Feykir


Feykir - 01.07.2020, Blaðsíða 4

Feykir - 01.07.2020, Blaðsíða 4
Um helgina fór fram stúlknamót Tindastóls á Sauðárkróki í knattspyrnu í 6. flokki kvenna sem að þessu sinni bar nafnið Steinullarmótið. Í ár mættu um 600 keppendur til leiks frá 22 félögum alls staðar að af landinu og léku í um 100 liðum. Er það á pari við fyrri ár og ekki merki um færri skráningar vegna covid. Mótið gekk mjög vel en breytingar voru á framkvæmd og skipulagningu mótsins þar sem sóttvarnir voru hertar sem og aðgengi foreldra og áhorfenda að leikjum og öðrum viðburðum mótsins. Umgengnisreglur í sal og gistingu voru einnig hertar þannig að einungis keppendur og liðsstjórar fengu aðgengi að matsal og kvöldvöku. Að sögn skipuleggjenda var gaman að sjá hve allir voru tillitssamir. Áhorfendur fóru frá velli eftir leiki og héldu sig í hæfilegri fjarlægð frá áhorfendum annarra liða. Á laugardagskvöldinu var haldin kvöldvaka þar sem heimakonan hún Raggý (Ragndís) sá um Zumba og TikTok dansa. Virtust keppendur ánægðir með það, í það minnsta var mikið hoppað, klappað og dansað. Veðrið var margbreytilegt um helgina. Norðangolan lét sig ekki vanta á laugardeginum og blés hressilega á keppendur. Sunnudagsmorgunninn var blautur en svo létti til og lauk mótinu í sól og blíðu. Þrátt fyrir ekki betra veður var ekki annað að sjá en að góð stemning væri á mótinu og að keppendur undu sér vel. Ljósmyndarar Feykis voru á ferðinni og tóku þessar skemmtilegu myndir. /SHV Steinullarmót Tindastóls Fótboltagleði í norðangolu og sól og blíðu MYNDIR: ÓAB og SHV MYNDIR: SÆVAR ÞORBERGSSON 4 26/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.