Feykir - 01.07.2020, Qupperneq 5
Sameiginlegt lið Kormáks og
Hvatar tapaði fyrir liði
Stokkseyrar þegar önnur
umferð 4. deildar Íslands-
mótsins í knattspyrnu B riðli
fór fram á fimmtudaginn.
Stokkseyri komst yfir á 15.
mínútu leiksins en Pálmi
Þórsson jafnaði fyrir Kormák/
Hvöt rétt fyrir leikhlé.
Leikurinn var svo í járnum
allt þar til á 85. mínútu er
Stokkseyri náði að setja mark
og vann því leikinn með
tveimur mörkum gegn einu.
Næsti leikur Kormáks/
Hvatar verður mánudaginn 6.
júlí og fer hann fram í
Stykkishólmi gegn Snæfelli.
Fyrsti heimaleikurinn verður
sunnudaginn 12. júlí á
Blönduósvelli gegn Álafossi.
/HUNI.IS
Tap á Stokkseyri
Fótbolti
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Karlalið Tindastóls mætti á sunnudag Vængjum
Júpíters á Fjölnisvellinum í Reykjavík fyrir
sunnan. Eftir pínu svekkjandi jafntefli í fyrsta
leik var mikilvægt fyrir Stólana að koma sér í
sigurgírinn í þriðju deildinni og það var að
sjálfsögðu það sem drengirnir gerðu. Þeir náðu
tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en gerðu
sér pínu erfitt fyrir með því að gefa mark seint í
leiknum. Lokatölur þó 1-2 og góður sigur
staðreynd.
Bæði liðin fengu skelli gegn góðum
andstæðingum í Mjólkurbikarnum fyrr í
vikunni en stóðu þó lengi í sínum
andstæðingum. Luke Rae og Jónas Aron héldu
uppteknum hætti og skoruðu, Luke á 15.
mínútu og Jónas á 38. mínútu. Að sögn Óskars
Smára Haraldssonar (aðstoðarþjálfara) voru
Stólarnir ekki upp á sitt besta og margt sem
menn vildu laga í hálfleik þó staðan væri 0-2.
„Í seinni hálfleik vorum við langt frá því að
sýna okkar rétta andlit og hleypum Vængjum
Júpíters inn í leikinn með slæmu marki sem
við teljum að hafi verið gjöf af okkar hálfu,“
sagði Óskar Smári í spjalli við Feyki. „En sem
betur fer fór seiglan og liðsheildin með þetta
alla leið og ef við hefðum nýtt sénsana betur
hefðum við getað skorað fleiri mörk.“
Aðspurður hverjir hefðu verið sterkir í
leiknum svaraði Óskar: „Ísak var að vanda
virkilega flottur og sama má segja um Jónas,
Luke og Ford. Þetta var okkar þriðji leikur á
einni viku og jafnframt voru flestir sem tóku
þátt í dómgæslu daginn áður [á
Steinullarmótinu] og því eðlilegt að smá þreyta
sé í mannskapnum. En við erum fyrst og fremst
ánægðir að hafa tekið stigin þrjú með okkur
heim og bíðum spenntir eftir að mæta KFG á
Sauðarkróksvelli næstkomandi föstudag!“
Leikurinn gegn Garðbæingum hefst kl.
18:00. Áfram Tindastóll! /ÓAB
Sanngjarn sigur á Vængjum Júpíters
Fótbolti
Lið Tindastóls og Keflavíkur mættust í
hörkuslag á föstudagskvöldið á gervigrasinu
á Króknum. Lið gestanna féll úr efstu deild í
fyrra og fyrir mót var þeim spáð öruggum
sigri í Lengjudeildinni í sumar en
Stólastúlkum var spáð þriðja sæti. Það var
því um stórleik að ræða og bæði lið reyndu
hvað þau gátu til að knýja fram sigurmark
allt fram á síðustu sekúndu en leiknum lauk
með sanngjörnu jafntefli, lokatölur 1-1.
Áður en leikurinn hófst var Hugrúnu Páls
færður blómvöndur en þetta var hundraðasti
leikur hennar fyrir Tindastól. Leikurinn fór
fjörlega af stað í pínu norðangalsa en það
lægði þegar á leið. Hugrún fékk fysta
dauðafærið þegar hún fékk boltann óvænt á
fjærstöng og skellti boltanum í stöngina. Á
15. mínútu náðu Keflvíkingar góðri sókn
sem endaði með því að boltanum var stungið
laglega inn fyrir á Paulu Watnick sem komst
fram hjá Amber Michel í marki Tindastóls
og lagði boltann í markið. Gestirnir voru
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náðu á
tíðum upp ágætu spili. Þær voru snöggar að
loka á Mur í framlínu Tindastóls þannig að
hún hafði úr litlu að moða.
Staðan var 0-1 í hálfleik en Stólastúlkur
komu ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og
náðu að ógna marki gestanna. Hugrún og
Aldís María náðu að teygja betur á vörn
gestanna og skapa hættu en það gekk illa að
finna Mur í fæturna. Jöfnunarmarkið kom á
63. mínútu, eftir að Aldís María tapaði
boltanum í teig Keflavíkur mistókst
gestunum að koma boltanum frá, Laufey
vann boltann og sendi fyrir markið, Ásta
Vigdís í markinu náði ekki að góma boltann
sem barst til Hugrúnar sem sendi boltann
aftur í Ástu og af henni hrökk hann til Jackie
Altschuld sem skoraði af yfirvegun.
Næstu mínútur var jafnræði með liðunum
en síðustu mínútur leiksins sóttu gestirnir
heldur meira en bæði lið gerðu ágætar
tilraunir til að stela stigunum. Stöðva þurfti
leikinn undir lokin eftir að Amber og
Natasha Anasi lentu í samstuði en ágætur
dómari leiksins lét réttilega köll um
vítaspyrnu sem vind um eyru þjóta.
Niðurstaðan því jafntefli sem eru
sennilega ásættanleg úrslit fyrir bæði lið
þegar upp er staðið. Amber var frábær í
markinu og virðast Stólarnir hafa krækt í
hörku markvörð. Hún gerði allt
óaðfinnanlega. Fyrir framan hana náðu
Bryndís Rut og Hallgerður vel saman og
studdar af Laufeyju Hörpu og Kristrúnu þá
náðu þær að verjast vel snörpum og liprum
sóknarleikmönnum Keflavíkur. Það var pínu
basl á stelpunum inni á miðjunni sem
skiljanlegt er. Jackie náði þó að komast betur
inn í leikinn eftir því sem leið á. Mur átti
erfitt uppdráttar í leiknum en Aldís María og
Hugrún efldust eftir því sem leið á. Stúlkurnar
sem komu inn á skiluðu sínu vel.
Um 350 áhorfendur voru á leiknum og
ekki oft sem slíkt gerist á fótboltaleik hér.
Fjölmargir Keflvíkingar voru á svæðinu þar
sem Steinullarmótið í knattsyrnu fór fram
um helgina og studdu þeir sínar stelpur vel
– mun betur en frekar hógværir Króksarar í
stúkunni. Næsti leikur Stólastúlkna er gegn
liði Víkings í Reykjavík þann 3. júlí. /ÓAB
Jafntefli hjá Stólastúlkum og Keflvíkingum í hörkuleik
Fótbolti
Jackie í baráttunni inni á miðjunni en hún gerði
jöfnunarmark Stólastúlkna. MYND: ÓAB
Íslandsmót golfklúbba 15
ára og yngri fór fram dagana
25-27. júní á Garðavelli á
Akranesi. Golfklúbbur
Skagafjarðar átti þar flotta
fulltrúa.
Drengjasveitin endaði í
13. sæti. Sveitina skipuðu
þeir Alexander Franz
Þórðarson, Axel Arnarsson,
Bjartmar Dagur Þórðarson,
Hallur Atli Helgason og
Tómas Bjarki Guðmunds-
son. Liðsstjóri var Atli Freyr
Rafnsson.
Stúlknasveitin var sam-
eiginleg með Golfklúbbnum
Hamri Dalvík og enduðu
þær í 5. sæti. Sveitina
skipuðu Anna Karen
Hjartardóttir, Dagbjört Sísí
Einarsdóttir, Rebekka
Helena B. Róbertsdóttir,
Una Karen Guðmundsdóttir
og Magnea Ósk Bjarnadóttir
GHD. Liðsstjóri var Bjarni
Jóhann Valdimarsson GHD.
Krakkarnir sýndu leikgleði
og prúðmennsku á vellinum
og voru klúbbum sínum til
mikils sóma.
/Fréttatilkynning
Íslandsmót golfklúbba
15 ára og yngri
Golf
Drengjasveit GSS ásamt liðstjóra sínum, Atla Frey Rafnssyni. MYND: AÐSEND
Stúlknasveitin sem skipuð var sameiginlegu liði með Golfklúbbnum Hamri
Dalvík, ásamt liðstjóra sínum, Bjarna Jóhanni Valdimarssyni. MYND: AÐSEND
26/2020 5