Feykir - 01.07.2020, Qupperneq 7
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Skafl.
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Hver eru þín bestu
og verstu kaup?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : SHV
„Rauðu Trigger stígvélin mín
eru langbestu kaupin mín.
Þau kostuðu 300 kr. og við
erum ca. 12 sem notum þau í
útiveru í leikskólanum. Verstu
kaupin mín eru svona ca 75%
af fötunum mínum. Leiðist að
máta og allt það.“
Hildur Haraldsdóttir
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Liberty Bell, eða Frelsisbjallan, er staðsett í Fíladelfíu í Pennsylvaníu,
einni elstu borg Bandaríkjanna. Hún var tekin í notkun 1752 og er eitt
helsta tákn bandarísks sjálfstæðis. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er
nafnið Pennsylvanía rangt stafsett á bjöllunni.
Maís og humar-
pizza á grillið og
karmellukornflex-
nammi í eftirrétt
Matgæðingar vikunnar, þau Jón Gestur Atlason og Hanna María
Gylfadóttir, búa á Sauðárkróki ásamt dóttur sinni, en þar er Jón Gestur
fæddur og uppalinn en Hanna flutti þangað fyrir 14 árum með
fjölskyldu sinni. Jón Gestur er menntaður smiður og starfar hjá K-TAK
en Hanna starfar á leikskólanum Ársölum meðfram masters námi í
Menntunarfræði. Þau gefa lesendum uppskriftir að þremur
sumarlegum réttum.
„Óklifin fjöllin fram undan buga þig ekki heldur steinvalan í skónum”.
/ Muhammad Ali
RÉTTUR 1
Grillaður maís á
mexíkóska vísu
4 maísstönglar, helst ferskir
½ bolli majónes
chilli duft
⅓ bolli ferskur parmesan
ferskur kóríander
1 lime
Aðferð: Grillið maísstöngla í 10-
12 mínútur, lengur ef þeir eru
frosnir. Smyrjið þá því næst með
majónesinu og dreifið chilli dufti
og rífið parmesan ost yfir. Berið
fram með ferskum kóríander og
lime bátum.
RÉTTUR 2
Grilluð humarpizza
Pizzabotn:
Uppskriftin dugar í tvo botna.
3 tsk. (einn lítill poki) þurrger
1 tsk. sykur
2 dl heitt vatn
5 dl hveiti
1 msk. hvítlauksolía
1 tsk. parmesan og basil salt
frá Nicolas Vahé
Aðferð: Þurrgerinu, sykrinum og
vatninu er blandað saman í skál og
látið bíða í smástund eða þangað til
blandan fer að freyða. Þá er
hveitinu, olíunni og saltinu blandað
saman við, deigið hnoðað og látið
hefast á hlýjum stað í klukkutíma.
Álegg:
400-500 g skelflettur humar
hvítlaukssmjör
hvítlauksolía
„Bestu kaupin eru klárlega
þráðlausa ryksugan mín. Hún
stoppar ekki á þessu heimili.
Verstu kaupin eru róbot ryksuga
sem ég gat ekki notað því
dóttirin var svo hrædd við hana
og það gleymdist að kveikja á
henni þegar enginn var heima.“
Ólöf Ösp Sverrisdóttir
„Bestu kaup er líklega
uppþvottavélin mín sem hefur
gengið snurðulaust í 14 ár. Verstu
kaup er Chevrolet Lacetty.“
Ívar Gylfason
„Mín bestu kaup var ferð til
Kúbu, ferð sem ég gleymi aldrei.
Mín verstu var önnur ferð til
Kúbu, gleymi henni seint.“
Helgi Dagur Gunnarsson
Hanna María Gylfadóttir og Jón Gestur Atlason matgæðingar vikunnar. MYND: AÐSEND
rifinn ostur
klettasalat
ferskur parmesan
Aðferð: Pizzasteinn er hitaður á
grillinu. Botninn er penslaður með
hvítlauksolíu, rifnum osti dreift yfir
og pizzunni komið fyrir á
steininum. Best er að hafa
bökunarpappír á milli. Pizzan er
bökuð í u.þ.b. 5 mínútur.
Humrinum er velt upp úr 4-5
matskeiðum af bræddu
hvítlaukssmjöri áður en hann er
settur á pizzuna og hún bökuð í 5-7
mínútur til viðbótar. Pizzan er
borin fram með klettasalati,
ferskum parmesan og hvítlauksolíu.
RÉTTUR 3
Karmellukornflex-
nammi með lakkrísbitum
300 g Dumle karmellur
130 g smjör
200 g lakkrísreimar
(fylltar eða ófylltar)
90 g kornflex, mulið gróflega
Aðferð: Bræðið karmellurnar og
smjör saman í potti. Bætið lakkrís
og kornflexi saman við og hrærið
vel saman. Setjið í form (24x34cm)
hulið smjörpappír og geymið í kæli
á meðan kremið er útbúið.
Krem:
400 g rjómasúkkulaði
60 g smjör
Aðferð: Bræðið súkkulaði og
smjör saman í örbylgjuofni eða yfir
vatnsbaði. Hellið því næst yfir
kornflexnammið. Setjið í frysti og
geymið í a.m.k. 20-30 mínútur.
Takið úr frysti og skerið í bita.
Við erum í frábærum matarklúbbi
og skorum á vinapar okkar þaðan,
Sigríði Heiðu Bjarkadóttur og Hlyn
Örn Sigmundsson.
Tilvitnun vikunnar
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR) frida@feykir.is
Jón Gestur og Hanna María matreiða
26/2020 7
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Upp við strönd ég steypi mér.
Stend á söndum víðum.
Skíðaböndum undir er.
Einnig göndum þýðum.