Feykir


Feykir - 01.07.2020, Blaðsíða 3

Feykir - 01.07.2020, Blaðsíða 3
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra kölluðu í vor eftir hugmyndum að átaksverkefnum vegna áhrifa af COVID-19 faraldrinum og var í framhaldi af því valið úr þeim fjölmörgu hugmyndum sem bárust. Um helmingi þeirra fjármuna sem veitt var af sóknaráætlun til verkefnisins var veitt til verkefna til eflingar ferðaþjónustu á svæðinu. Í frétt á vef SSNV segir frá því að þessa dagana sé verið að hefjast handa við átak í hnitsetningu gönguleiða á Norðurlandi vestra en þar mun af nógu að taka. Hluti af sveitarfélögunum á svæðinu hefur tekið fyrstu skrefin með nokkrar gönguleiðanna en nú stendur til að bæta hressilega í þannig að sem flestar af þessum gönguleiðum verði í framtíðinni aðgengilegar í tölvum og snjalltækjum. Sumarstarfskraftar sem ráðnir voru af SSNV og Akrahreppi í átaki Vinnumála- stofnunar munu sjá um verklegan hluta verkefnisins. Gönguhópar eða einstaklingar sem hafa áhuga á að bjóða fram krafta sína og leggja verkefninu lið eru hvattir til að hafa samband. Nýlega fóru í loftið á samfélagsmiðlum fyrstu landslags- myndbönd Helga Sæmundar Guðmundssonar með frumsaminni tónlist úr smiðju hans. Myndböndin hafa fengið heitið Norðvestur og mun verkefnið standa yfir í allt sumar og myndefnið að því loknu vera tiltækt í framtíðarnotkun fyrir kynningarefni svæðisins. Svipaða sögu má segja af efni sem N4-sjónvarpsstöðin er að taka upp og verður á næstunni notað í þáttunum Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra. Fyrsti þátturinn fór í loftið á dögunum og þrír munu fylgja í kjölfarið. Þá er einnig í undirbúningi verkefni, sem miðar að hönnun og uppsetningu skilta, m.a. á stöðum sem tengjast þekktum persónum. Hugmyndin er að verkefnið verði hluti af heildrænni nálgun á merkingum og/eða uppsetningu á skiltum á ferðamannastöðum, ásamt því að vera samtvinnað öðru upplýsingaefni þeim tengdum. /FE Mörg verkefni tengd ferðaþjón- ustunni að fara af stað Norðurland vestra Snemma dags, 25. júní kl. 07:15, lögðu 17 kaffikarlar af stað í Skagarfjarðarferð frá Seltjarnarneskirkju. Var þetta árleg dagsferð kaffiklúbbsins (karlar 67 ára og eldri) sem hittist tvisvar sinnum í viku í safnaðar- heimili Seltjarnarneskirkju. Hópurinn fór norður á tveimur kálfum (í öðrum bílnum voru 10 karlar en í hinum 7 karlar). Ekið var á Sauðárkrók um Þverárfjall. Sigurjón Rafnsson, aðstoðar- kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, tók á móti hópnum í höfuðstöðvum Kaupfélagsins að Ártorgi 1 á Sauðárkróki. Sigurjón flutti fræðandi og skemmtilegt erindi í máli og myndum um starfsemi Kaupfélagsins. Kom það mönnum á óvart hversu fjölbreytileg starfsemi Kaup- félagsins er á mörgum sviðum. Kaupfélagið er fram- úrskarandi fyrirtæki sem hefur í kringum eitt þúsund manns í vinnu, bæði á Sauðárkróki og víðar á landinu. Eftir hið frábæra erindi Sigurjóns leiddi hann hópinn yfir í glæsilegt hús Mjólkur- samlags KS við Skagfirðinga- braut. Þar fór hver og einn í sérstakan hlífðarslopp, setti hárnet á höfuðið og skóhlífar yfir skó sína. Í Mjólkur- samlaginu er hreinlætið sett á oddinn. Magnús Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri, og Jón Þór Jósepsson, framleiðslustjóri, sögðu frá starfsemi Mjólkusamlagsins og þeirri miklu ostagerð sem fer þar fram. Þeir félagarnir leiddu hópinn um fram- leiðslusali og gáfu honum að smakka á nýjum osta- tegundum sem komu á markaðinn nýlega sem heita Goðdalir: Grettir, Reykir og Feykir. Hópurinn sá einn stafsmanninn bera sérstaka ostamálningu á ostana. En það þarf að bera á ostana átta umferðir af sérstakri osta- málningu sem gerir það að verkum að vatnsinnihald minnkar og bragðið verður sterkara. Einnig fékk hópur- inn að smakka Mozzarella ost. Allir eru þessir ostar sannkallaðir skagfirskir gæðaostar. Eftir heimsóknina í Mjólkursamlagið fór hópur- inn í Steinullarverksmiðjuna sem er að Skarðseyri 5. Stefán Logi Haraldsson, fram- kvæmdastjóri, tók á móti hópnum. Hann greindi frá starfsemi Steinullarverk- smiðjunnar og sögu hennar. Erindi hans var áhugavert og fræðandi. Þennan dag var verksmiðjan ekki í gangi. Stefán Logi sagði að uppistaða hráefnanna við framleiðsluna væri innlend og nánast innan seilingar. Það væri fjöru- sandurinn sem tekinn væri við vesturós Héraðsvatna. Þar tæki verksmiðjan um 10 þúsund tonn af sandi árlega, og hefði gert frá upphafi. Sjórinn annaðist um sjálfvirka áfyllingu námunnar svo að þess sjáist engin ummerki frá degi til dags. Eftir heimsóknina í Stein- ullarverksmiðjuna hélt hóp- urinn í súpu og brauð á Kaffi Króki. Þangað kom sr. Sig- ríður Gunnarsdóttir, sóknar- prestur á Sauðárkróki, og heilsaði upp á hópinn. Sr. Sigríður gekk með hópnum til Sauðárkrókskirkju. Þar spjallaði hún við viðstadda og sagði frá starfi kirkjunnar af sinni alkunnu ljúfmennsku og elskulegheitum. Þess má geta, að Sauðárkrókskirkja er vinakirkja Seltjarnarnes- kirkju. Hefur svo verið frá árinu 2013. Eftir heimsóknina í Sauðárkrókskirkju var ekið fram á Löngumýri. Gunnar Rögnvaldsson, forstöðu- maður á Löngumýri, tók á móti hópnum. Gengu menn til stofu og sungu fyrir Guðmund Einarsson, afmælissönginn, og lyftu glösum í tilefni dagsins. Guðmundur er maður á besta aldri og jafnframt formaður sóknarnefndar Seltjarnarnes- kirkju. Gunnar lék á alls oddi eins og honum er einum lagið. Hann söng lag og texta sem hann gerði ásamt Sigvalda Helga syni sínum. Gunnar hefur unnið stór- kostlegt starf á Löngumýri og er afar kraftmikill og fjölhæfur maður. Hópurinn snæddi lambalæri á Löngumýri ásamt öllu til- heyrandi sem Lísa á Varma- læk hafði matbúið ásamt samstarfskonum sínum þeim Dagnýju Erlu Gunnars-dóttur og Sigurlaugu Guðmunds- dóttur. Maturinn smakkaðist einstaklega vel og þær stöllur höfðu einnig útbúið góm- sætan eftirrétt sem menn skoluðu niður með rjúkandi heitu kaffi eða tei. Ferðin góða í Skagafjörð stóð yfir í tæplega sextán tíma, veðrið var alveg ljóm- andi, sól og blíða norðan heiða. Hópurinn kom glaður og ánægður á Nesið eftir frábæran dag í Skagafirði. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur í Seltjarnarneskirkju AÐSENT Dagsferð kaffikarla í Seltjarnarneskirkju í Skagafjörð Frá vinstri séð: Ólafur Egilsson, Sverrir J. Hannesson, Gunnar H. Pálsson, Guðmundur Einarsson, Viðar Hjartarson, Þráinn E. Viggósson, Gunnar Þór Alfreðsson, Ægir G. Ólason, Þorbjörn Jónsson, Birgir Vigfússon, sr. Bjarni Þór Bjarnason, Jón Rafn Sigurjónsson, Guðmar Marelsson, Halldór Pedersen, Grétar G. Guðmundsson, Ágúst Ragnarsson, Valgeir Gestsson og Jón Þór Jósepsson, framleiðslustjóri Mjólkursamlags. MYND: SIGURJÓN RAFNSSON. Vel er látið af veiði í húnvetnsku laxveiðiánum nú í byrjun veiðisumarsins. Mest hefur veiðst í Blöndu sem opnaði 5. júní og höfðu 62 laxar komið þar á land á miðvikudagskvöld þegar listi Landssambands veiðifélaga var uppfærður. Í Miðfjarðará höfðu veiðst 42 laxar frá því á mánudag í vikunni á undan. Laxá á Ásum opnaði degi síðar og höfðu veiðst 17 laxar í henni. Víðidalsá og Vatnsdalsá opnuðu á laugardag [20.] og höfðu 29 laxar skilað sér úr Víðidalsá og 15 úr Vatnsdalsá. Þá er búið að opna Hrútafjarðará og höfðu sjö laxar veiðst þar á síðasta miðvikudag, þar af einn 96 sentimetra stórlax. /FE Sumarið fer vel af stað Laxveiði 26/2020 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.