Feykir - 01.07.2020, Qupperneq 3
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra kölluðu í vor eftir hugmyndum
að átaksverkefnum vegna áhrifa af
COVID-19 faraldrinum og var í
framhaldi af því valið úr þeim
fjölmörgu hugmyndum sem bárust.
Um helmingi þeirra fjármuna sem
veitt var af sóknaráætlun til
verkefnisins var veitt til verkefna til
eflingar ferðaþjónustu á svæðinu.
Í frétt á vef SSNV segir frá því að
þessa dagana sé verið að hefjast
handa við átak í hnitsetningu
gönguleiða á Norðurlandi vestra en
þar mun af nógu að taka. Hluti af
sveitarfélögunum á svæðinu hefur
tekið fyrstu skrefin með nokkrar
gönguleiðanna en nú stendur til að
bæta hressilega í þannig að sem
flestar af þessum gönguleiðum verði
í framtíðinni aðgengilegar í tölvum
og snjalltækjum. Sumarstarfskraftar
sem ráðnir voru af SSNV og
Akrahreppi í átaki Vinnumála-
stofnunar munu sjá um verklegan
hluta verkefnisins. Gönguhópar eða
einstaklingar sem hafa áhuga á að
bjóða fram krafta sína og leggja
verkefninu lið eru hvattir til að hafa
samband.
Nýlega fóru í loftið á
samfélagsmiðlum fyrstu landslags-
myndbönd Helga Sæmundar
Guðmundssonar með frumsaminni
tónlist úr smiðju hans. Myndböndin
hafa fengið heitið Norðvestur og
mun verkefnið standa yfir í allt
sumar og myndefnið að því loknu
vera tiltækt í framtíðarnotkun fyrir
kynningarefni svæðisins.
Svipaða sögu má segja af efni sem
N4-sjónvarpsstöðin er að taka upp
og verður á næstunni notað í
þáttunum Uppskrift að góðum degi
á Norðurlandi vestra. Fyrsti
þátturinn fór í loftið á dögunum og
þrír munu fylgja í kjölfarið.
Þá er einnig í undirbúningi verkefni,
sem miðar að hönnun og
uppsetningu skilta, m.a. á stöðum
sem tengjast þekktum persónum.
Hugmyndin er að verkefnið verði
hluti af heildrænni nálgun á
merkingum og/eða uppsetningu á
skiltum á ferðamannastöðum, ásamt
því að vera samtvinnað öðru
upplýsingaefni þeim tengdum. /FE
Mörg verkefni tengd ferðaþjón-
ustunni að fara af stað
Norðurland vestra
Snemma dags, 25. júní kl.
07:15, lögðu 17 kaffikarlar af
stað í Skagarfjarðarferð frá
Seltjarnarneskirkju. Var
þetta árleg dagsferð
kaffiklúbbsins (karlar 67 ára
og eldri) sem hittist tvisvar
sinnum í viku í safnaðar-
heimili Seltjarnarneskirkju.
Hópurinn fór norður á
tveimur kálfum (í öðrum
bílnum voru 10 karlar en í
hinum 7 karlar). Ekið var á
Sauðárkrók um Þverárfjall.
Sigurjón Rafnsson, aðstoðar-
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga, tók á móti
hópnum í höfuðstöðvum
Kaupfélagsins að Ártorgi 1 á
Sauðárkróki. Sigurjón flutti
fræðandi og skemmtilegt
erindi í máli og myndum um
starfsemi Kaupfélagsins. Kom
það mönnum á óvart hversu
fjölbreytileg starfsemi Kaup-
félagsins er á mörgum
sviðum. Kaupfélagið er fram-
úrskarandi fyrirtæki sem
hefur í kringum eitt þúsund
manns í vinnu, bæði á
Sauðárkróki og víðar á
landinu.
Eftir hið frábæra erindi
Sigurjóns leiddi hann hópinn
yfir í glæsilegt hús Mjólkur-
samlags KS við Skagfirðinga-
braut. Þar fór hver og einn í
sérstakan hlífðarslopp, setti
hárnet á höfuðið og skóhlífar
yfir skó sína. Í Mjólkur-
samlaginu er hreinlætið sett á
oddinn. Magnús Freyr
Jónsson, framkvæmdastjóri,
og Jón Þór Jósepsson,
framleiðslustjóri, sögðu frá
starfsemi Mjólkusamlagsins
og þeirri miklu ostagerð sem
fer þar fram. Þeir félagarnir
leiddu hópinn um fram-
leiðslusali og gáfu honum að
smakka á nýjum osta-
tegundum sem komu á
markaðinn nýlega sem heita
Goðdalir: Grettir, Reykir og
Feykir. Hópurinn sá einn
stafsmanninn bera sérstaka
ostamálningu á ostana. En
það þarf að bera á ostana átta
umferðir af sérstakri osta-
málningu sem gerir það að
verkum að vatnsinnihald
minnkar og bragðið verður
sterkara. Einnig fékk hópur-
inn að smakka Mozzarella
ost. Allir eru þessir ostar
sannkallaðir skagfirskir
gæðaostar.
Eftir heimsóknina í
Mjólkursamlagið fór hópur-
inn í Steinullarverksmiðjuna
sem er að Skarðseyri 5. Stefán
Logi Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri, tók á móti
hópnum. Hann greindi frá
starfsemi Steinullarverk-
smiðjunnar og sögu hennar.
Erindi hans var áhugavert og
fræðandi. Þennan dag var
verksmiðjan ekki í gangi.
Stefán Logi sagði að uppistaða
hráefnanna við framleiðsluna
væri innlend og nánast innan
seilingar. Það væri fjöru-
sandurinn sem tekinn væri
við vesturós Héraðsvatna. Þar
tæki verksmiðjan um 10
þúsund tonn af sandi árlega,
og hefði gert frá upphafi.
Sjórinn annaðist um sjálfvirka
áfyllingu námunnar svo að
þess sjáist engin ummerki frá
degi til dags.
Eftir heimsóknina í Stein-
ullarverksmiðjuna hélt hóp-
urinn í súpu og brauð á Kaffi
Króki. Þangað kom sr. Sig-
ríður Gunnarsdóttir, sóknar-
prestur á Sauðárkróki, og
heilsaði upp á hópinn. Sr.
Sigríður gekk með hópnum
til Sauðárkrókskirkju. Þar
spjallaði hún við viðstadda og
sagði frá starfi kirkjunnar af
sinni alkunnu ljúfmennsku
og elskulegheitum. Þess má
geta, að Sauðárkrókskirkja er
vinakirkja Seltjarnarnes-
kirkju. Hefur svo verið frá
árinu 2013.
Eftir heimsóknina í
Sauðárkrókskirkju var ekið
fram á Löngumýri. Gunnar
Rögnvaldsson, forstöðu-
maður á Löngumýri, tók á
móti hópnum. Gengu menn
til stofu og sungu fyrir
Guðmund Einarsson,
afmælissönginn, og lyftu
glösum í tilefni dagsins.
Guðmundur er maður á besta
aldri og jafnframt formaður
sóknarnefndar Seltjarnarnes-
kirkju. Gunnar lék á alls oddi
eins og honum er einum
lagið. Hann söng lag og texta
sem hann gerði ásamt
Sigvalda Helga syni sínum.
Gunnar hefur unnið stór-
kostlegt starf á Löngumýri og
er afar kraftmikill og
fjölhæfur maður. Hópurinn
snæddi lambalæri á
Löngumýri ásamt öllu til-
heyrandi sem Lísa á Varma-
læk hafði matbúið ásamt
samstarfskonum sínum þeim
Dagnýju Erlu Gunnars-dóttur
og Sigurlaugu Guðmunds-
dóttur. Maturinn smakkaðist
einstaklega vel og þær stöllur
höfðu einnig útbúið góm-
sætan eftirrétt sem menn
skoluðu niður með rjúkandi
heitu kaffi eða tei.
Ferðin góða í Skagafjörð
stóð yfir í tæplega sextán
tíma, veðrið var alveg ljóm-
andi, sól og blíða norðan
heiða. Hópurinn kom glaður
og ánægður á Nesið eftir
frábæran dag í Skagafirði.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason,
sóknarprestur í
Seltjarnarneskirkju
AÐSENT
Dagsferð kaffikarla í Seltjarnarneskirkju í Skagafjörð
Frá vinstri séð: Ólafur Egilsson, Sverrir J. Hannesson, Gunnar H. Pálsson, Guðmundur Einarsson, Viðar Hjartarson, Þráinn
E. Viggósson, Gunnar Þór Alfreðsson, Ægir G. Ólason, Þorbjörn Jónsson, Birgir Vigfússon, sr. Bjarni Þór Bjarnason, Jón Rafn
Sigurjónsson, Guðmar Marelsson, Halldór Pedersen, Grétar G. Guðmundsson, Ágúst Ragnarsson, Valgeir Gestsson og
Jón Þór Jósepsson, framleiðslustjóri Mjólkursamlags. MYND: SIGURJÓN RAFNSSON.
Vel er látið af veiði í húnvetnsku
laxveiðiánum nú í byrjun veiðisumarsins.
Mest hefur veiðst í Blöndu sem opnaði
5. júní og höfðu 62 laxar komið þar á
land á miðvikudagskvöld þegar listi
Landssambands veiðifélaga var
uppfærður. Í Miðfjarðará höfðu veiðst 42
laxar frá því á mánudag í vikunni á
undan. Laxá á Ásum opnaði degi síðar
og höfðu veiðst 17 laxar í henni.
Víðidalsá og Vatnsdalsá opnuðu á
laugardag [20.] og höfðu 29 laxar skilað
sér úr Víðidalsá og 15 úr Vatnsdalsá. Þá
er búið að opna Hrútafjarðará og höfðu
sjö laxar veiðst þar á síðasta miðvikudag,
þar af einn 96 sentimetra stórlax. /FE
Sumarið fer
vel af stað
Laxveiði
26/2020 3