað var í örnefnaskrá. Ofan á rústunum
stóð nautakofi sem þurfti að rífa og setja í
riðugröf. Því var haft samband við Minja-
stofnun sem fór fram á að fornleifafræðingur
fylgdist með aðgerðum. Nautakofinn var
rifinn án þess að raska rústunum.
Við gröft riðugrafarinnar var fyrst gerður
könnunarskurður í varúðarskyni og komu þá
í ljós mun eldri fornminjar, forn öskuhaugur,
og voru því aðgerðir stöðvaðar og fyrirhuguð
riðugröf færð til. Í framhaldi af því tók við
fornleifauppgröftur þar sem fjöldi muna
fannst, dýrabein og eldsprungnir steinar.
Aðgerðum er lokið og verða fornleifarnar
færðar til Þjóðminjasafnsins að lokinni
skýrslugerð fornleifafræðings. /FE
Fornminjafundur á Grófargili í Skagafirði
Skagafjörður
Hnífsblað og brot úr snældusnúð. MYND: MAST.IS
Talsverð tímamót urðu í sögu
bensín- og olíuafgreiðslu á
Sauðárkróki síðastliðinn
föstudag þegar ný afgreiðslu-
stöð við Borgarflöt á Sauð-
árkróki var opnuð formlega.
Nýja stöðin, sem er ÓB
sjálfsafgreiðslustöð með
tveimur dælum, leysir af
hólmi bensínafgreiðslu við
Verzlun Haraldar Júlíussonar
við Aðalgötu þar sem
afgreiðsla Olís hefur verið til
húsa allt frá árinu 1930.
Það voru Bjarni Haralds-
son, hinn síungi verslunar-
maður og eigandi Verzlunar
Haraldar Júlíussonar, og Jón
Ólafur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Olís, sem tóku
nýju stöðina formlega í
notkun með því að dæla
bensíni á eðalvagn Bjarna. /FE
Bensínsölu hætt
hjá Bjarna Har
Sauðárkrókur
Dælt á Chevrolet Malibu bifreið Bjarna Har. MYND:FE
Blönduós
Rekstur Blönduósbæjar
jákvæður á síðasta ári
Á fundi sveitarstjórnar
Blönduóss þann 9. júní
síðastliðinn voru ársreikningar
sveitarfélagsins teknir til
síðari umræðu og samþykktir.
Sveitarfélagið var rekið með
23,3 milljón króna hagnaði á
árinu 2019.
Rekstrartekjur ársins
námu 1.233,6 milljónum
króna og hækkuðu um 15%
milli ára. Rekstrargjöld námu
1.103,6 milljónum sem er
14,3% hækkun milli ára.
Rekstrarniðurstaða ársins
fyrir afskriftir, fjármunatekjur
og fjármagnsgjöld nam 128,9
milljónum króna. Eigið fé í
árslok 2019 nam 836,1 milljón
og eiginfjárhlutfallið nemur
36,6%. Nánar má kynna sér
niðurstöður ársreikninga í
fundargerð sveitarstjórnar á
vef Blönduósbæjar.
Í bókun sveitarstjórnar frá
fundinum segir: „Af
ofangreindu má sjá að rekstur
Blönduósbæjar er mjög góður
og hefur batnað á flestum
sviðum, bæði með tilliti til
afkomu og miðað við
fjárhagsáætlun ársins 2019,
ásamt viðaukum, meðal
annars til þess að mæta mikilli
uppbyggingu og fjölgun íbúa.
Miklu máli skiptir að vinna
vel með þann árangur til
framtíðar." /FE
Blönduós. MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON
www.skagafjordur.is
Auglýsing um skipan í kjördeildir
í Sveitarfélaginu Skagafirði
Við forsetakosningar sem fram fara laugardaginn
27. júní nk. er skipan í kjördeildir sem hér segir:
Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,
þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00.
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps
– kjörfundur hefst kl. 09:00.
Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði
þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00.
Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,
þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00.
Kjördeild í Höfðaborg Hofsósi,
þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00.
Kjördeild í Grunnskólanum á Sólgörðum,
þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00.
Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
þar kjósa íbúar fyrrum Staðar – og Seyluhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00.
Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki,
kjörfundur hefst kl. 13:00.
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf
klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær
sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.
Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef
öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund
liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00.
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni Norðurlands vestra á
Sauðárkróki frá kl. 09:00 til kl. 15:00 virka daga fram að kjördegi og
kl. 16:00-18:00 á kjördag þ. 27. júní 2020. Lokað verður 17. júní.
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.
Yfirkjörstjórn
24/2020 3