Feykir - 16.06.2020, Page 7
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Spenna
Sudoku
Krossgáta
Feykir spyr...
Ertu búin/n að
endurnýja eitt-
hvað af útileik-
föngunum?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : SHV
„Nei það hef ég ekki gert, en
trampolín er í sjónmáli fyrir
yngsta molann minn.“
Birgir Örn Hreinsson
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
William Shakespeare, (1564 - 1616), var enskt skáld, leikskáld og
leikari, víða álitinn mesti rithöfundur á ensku og mesti leikari í heimi.
Víðtæk verk hans samanstanda af um 39 leikritum og öðrum þáttum
og hafa verið þýdd á öll helstu tungumál heims. Ótrúlegt, en kannski
satt, þá er vitnað í Shakespeare u.þ.b. 33.150 sinnum í ensku Oxford
orðabókinni.
Rabarbari
Rabarbarinn blessaður, sem einnig kallast tröllasúra á íslensku, er
algengur i görðum landans og ætti einmitt um þessar mundir að vera
albesti tíminn til þess að ná sé í nokkra leggi og útbúa eitthvað
gómsætt úr honum.
Á síðunni rabarbari.is segir að rabarbari hafi verið ræktaður
hérlendis í um 130 ár en upphaflega komi hann frá Asíu, nánar
tiltekið suðurhluta Síberíu. Um nýtingarmöguleika rabarbarans
segir: „Hægt er að nýta alla hluta rabarbarans. Rót hans hefur verið
notuð sem lækningajurt. En þurrkuð rabarbararót þótti á árum
áður fyrirtaks hægðarlyf til úthreinsunar. Hvítan eða neðsti hluti
stilksins var gjarnan soðinn niður á haustin hérlendis og neytt um
jólahátíðina með rjóma. Stilkurinn er alla jafna vinsælasti hluti
rabarbarans. Úr honum má vinna sultur, grauta, saft og margt
fleira. Í Ameríku er rabarbarinn þekktur sem „Pie Plant” eða „böku
plantan”. Að lokum eru það blöð rabarbarans. Þau eru rík af
oxalsýru og séu þau nýtt til átu geta þau valdir eitrunaráhrifum en
gamalt húsráð er að sjóða blöðin og nota soðið til að þrífa potta og
pönnur.“ Feykir tók saman nokkrar uppskriftir þar sem rabarbar-
inn fær að njóta sín.
„Fegurð konunnar fer öll eftir því hvað heitt hún er elskuð.”
/ V. Charter
UPPSKRIFT 1
Rabarbarahnossgæti
2 bollar rabarbaraleggir, brytjaðir
1 dl púðursykur
4 dl hafrakex, mulið
100 g smjör
4 eggjahvítur
1 dl sykur
1 dl kókosmjöl
Aðferð: Rabarbarabitar og púður-
sykur soðnir saman í nokkrar
mínútur. Hellt í eldfast mót.
Smjörið brætt og blandað saman
við hafrakexið sem er svo dreift yfir
rabarbaralöginn. Eggjahvítur og
sykur þeytt, kókosmjöli bætt
saman við og smurt yfir. Bakað við
150°C í eina klukkustund. Berið
fram með ís eða rjóma.
UPPSKRIFT 2
Heilaspuni
500 g rabarbari í bitum
250 g sykur
1 grænt epli, afhýtt og smátt skorið
2 tsk. engiferduft
hnefafylli af kókosflögum
400 g gróft múslí
100 g smjör
100 g sykur eða púðursykur
2 msk. hveiti
Aðferð: Hitið ofninn í 200°C.
Sjóðið rabarbara og sykur saman í
5 mínútur. Setjið rabarbara, epli,
engiferduft og helminginn af
kókosflögunum í ofnfast form.
Myljið múslí, smjör og hveiti
saman. Stráið múslíblöndunni yfir
„Nei, en við erum búin að kaupa
okkur hengirúm.“
Áskell Heiðar Ásgeirsson
„Ég keypti útileikföng fyrir litlu
börnin um daginn, fötur og
skóflur.“
Óðinn Kristjánsson
„Við endurnýjuðum grillið,
dóttirin fjárfesti í bíl og svo
stendur til að kaupa nýja
sláttuvél.“
Steinunn Valdís Jónsdóttir
(FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is
Rabarbaramojito. MYND: RAKEL ÁRNADÓTTIR
rabarbarann. Stráið því sem eftir er
af kókosflögunum yfir.
Bakið í 30 mínútur eða þar til kakan
er gullinbrún. Berið fram með ís
eða rjóma.
UPPSKRIFT 3
Rabarbaramojito
½ stk. lime
6 cl ljóst romm
6 myntublöð
250 g rabarbari
1½ dl strásykur
½ dl vatn
klaki
sódavatn
limebátar og myntublöð til skrauts
Aðferð: Skerið rabarbarann í 2-3
sm stóra bita og sjóðið, ásamt sykri
og vatni, í u.þ.b. 10 mínútur. Hellið
í gegnum sigti og pressið með skeið
svo allur vökvinn renni af.
Sjóðið saftina í opnum potti þar
til hún líkist sírópi. Kælið.
Skolið limeávöxtinn í volgu
vatni og skerið í báta. Blandið
saman í morteli: rommi, myntu,
lime og 2 msk. af rabarbarasírópi.
Hellið í glas og fyllið upp með
sódavatni og dreifið einni msk. af
rabar-barasírópinu yfir. Skreytið
með limesneiðum eða -bátum og
myntublöðum.
Þess má að lokum geta að soð af
rabarbarablöðum á að vera gott til
að halda óværu frá garðagróðri. Þá
eru blöðin söxuð í búta sem soðnir
eru í stórum stálpotti. Þegar blöðin
hafa soðið í um klukkustund er
vökvinn kældur niður og síðan eru
blöðin sigtuð frá safanum.
Vökvanum er svo úðað á trén.
Verði ykkur að góðu!
Tilvitnun vikunnar
FEYKIFÍN AFÞREYING
24/2020 7
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Eftirvænting eykur mig.
Oft á beltum sýnilig.
Meinlaus lág, en hætta há.
Hryggjartökin ekki smá.