Feykir - 16.06.2020, Blaðsíða 8
Golfklúbbur Skagafjarðar I Norðurlandsmótaröðin - Nýprent Open
Metþátttaka í byrjendaflokki
Það voru brosandi börn og unglingar sem mættu á Hlíðarendavöll sl. sunnudag en þá var haldið fyrsta mót sumarsins í
Norðurlandsmótaröðinni í golfi. Skráning var góð og mættu krakkar frá bæði Akureyri og Dalvík til að etja kappi við
Skagfirðingana okkar.
Spilað var í nokkrum flokkum í bæði 9 og 18 holu leik og alls kepptu 59 börn og unglingar, allt frá fimm ára
upp í 18, en stærsti flokkurinn var byrjendaflokkur með alls 23 keppendur í bæði stelpu og strákaflokki. Þetta var
því metþátttaka í þessum flokki síðan fyrsta Nýprent Open mótið var haldið fyrir allmörgum árum síðan og gaman
að segja frá því að mikil fjölgun hefur verið á nýliðum hjá bæði fullorðnum og börnum í Golfklúbbi Skagafjarðar í
ár. Skagfirsku kylfingarnir stóðu sig með prýði og er ekki annað að sjá en að það stefni í flott sumar hjá barna og
unglingastarfi Golfklúbsins í sumar með alla þessa flottu kylfinga, bæði nýliða og lengra komna. Unglinganefndin
vill þakka öllum þeim sem tóku þátt kærlega fyrir daginn og sérstakar þakkir til þeirra sem lögðu vinnu í að gera
þennan dag ógleymanlegan fyrir krakkana okkar. Gleðilegt golfsumar. /SG
Þeir krakkar sem hafa áhuga á að prufa gólfíþróttina geta skráð sig á vikunámskeið í gegnum Nora kerfið undir
http://umss.felog.is Myndir tóku Hjörtur Geirmundsson og Helga Jónína Guðmundsdóttir.
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455
7176 og netfangið feykir@feykir.is
24
TBL
16. júni 2020 40. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Fjárskaði
Byggðasögumoli I palli@feykir.is
Frá því segir í lýsingu Ölduhryggjar að Rósant Pálsson
keypti Miðvelli eftir að þeir fóru í eyði 1907 og hafði þar
meiri hluta fjár síns á
beitarhúsum veturinn
1907-1908, rúmlega
50 kindur. Það var
dag einn í annarri
viku góu veturinn
1908 að veður var
kyrrt árdegis en eftir
hádegi fór að með
stórfjúki og flygsurnar
svo stórar að það var sannkölluð skæðadrífa. Rósant
hafði að venju farið á beitarhúsin um morguninn til
gegninga. Rak hann féð til beitar út fyrir Miðvelli, allt
nema hrúta og þrjú smálömb. Seinni part dags var hann
inni í tóft að taka til hey í poka. Þegar hann kemur út er
skollin á iðulaus stórhríð. Hann fór þá að leita kindanna
og fann nokkrar fyrir utan og rak áleiðis heim en lenti
með þær dálítið fyrir neðan húsin og gat með engu móti
komið þeim upp að húsunum. Ekki treysti hann sér til að
rata heim að Ölduhrygg og lét fyrir berast í húsunum um
nóttina. Þegar rofaði til um morguninn komst hann
heim en skömmu síðar skall yfir sama stórviðrið aftur og
birti ekki upp fyrr en að morgni þriðja dags.
Þegar tókst að komast aftur út að Miðvöllum og farið var
að huga að fénu kom í ljós að það hafði allt spennt suður
fyrir og margt af því ofan í árgilið. Nokkrar kindur voru
hjá svonefndum Sauðaskurði, þar af tvær dauðar. Sumar
voru fenntar í hengju á gilbarminum og stóðu höfuðin
fram úr hengjunni en margt hafði farið í gilið. Sumt var
lifandi á skörinni, sumt helfrosið í krapi en 10-15 kindur
hafði hrakið í ána og flotið burtu. Þær rak síðar út hjá
Sölvanesi og Hömrum. Um helmingur af því fé sem
fannst lifandi var ósjálfbjarga. Var það flutt á sleða að
Miðvöllum og vakað þar yfir því eina eða tvær nætur en
síðar farið með það heim í Ölduhrygg. Allar þessar
kindur lifðu og hresstust flestar eftir nokkra daga.
Rúmlega 20 kindur drápust af Miðvallafénu.
/Byggðasaga Skagafjarðar III. bindi
COVID-19 | Rabbað við Króksarann Ómar Braga Stefánsson sem stofnaði Facebook-síðu
Skín við sólu slær í gegn
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
13
TBL
1. apríl 2020 40. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
síðunni? „Ég held að
þeir séu að nálgast
3.500 sem er með
ólíkindum. Mig grun-
aði ekki að þetta
myndi vinda svona
upp á sig þegar ég fór
af stað. En svona er
staðan og ég er pínu
rosalega glaður með
þessar móttökur. En
til að viðhalda henni í
einhvern tíma þá þarf fólk að setja
inn myndir o.fl. Þar held ég að
flokkarnir skipti öllu máli,“ segir
Ómar Bragi en þess má geta að
þegar Feykir fór í prentun voru
meðlimir orðnir rúmlega 4.000.
Hvað hefur komið þér mest á óvart
varðandi síðuna? „Það er auðvitað
sá fjöldi sem kominn er. Það var
eitthvað sem ég lagði nú ekki
sérstaklega af stað með en hefur
komið skemmtilega á óvart. Svo
er það jákvæðnin og gleðin sem
ég skynja hjá fólki sem
er að skoða þetta. Enda
lagði ég áherslu á að
inn á þessa síðu kæmi
bara jákvæðni og gleði,
ekkert annað væri í
boði.“
Einhver skilaboð til
fólks á þessum sér-
stöku tímum? „Halda
áfram að vera gott við
hvort annað og hugsa
vel um sína nánustu og þá sem
minna mega sín í samfélaginu.
Við höfum allt til alls hér í
Skagafirði og þegar þetta gengur
yfir þá mun lífið halda áfram.
Skagafjörður verður enn fegursti
fjörðurinn og fólkið sem hér býr
verður áfram það góða og duglega
fólk sem hann byggir.
Svo auðvitað að fara á síðuna
Skín við sólu og setja inn efni og
hafa gaman af,“ segir Ómar Bragi
að lokum. /ÓAB
Ein af myndunum sem smellt hefur verið inn á Skín við sólu á Facebook. Þar kennir margra
grasa, myndir frá gömlum tíma og nýrri. Það má skoða og skemmta sér endalaust.
MYNDIR AF NETINU
Ný menntastefna tekur gildi
Skagafjörður
Sagt er frá því á heimasíðu Svf. Skagafjarðar að ný
Menntastefna Skagafjarðar hafi nú verið gefin út og
tekið gildi. Vinna við mótun menntastefnunnar hefur
staðið yfir í u.þ.b. eitt ár. Menntastefnan var unnin í
samstarfi leik-, grunn- og Tónlistarskóla Skagafjarðar,
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Frístundar og
Fræðsluþjónustu Skagfirðinga.
Alls komu rúmlega 90 ein-
staklingar að mótunarferlinu;
nemendur allra skólastiga,
starfsfólk skóla/frístundar,
starfsfólk fræðsluþjónustu,
kjörnir fulltrúar í fræðslu-
nefnd ásamt þátttakendum á
íbúafundum.
Menntastefnan nær til allra
barna og ungmenna í Skaga-
firði frá upphafi skólagöngu í leikskóla til loka náms í
framhaldsskóla. Áhersla er lögð á að nám barna og
ungmenna eigi sér stað bæði innan skólans sem og í
frístundastarfi og aukna samvinnu ólíkra skólastiga,
skólagerða og frístundar til að tryggja samfellu í námi.
Nánar um menntastefnuna á Skaga jörður.is. /ÓAB
Það er ekki að spyrja að því þegar
Ómar Bragi Stefánsson fær ein-
hverja hugmynd – þær eiga það til
að vinda duglega upp á sig. Ómar
er til dæmis höfundur Króksblóts
og Jólahlaðborðs Rotary, svo
eitthvað sé nefnt. Sunnudaginn
22. mars sl. stofnaði hann síðuna
Skín við sólu á Facebook og hvatti
fólk til að ganga til liðs við sig og
smella einhverju skemmtilegu á
síðuna og þá ekki síst myndum.
Undirtektirnar létu ekki á sér
standa og liggur við að allir
Skagfirðingar fyrr og síðar séu
mættir til leiks með myndir og
myndbönd, sér og öðrum til
ánægju.
Feykir hafði samband við Ómar
og lagði fyrir hann nokkr r
spurningar tengdar síðunni góðu.
Hvers vegna stofnaðir þú Face-
book-síðuna Skín við sólu og hver
var hugmyndin með þessu fram-
taki? „Það var nú bara þannig að
þegar ég vaknaði á sun udaginn
var þetta bara í höfðinu á mér. Ég
stóð upp, fór fram í stofu og settist
aðeins niður þar og þetta varð
smátt og smátt skýrara fyrir mér.
Ég held að á laugardeginum,
daginn áður hafi ég verið að dást
að hve samheldnin væri mikil í
samfélaginu, ekki bara hér, heldur
um land allt. Það var svo frábært
að sjá að klappað væri fyrir heil-
brigðisstarfsfólki, sungið fyrir
aldraða og af svölum fyrir
nágrannana. Hjálpast til við að
fara með mat og nauðsynjavörur
til þeirra sem ekki geta náð í slíkt
og þannig mætti lengi áfram telja.
Ég ræddi þetta smástund við hana
Maríu mína en hún veit það
líklega best allra að þegar ég fæ
einhverja svona hugmynd og vil
framkvæma hana þá er fátt sem
stoppar það. Síðan settist ég við
tölvuna og stofnaði þessa síðu.
Ég sá fyrir mér að byrja á því
að setja inn landslagsmyndir úr
Skagafirði því þar er nú af nægu
að taka. Núna er kominn mikill
fjöldi landslagsmynda þar inn
sem myndu sóma sér vel á hvaða
sýningu sem væri. Síðan hvatti ég
til að næst yrðu settar inn
íþróttamyndir enda stendur það
mér næst. Núna [25. mars] er
síðan verið að setja inn myndir og
myndbönd sem tengjast tónlist-
inni hér í Skagafirði og þar eigum
við nú aldeilis fjársjóði. Svona sá
ég þetta fyrir mér, nýr flokkur, ný
við-fangsefni og nýjar myndir.
Þarna ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi og flokk sem
tengist þeim.“
Hversu margir meðlimir eru á
Það eru til óteljandi myndir af íþróttaliðum og þeir sem hafa gaman af því að rýna í andlit
úr fortíðinni hafa sannarlega fundið gullkistu á Skín við sólu.
Þekktasti ábúandi Ytra-
Skörðugils [í Skagafirði]
er án efa sagnaritarinn
Gísli Konráðsson sem
þar bjó í 18 ár, frá 1819-
1837. Þangað fór hann
nauðugur frá Bakka í
Vallhólmi og orðar það
svo í ævisögu sinni, að
Ytra-Skörðugil væri ,,niðurnítt, heyskaparlítið með
óræktartúni meinþýfðu, þó 20 hundruð, með hundr-
aðsleigu og tveimur kúgildum, klausturjörð með
prjónles landskuld. Fluttist hann þangað og varð að
lóga einni kúnni fyrsta haustið.“
Eftir Jón Espólín genginn varð Gísli þekktasti
sagnaritari á Íslandi á sinni tíð. Um fjörutíu ára skeið,
1807-1847, bjó Gísli á ýmsum jörðum í Skagafirði,
lengst á Ytra-Skörðugili. Gísli fluttist úr Skagafirði
með Indriða syni sínum árið 1850 en settist að í Flatey
á Breiðafirði 1852. Þar varð hann í raun fyrsti
atvinnurithöfundur á Íslandi á seinni öldum, því að
efnamenn eyjarinnar settu hann niður í húsi þar og sáu
honum fyrir viðurværi en Gísli sat öllum stundum og
skrifaði allt fram undir lokadægur. Hann lést níræður
að aldri árið 1877.
Gísli Konráðsson hefur orðið einhver afkastamesti
skrifari og rithöfundur á Íslandi fyrr og síðar. Langt
væri að telja öll hans skrif og margt af því er óprentað,
en fullyrða má, að hefði hans söfnun og skráning ekki
komið til væri stórum meiri vöntun en ella í vitneskju
um mannlíf og sögu Skagafjarðar og raunar margra
annarra landshluta á 18. og 19. öld.
Byggðasögumoli | palli@feykir.is
Sagnameistarinn
Yngsti keppandinn, Nína Brynjarsdóttir, að fá smá leiðsögn frá þjálfaran-
um, Atla Frey Rafnssyni.