Feykir - 01.07.2020, Blaðsíða 4
Um helgina fór fram
stúlknamót Tindastóls á
Sauðárkróki í knattspyrnu í
6. flokki kvenna sem að
þessu sinni bar nafnið
Steinullarmótið. Í ár mættu
um 600 keppendur til leiks
frá 22 félögum alls staðar að
af landinu og léku í um 100
liðum. Er það á pari við fyrri
ár og ekki merki um færri
skráningar vegna covid.
Mótið gekk mjög vel en
breytingar voru á framkvæmd
og skipulagningu mótsins þar
sem sóttvarnir voru hertar
sem og aðgengi foreldra og
áhorfenda að leikjum og
öðrum viðburðum mótsins.
Umgengnisreglur í sal og
gistingu voru einnig hertar
þannig að einungis keppendur
og liðsstjórar fengu aðgengi að
matsal og kvöldvöku. Að sögn
skipuleggjenda var gaman að
sjá hve allir voru tillitssamir.
Áhorfendur fóru frá velli eftir
leiki og héldu sig í hæfilegri
fjarlægð frá áhorfendum
annarra liða.
Á laugardagskvöldinu var
haldin kvöldvaka þar sem
heimakonan hún Raggý
(Ragndís) sá um Zumba og
TikTok dansa. Virtust
keppendur ánægðir með það, í
það minnsta var mikið
hoppað, klappað og dansað.
Veðrið var margbreytilegt
um helgina. Norðangolan lét
sig ekki vanta á laugardeginum
og blés hressilega á keppendur.
Sunnudagsmorgunninn var
blautur en svo létti til og lauk
mótinu í sól og blíðu. Þrátt
fyrir ekki betra veður var ekki
annað að sjá en að góð
stemning væri á mótinu og að
keppendur undu sér vel.
Ljósmyndarar Feykis voru á
ferðinni og tóku þessar
skemmtilegu myndir. /SHV
Steinullarmót Tindastóls
Fótboltagleði í norðangolu og sól og blíðu
MYNDIR: ÓAB og SHV MYNDIR: SÆVAR ÞORBERGSSON
4 26/2020